Tíminn - 06.05.1976, Qupperneq 6

Tíminn - 06.05.1976, Qupperneq 6
6 TÍMINN Fimmtudagur 6. mai 1976. ísland hefur formlegt stjórn- mólasamband við 60 lönd Kaflar úr skýrslu EÍnars Ágústssonar, utanríkisróðherra, um utanríkismól 1 gær flutti Einar Agústsson ut- anrikisráðherra skýrslu sina um utanrikismál i sameinuöu þingi. Eæddirá&herra m.a. um jákvæða þróun mála af hafréttarfundinum ÍNew York (sjá forsíðufrétt). Héi i blaöinu hefur áður veriö getið um nokkra þætti f skýrslu utan- rikisráðherra m.a. um hafréttar- málin og framkvæmdir á Keflav.flugveili, en hér á eftir verður getiö um ýmsa aöra þætti, þ.á m. um Sameinuöu þjóöirnar, þar sem hann fjallaöi m.a. um Háskóia Sameinuöu þjóöanna. Ráöherrann sagöi: Húskóli Sameinuðu þjóðanna „Hugmyndin um stofnun Há- skóla Sameinuðu þjóöanna var fyrst borin fram fyrir 10 árum af U Thant, þáverandi fram- kvæmdastjóra S.Þ. Það var 27. allsherjarþingið, sem ákvað að setja Háskóla S.Þ. á stofn. 28. allsherjarþingiö samþykkti stofn- skrá skólans og ákvaö að höfuð- stöðvar skólans skyldu veröa i Tokyo. Ráöinn hefur veriö rektor háskólans, Bandarikjamaðurinn James Hester. Ráðinn hefur verið helmingur þess 60 manna starfs- liös, sem ráögert er að starfi i höfuöstöðvum skólans i Tokyo. Ráö háskólans, skipað 24 full- trúum, sem tilnefndir eru af aðal- framkvæmdastjóra S.Þ. og fram- kvæmdastjóra UNESCO i sam- einingu, hefur mótað skipulag á starfsemi skólansogunnið að vali á verkefnum fyrir hann. Ráðgert er, að fjármagna starfsemi háskólans með frjáls- um framlögum frá rikisstjómum, stofnunum, háskólum og einstak- lingum. Er stefnt að þvi að koma upp rekstrarsjóöi er nemi 500 milljónum dollara. Japan hefur lagt fram 100 milljónir dollara, sem dreifasttil greiðslu árin 1975 til 1980. Venezuela hefur lofað 10 milljón dollara framlagi og Bandarikin sömu upphæð. Svi- þjóð lagði háskólanum til 1 miiljón sænskra króna á árinu 1975 og Noregur mun leggja skól- anum til 1 milljón króna á árinu 1976. Ætlunin er, að háskólinn dreifi starfsemi sinni um allan heim og setji upp svæöismiðstöövar, a.m.k. eina I hverri heimsálfu. Auk þessa eru fyrirhuguð tengsl viö rannsókna- og menntastofn- anir I ýmsum löndum. Slik tengsl gætu oröið meö margvislegum hætti eftir aðstæðum og yröu samkomulagsatriði milli háskól- ans og viökomandi stofnunar hverju sinni. Islandhefur frá þvi fyrsta stutt hugmyndina um háskóla S.Þ. og látiö I ljósi áhuga á að kanna möguleika á þátttöku i starfsemi hans. Var i fyrstu einkum hug- leidd samvinna viö háskólann varöandi rannsóknir á auðlindum hafsins, en athyglin beinist nú frekar aö samvinnu viö háskól- ann um rannsóknir og kennslu á Leiðrétting 1 forsiðufrétt i Timanum i gær var getiö um breytingar- tillögur stjórnarandstæðinga við frumvarpi rikisstjórnar- innar um fjáröflun fyrir land- helgisgæzluna og fl. Var sagt, að flutningsmenn að tillögu um 14% vörugjald — i stað 18% eins og gert er ráö fyrir i frumvarpi rikisstjórnarinnar — hafi verið Gylfi Þ. Gislason og Karvel Pálmason. Sigurð- ur Blöndal (Ab) var einnig tillögumaöur, og biöst blaðið velvirðingar á þvi, að nafn hans skyldi falla niður. sviði jarðhitaorku. 1 þessu sambandi má geta þess, aö á fundi Auðlindanefndar S.Þ. i Tokyo I marz 1975 hafði Island frumkvæöi að flutningi tillögu, sem samþykkt var einróma um, að Háskóli S.Þ. beiti sér fyrir rannsóknum og fræöslu varðandi nýtingu jaröhita. Þessari hug- mynd hefur veriö mjög vel tekið, og má nú telja verulegar líkur á, að eitt af verkefnum háskólans verði á þessu sviði. Komiö hefur verið á framfæri við rektor háskólans fyrstu hug- myndum islenzkra stjómvalda um hugsanlega samvinnu um þessimálog jafnframt leitaö eftir viöbrögðum háskólans, m.a. um kostnaöarhliðina. Til grundvallar umræðum um málefni háskólans i 2. ne&id lágu skýrslur háskólaráösins og var þeim fylgt úr hlaði i nefndinni af rektor háskólans. Skýrði hann frá, að unnið væri nú aö þvi aö setja saman nákvæma fram- kvæmdaáætlun um starfsemi há- skólansi' framtiðinni. Rektor lýsti vonbrigðum sinum yfir þvi, að aöeins fimm rlki hefðu fram til þessa lagt háskólanum til fé og lét I ljós vonir um, að fleiri rlki myndu sýna stuöning sinn við há- skólann i verki með fjárframlög- um. 1 almennu umræðunum um málefni háskólans gáfu allmörg riki ádrátt um fjárframlög tii skólans. Nokkur rlki létu I ljós á- huga á að taka upp samvinnu við skólann. Fastafulltrúi Islands tók þátt I almennu umræðunum og skýrði þar m.a. frá, aö rikisstjórn Islands hefði I athugun tillögur um samvinnu við háskólann á sviði rannsókna og fræðslu um nýtingu jarðhitaorku. Grikkland lýsti áhuga á að koma upp rannsóknastofnun i samvinnu við háskólann á sviði haffræði og fiskveiða. Venezuela hafði frumkvæöi aö undirbúningi að tillögu um mál- efni háskólans. Island gerðist meðflutningsaðili að þeirri tillögu ásamt fleiri rikjum. Mexikó kom fram meö allmargar breytingar- tillögur, sem höföu að markmiði að mynda formlegt samband milli háskólans og hins nýstofn- aða Háskóla þriðja heimsins i Mexico City. Eftir alllangar ó- formlegar samningaviðræður, sem tsland tók virkan þátt í, tókst að ná samkomulagi um hóflega orðaöa tillögu um háskólann og starfsemi hans. t tillögunni er lýst yfir samþykki við samþykkt há- skólaráðsins um forgangsverk- efni háskólans, skólinn er hvattur til að taka upp samvinnu við menntastofnanir um heim allan, einkum slikar stofnanir I þróun- arlöndunum. Þá er skorað á aöildarrikin aö leggja háskóian- um til fé. Tillagan var samþykkt án atkvæðagreiðslu bæði I 2. nefnd og á þinginu.” Þá vék utanrlkisráðherra aö ýmsum öörum þáttum utanrlkis- mála, og verður þeirra þátta get- ið hér á eftir: Norðurlanda- samvinna „Allir tslendingar eru sam- mála um gildi norrænnar sam- vinnu. Má vera aö sú sé ástæða þess, hversu tiltölulega lítiö er rætt um hana. Hvaö sem um það má segja, er ljóst að þátttakan i Norðurlandasamvinnunni er einn helzti hornsteinn Islenzkrar utan- rikisstefnu. Noröurlandaráð er samstarfs- vettvangur þjóðþinga Norður- landanna svo sem kunnugt er. Forsætisnefndin hefur viðamiklu hlutverki aö gegna milli funda Noröurlandaráðs. Mikinn hluta þess tima sem skýrsla mln nær yfir, hefur frú Ragnhildur Helga- dóttir, alþingismaöur, haft það vandasama verk með höndum að vera, fyrst norrænna kvenna, for- seti ráðsins. Fimm fastar undirnefndir starfa mikið allt árið um kring. Fjalla þær um efnahags-, menn- ingar-, félags-, samgöngu- og lagamál. Fer mikilvægt starf fram i þessum nefndum, starf sem stöðugt eflir norræna sam- vitund. Á vegum Norðurlandaráðs hafa ýmsar stofnanir verið settar á laggirnar vlða um Noröurlöndin, má t.d. nefna kjarnorkumála- stofnunina, þjóðfélagsmálastofn- unina, Samastofnunina, eldfjalla stofnunina og Norræna húsið. Af meiri háttar norrænum skoðana- skiptum er skemmst að minnast 24. þings Norðurlandaráðs, sem haldiö var i Kaupmannahöfn 28. febrúar til 4. marz s.l. Veröur Einar Agústsson stuðningsyfirlýsing þess þings viö málstað Islands i fiskveibilög- sögudeilunni viö Breta lengi i minnum höfð. Eins og ég gat um áður var á fundi utanrikisráöherra Norður- landa 25. og 26. marz s.l. sam- þykkt yfirlýsing hliðholl okkar málstað i landhelgisdeilunni. Var þar endurtekiö það norræna álit, að brezku herskipin verði að yfir- gefa Islenzku fiskveiðiiögsöguna til þess að hægt sé að leysa deil- una. Eru þessar tvær yfirlýsingar um utanrlkismál sérstaklega eft- irtektarveröar og marka að sumu leyti timamót I sögu Noröur- landaráðs. Auk 24. þings Norðurlandaráðs, reglubundinna ráöherrafunda og nefndarfunda má nefna samn- ingastörfin, sem ávallt eru mikil áhverju ári. Sem dæmi má taka Noröurlandasamning um stofnun norræna fjárfestingabankans og staðsetningu hans i Helsingfors, sem undirritaður var I desember. Einnig má nefna Norðurlanda- samning um erfðir og skipti á dánarbúum sem annað dæmi um samning, sem ekki lætur mjög mikið yfir sér en styrkir engu að siður ásamt mörgum öðrum svip- uöum það margslungna sam- starf, sem Noröurlöndin hafa komið sér upp. Norðurlönd hafa komið ár sinni vel fyrir borö meö nokkuð mis- munandi hætti i millirikjasam- skiptum, en þau eru einhuga að þvi er viðvikur eflingu norræns samstarfs. Mismunandi fyrir- komulag á samskiptum þeirra við önnur riki hefur að sjálfsögöu fyrst og fremst sprottið af við- leitni Norðurlandanna hvers um sig til að gæta sem bezt eigin hagsmuna, en um leiö hefur þessi fjölbreytni á vissan hátt oröiö þeim sem heild styrkur. Og með hinu nána samstarfi sin I milli um alþjóöamál t.d. á Sameinuöu þjóða þingum hefur þeim oft tek- izt að hafa áhrif til farsældar þró- unar langt umfram þaö, sem ætla mætti um ekki fjölmennari riki. Þess er að vænta, að norrænt samstarf haldi áfram að eflast og dafna. Evrópuróðið Eins og ég hef minnzt á I fyrri skýrslum minum um utanrikis- mál hafa á undanförnum árum átt sér stað all miklar umræður um framtlðarhlutverk Evrópu- ráösins. Var það einkum stækkun Efnahagsbandalagsins á önd- veröu árinu 1972sem kom þessum umræðum á stað. Hafa þær haldö áfram siðan með nokkrum hlé- um, en niðurstaða þeirra viröist ótvlrætt vera sú, að Evrópuráöið muni um ófyrirsjáanlega framtiö hafa mjög gagnlegu hlutverki að gegna sem vettvangur frjálsra skoðanaskipta á sviði stjórnmála álfunnar. Umræður þær, sem hér er vikið að, um verksvið og framtið Evrópuráðsins, hafa að sjálf- sögðu verið mjög tengdar umræð- um um aukin völd Evrópuþings- ins, sem er ráögjafarþing þeirra níu landa, er aðild eiga aö Efna- hagsbandalagi Evrópu. Hafa þar verið uppi hugmyndir um að kjósa fulltrúa á Evrópuþingið beinnikosningu og fá þvi i hendur aukin völd, jafnvel ráögjafar- vald. Svipaðarhugmyndir hafa af og til einnig skotiö upp kollinum varöandi ráögjafarþing Evrópu- ráðsins, en þær hins vegar fengiö misjafnar undirtektir. Landhelgismál Islands hefur öðru hverju komið til umræðu á vegum Evrópuráðsins bæöi I ein stökum nefndum svo sem fisk- veiöinefndinni.semer undirnefnd landbúnaðarnefndar og sömu leiðis á fundum ráögjafarþingsins sjálfs. A þetta jafnt við um deiluna um fiskveiðar milli Is- lands og V-Þýzkalands áður en samningar tókustum lausn þeirr- ar deilu, sem um núverandi deilu íslands og Breta um fiskveiðirétt- indi.Er óhætt að fullyrða að þess- ar umræður hafi getað talizt já- kvætt ir.nlegg i lausn deilunnar milli Islands og V-Þýzkalands á sinum tfma, en auk þess hefur Evrópuráöið verið ágætis vett- vangur til þess að kynna málstað Islands á sviði landhelgis- og fisk- veiðimálaog hefur hvert tækifæri sem gefizt hefur verið notað til þess að koma á framfæri skoðun- um er styðja hinn islenzka mál- stað I þessu máli. Deila tslands og Bretlands um fiskveiðar hefur nokkrum sinnum veriö á dagskrá hjá Evrópuráðinu i vetur og er það enn. Eins og ég hef áður getið um hefur Evrópuráðið látið Kýp- ur-deiluna mjög til sin taka og reynt eftir megni aö koma fram með gagnlegar tillögur til þess að leysa þá höröu og erfibu deilu. Þá hafa atburðirnir i Portúgal og ástandið I stjórnmálum þar verið mjög til umræöu einkum innan ráðgjafarþingsins. Virðist svo sem Evrópuráöið hafi haft góö áhrif á þróun mála þar i landinu og nú nýlega undirritaði stjórn Portúgals aðild að menningar- mála sáttmála Evrópuráðsins og lita sumir á það sem fyrsta skref- ið I þá átt að Portúgal gerist full- gildur aðili að þeim lýðræöislegu samtökum, sem Evrópuráðið er. Ef Portúgal skyldi gerast aðili að Evrópuráðinu þá veröur það 18. landið sem tengist þeim samtök- um með fullri aðild. Eins og kunnugt er eiga þrlr fulltrúar Alþingis sæti I ráðgjafa- þingi Evrópuráðsins og eru það þingmennirnir Ingvar Gislason fyrir Framsóknarflokkinn, Þor- valdur Garöar Kristjánsson for- seti efri deildar, fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og Stefán Jónsson fyrir Alþýðubandalagið. Varamaður i þessari þingmannanefnd er Pétur Sigurðsson, alþingismaöur. Fulltrúar tslands I Mannrétt- indadómstól Evrópu og i Mann- réttindanefndinni voru þeir sömu og áöur, það er aö segja prófessor Þór Vilhjálmsson og dr. Gaukur Jörundsson, prófessor. Nú hefur sá fyrrnefndi verið skipaður dóm- ari I Hæstarétti íslands og máþvi búast við að hann geti ekki gegnt áfram störfum sem fulltrúi Is- lands I Mannréttindadómstóln- um. Fulltrúar íslands, ogþá einkum ýmissa ráöuneyta stjórnarráðs- insog sérstofnanarlkisins sóttu á árinu sem leiö fjölda funda i nefndum sem starfa á vegum Evrópuráðsins aö ýmis konar at- hugunum og skoðanaskiptum á ýmsum sviðum stjórnsýslunnar. Viðskiptamól 1975 A árinu 1975 voru gerðir 3 nýir viðskiptasamningar, við Sovét- rikin, Pólland og Kúba. Samningurinn við Sovétríkin gildir i 5 ár frá 1. janúar 1976 - 31. desember 1980, og er meö honum lagður grundvöllur undir áfram- haldandi viðskipti við Sovétríkin með sömu vörutegundir og svipaö magn og undanfarin ár. Helzta breytingin, sem leiðir af nýja samningnum er sú, að viðskipti landanna' greiðast I frjálsum gjaldeyri og hætt er viö jafn- keypisfyrirkomulagið samkvæmt eindreginni ósk Sovétrikjanna. 1 reynd hefur ekki tekizt að halda jöfnuði i viðskiptum milli land- annasiðan heimsmarkaðsverð á oliu hækkað’1973, og er ekki búizt við, aö þessi breyting hafi i för með sér nein veruleg áhrif á viö- skiptin. Nýi viðskiptasamningurinn við Pólland gildir einnig i 5 ár frá ársbyrjun 1976 - ársloka 1980. Hann er i öllum aðalatriðum samhljóða fyrri viöskipta- samningi vib Pólland. Bæði lönd- in skuldbinda sig til að veita inn- flutningi hvors annars beztu-kjör samkvæmt GATT-sáttmálanum. Allar greiðslur milli landanna fara fram I frjálsum Bandarikja- dollurum eða öðrum skiptanleg- um gjaldmiðli. Viðskiptasamningurinn við Kúbu var undirritaður 24. nóvem- ber 1975 og gildir hann til ársloka 1977. Síðasti viðskiptasamningur- inn við Kúbu rann út 3. október 1964, en þá höfðu engin viðskipti átt sér stað milli landanna I 3 ár. Er þess vænzt, að samningsgerð þessi greiöi fyrir sölu á saltfiski til Kúbu, sem legið hefur niðri I mörg ár, en enn sem komiö er hafa engin viðskipti tekizt á grundvelli nýja samningsins. Samkvæmt aðildarsamningi Is- lands að EFTA og friverzlunar- samningi Islands við Efnahags- bandalag Evrópu lækkuöu verndartollar á iönaðarvörum innfluttum frá aðildarrikjum þessara samtaka um 10% siðustu áramót, og eru þvi nú 40% af þeim tollum, sem giltu fyrir inn- gönguna IEFTA. Allir tollar á is- lenzkum vörum, sem falla undir EFTA-samninginn, féllu strax niður við inngöngu Islands i EFTA, en tollar á iðnaðarvörum frá Islandi hafa lækkað I Efna- hagsbandalaginu um 80%. Þessar tollalækkanir ná þó ekki til sjávarafurða, sem samið var sér- staklega um i bókun nr. 6, sem fylgdi friverzlunarsamningnum. Gildistaka þessara tollfríöinda er háð þvi skilyrði, að viöunandi lausnnáistfyriraðildarriki Efna- hagsbandalagsins á sviði fisk- veiðiréttinda. Þótt samiö hafi verið viö Þýzkaland og Belgiu um fiskveiðiréttindi, hafa þessi toll- friðindi ekki tekið gildi, af þvl að Bretland hefur getaö beitt neitunarvaldi sinu. Tollar á sjávarafurðum I gömlu Efna- hagsbandalagslöndunumhafa þvi ennþá ekki lækkað, eins og samningurinn kveður á um, og af sömu sökum hafa tollar verið lagðir aö nýju á sjávarafurðir, eins og t.d. frysta rækju, freðfisk- flök og lagmeti I Danmörku og I Bretlandi frá 1. janúar 1974, sem Framhald á bls. 15

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.