Tíminn - 06.05.1976, Síða 4
TÍMINN
Fimmtudagur 6. mai 1976.
Leiðinlegur
sjúklingur
Marlene Dietrich lá nýlega á
sjúkrahúsi, og þótti hún heldur
en ekki leiöinlegur sjúklingur.
Hún var alltaf aö setja út á mat-
inn, sem henni var borinn, og
endaði það meö þvi, að mat-
ráðskonan fór að gráta. Og þeg-
ar vesalings Katherine Hepburn
leikkona kom til þess að
heimsækja hana og færði henni
blóm, æpti frú Dietrich á móti
henni: — Sendið hana þegar i
stað I burt frá mér, ég vil alls
ekki fá hana i heimsókn.
Ungfrú Útsýn
Hildur Gisladóttir, 18 ára
menntaskólanemi frá Akur-
eyri, var kosin ungfrú Otsýn á
sumarhátíð að Hótel Sögu á
sunnudagskvöld. Um þrjátiu
stúlkur tóku þátt I fyrirsætu-
keppni ferðaskrifstofunnar
Útsýnar, sem staðið hefur i
allan vetur. TIu stúlkur kepptu
til úrslita, og varð Hildur
endanlega hlutskörpust á
sunnudagskvöld. Stúlkurnar tíu
fá allar útsýnarferðir I verð-
laun. Hildur mun sitja fyrir á
myndum i áætlanir og aug-
lýsingar fyrir ferðaskrifstofuna.
Réttmæt ^
verkaskipting
Anna Bretaprinsessa hefur lýst
þvi yfir I viðtali, að hún hafi
einstaklega gaman af þvi að búa
til mat. Hins vegar segist hún
aldrei geta gert það, vegna þess
að hún þori ekki að fara fram i
eldhúsiö heima hjá sér vegna
matráðskonunnar. Hún var
einnig spurð að þvl, hvort mað-
ur hennar hefði gaman af
matartilbúningi. Sagði hún þá,
að henni fyndist karlmenn ættu
alls ekki að þurfa að vera að
skipta sér af matargerðinni, að
minnsta kosti ekki eftir að þeir
væru búnir að gifta sig. Af þess-
um orðum mætti ætla, að Anna
vissi ekkert um nútlma kven-
réttindi eða jafnrétti kynjanna,
eins og það er kallað hjá sum-
um.
Þér segið ekki sagt. Er komin
mynd af mér i bikini, mitt á
milli meömælabréfanna.
Já, en Disa mln. Þú veizt vei, að
ég hef ekki skap i mér til þess að
drekka einn.
DENNI •
DÆMALAUSI
Ma ekki Jói vera hjá okkur
dáiitinn tima. Litla systir hans
er rétt að byrja að tala, og hún
þegir ekki eitt einasta augna-
blik.