Tíminn - 06.05.1976, Síða 13
Fimmtudagur 6. mal 1976.
TÍMINN
13
ÞESSI glaöbeitti hópur er hluti
Alþýöuleikhússins, sem nú er á
ferö um Suöurland meö leikritiö
„Krummaguli” eftir Böövar
Guðmundsson i sviössetningu
Þórhildar Þorleifsdóttur. Tónlist-
ina i Krummagulli samdi Jón
Hööver Askelsson. Leikritið var
frumsýnt á Neskaupstaö 28. marz
s.I., en leikhópurinn hefur siöan
fariö um Austfiröi og
Norö-Austurland — og sýnt yfir 30
sýningar. A Suðurlandi hefur
hópurinn þegar sýnt á Akranesi
og f Borgarfiröi, en er nú á leið
austur fyrir fjall og sýnir m.a. i
Arnesi, Aratungu, Sigöldu, Hvols-
velli og viöar.
Leikritiö er ekki siöur ætlað
fullorðnum en börnum.
A myndinni t.f.v. Arnar Jóns-
son, Asgeir Adamsson, Maria
Arnadóttir, Þráinn Karlsson og
Kristin ólafsdóttir.
Timamynd: Gunnar.
VANTAR
YÐUR
starfsfólk?
o
Höfum vinnufúst fólk, vant margvisleg-
ustu störfum.
Atvinnumiðlun stúdenta
Simi 1-59-59.
Störf tveggja
hafnarvarða
er einnig gegna hafnsögumannsstörfum,
við Akraneshöfn, eru hér með auglýst laus
til umsóknar.
Umsóknum skal skila i siðasta lagi 18. mai
nk. til undirritaðs, sem einnig veitir nán-
ari upplýsingar.
Bæjarstjórinn á Akranesi.
Hreppsnefnd Hvammstangahrepps:
Fagnar þingsályktunartillögu um
aukna þjónustu á Hvammstanga
Vegna framkominnar tillögu til
þingsályktunar um aukna opin-
bera þjónustu á Hvammstanga
hefur hreppsnefnd Hvamms-
tangahrepps gert eftirfarandi
samþykkt:
Hreppsnefnd Hvammstanga
hrepps fagnar þingsályktunartil-
lögu Ragnars Arnalds og Páls
Péturssonar um auka opinbera
þjónustu á Hvammstanga við
ibúa Vestur-Húnavatnssýslu, þar
sem lagt er til að á Hvammstanga
verði m.a. starfrækt skrifstofa
Sjúkrasamlag V-Húnavatnssýslu,
lögregluvarðstofa og viðhalds-
þjónusta Rafmagnsveitna rikis-
ins og Landsimans.
Hreppsnefndin hefur lengi
krafizt þess að þjónusta opin-
berra aðila við ibúa V-Húna-
vatnssýslu verði aukin. Farið hef-
ur verið fram á að skrifstofuhald
Sjúkrasamlagsins verði flutt til
Hvammstanga, að þangað verði
ráðinn löggæzlumaður og þar
komið upp viðhaldsþjónustu frá
Rafmagnsveitum rikisins og
Landssimanum.
Þeir aðilar sem leitað hefur
verið til með úrbætur i þessum
efnum hafa allir leitt hjá sér að
gera þar nokkra bót á og eru þau
viðbrögð opinberra aðila algjör-
lega óþolandi.
Ibúar Hvammstanga og V-
Húnavatnss • allrar eiga kröfu á
að fá opinbera þjónustu með
sama hætti og aðrir landsmenn og
ættu ekki að þurfa að kaupa hana
hærra verði en aðrir. Samt mætti
nefna mörg dæmi þess að léleg
þjónusta ofangreindra aðila hefur
orðið ibúum og fyrirtækjum i
sýslunni dýr.
Hreppsnefnd Hvammstanga-
hrepps skorar þvi á Alþingi að
samþykkja umrædda tillögu og
krefst þess að sem allra fyrst
verði hafizt handa um að koma
upp á Hvammstanga þeirri opin-
beru þjónustu við ibúa V-Húna-
vatnssýslu semtillagan gerir ráð
fyrir.”
Onnur lág-
launaráðstefna
Láglaunaráöstefnan 1976. veröur
haldinn 16. mai n.k. i Lindarbæ,
og er hugsuö sem framhald ráö-
stefnunnar um kjör láglauna-
kvenna, sem haldin var á sama
staö i janúar I fyrra og var fyrsta
aögerö kvennaársins 1975.
Fyrir ráðstefnunni nú standa
auk Rauðsokkahreyfingarinnar
eftirtalin verkalýðsfélög á
Reykjavikursvæðinu: Iðja, félag
verksmiðjufólks, Starfsstúlkna-
félagið Sókn, Verkakvennafélagið
Framsókn, Verzlunarmannafé-
lag Reykjavikur, Verkakvenna-
félagið Framtiðin i Hafnarfirði,
ASB-félag afgreiðslustúlkna I
brauða- og mjólkurbúöum og
Starfsmannafélag rikisstofnana.
Oðrum stéttarfélögum og félaga-
samtökum, sem hafa margar
konur innan sinna vébanda, hefur
verið boðið að senda fulltrúa til
ráðstefnunnar og hafa nokkur
vyrkalýösfélög úti á landi þegar
tilkynnt þátttöku sina.
Á ráðstefnunni i fyrra var leit-
azt við að draga fyrst og fremst
fram sérstöðu kvenna I atvinnu-
lifinu, aðstæður þeirra og aðbún-
að á vinnustöðunum og á heimil-
Hreppsfélög
— Sveitarfélög
Takið eftir
32ja ára gamall vélvirkja- og pipulagningameistari, van-
ur rafsuöu, logsuöu, vélaniöursetningum og verkstjórn,
óskar eftir föstu og góðu starfi úti á landi. Húsnæöi þarf aö
geta fylgt. Vinsamlega hringið i sima 99-1681.
unum. Að þessu sinni verða rædd-
ar leiðir til úrbóta, starf og
barátta stéttarfélaganna og
virkni kvenna innan þeirra, verk-
menntun, fæðingarorlof, dagvist-
unarstofnanir og fleira.
(Fréttatilkynning)
Hvetja til
stofnunar kvik-
myndasjóðs
Fundur i Félagi kvikmynda-
gerðarmanna, haldinn 30. april
1976, lýsir áhyggjum sinum yfir
þeim hætti, sem verið hefur á út-
hlutun styrkja til kvikmynda-
gerðar úr Menningarsjóði. Fund-
urinn telur, að miðað við núver-
andi stöðu islenzkrar kvikmynda-
gerðar og þess fjár, sem til henn-
ar er veitt af opinberum aðilum,
berifyrst um sinn að vinna mark-
visst að uppbyggingu smámynda-
gerðar innan listgreinarinnar,
þar eð markaði, aðstöðu og til-
tæku fjármagni sé á þann veg
háttað, að naumast sé grundvöll-
ur fyrir gerð alislenzkra lang-
mynda I frambærilegum gæða-
flokki. Fundurinn telur, að út-
hlutanir styrkja þessara undan-
farin ár, sýni betur en nokkuð
annað þá brýnu nauðsyn, sem
stofnun kvikmyndasjóðs er, og
beinir þeirri eindregnu áskorun
til hæstvirts menntamálaráð-
herra, að hann hlutist til um
stofnun sjóðsins hið fyrsta.
(Frá F.K.)
Til sölu á Húsavík
i sambýlishúsi að Garðarsbraut 71.
íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk og
málningu.
Raflagnir, töflur og sjónvarpslögn frá-
gengin.
Öll sameign, lóð og bilastæði frágengin.
Verð:
2ja herbergja kr. 3.800.000
3ja herbergja kr. 5.200.000
4ra herbergja kr. 6.100.000
Varði hf. — Húsavik.
BORGARNES
SUNNUKVOLD
Stór-bingó
Fjölskylduskemmtun
Ungmennafélagshúsinu, Borgarnesi, föstu-
dagskvöldið 7. mai kl. 21.
1. Kynning á sumarferðum 1976.
Fyrirspurnum svarað um ferðamál:
Guðni Þórðarson.
2. Litkvikmynd frá sólarlöndum.
3. Bingó, Vinningar: 3 utanlandsferðir.
Mætið stundvislega.
É SÓLSKINSSKAPI NED SUNNU
KRMSKRIFSTOFAN SUNNA
lýsið í Tímanum