Tíminn - 06.05.1976, Síða 8
8
TÍMINN
Fimmtudagur 6. mai 1976.
Ingólfur Davíðsson:
Blóm á vori
Veturinn var mildur nyröra
og úr Þingeyjarsýslu kom sú
frétt, að þar væru sóleyjar farn-
ar að blómgást á jarðhitasvæði í
lok góu. I Reykjavik byrjuðu
vetrargosar að skarta með sinu
snjóhvi'ta hangandi blómi um
mánaðamótin febrúar og marz,
en siðan kom snjór og kuldi. En
vetrargosarnir biðu bara og
náðu sér verulega á strik aftur
seint i marz og fram i aprfl og
þá tóku lika stjörnuliljur og
dvegaliljur aö blómgast, já, og
vorboði (Eranthis), en hann
ISiiSSiia
Hóffifill
oghjá honum stjörnuliljur meö
himinblá blóm, oft tvö eða fleiri
á stöngli. Þetta" eru allt lag-
vaxnar lauk- og hnyðjujurtir,
sem þrifast ágætlega á Islandi,
þó ættaðar séu sunnan úr lönd-
um, þar sem þær vaxa á gras-
sléttum og uppi I fjöllum.
Laukarnir eru settir niður á
haustin og bera blóm næsta vor
og siöan árum saman, ef þeir fá
að vera I friöi. Hin mjóu blöö
þurfa aö sjá um næringu handa
iaukunum og eiga þvi að fá að
standa unz þau visna.
Nú ver I hönd timi páskalilj-
anna og uppi viö veggi móti sól
eru þær byrjaöar aö springa út.
Hin stóru, fagurgulu blóm
þeirra lýsa garðana og bera ljós
inn I stofuna afskornar. Ef þið
viljið skreyta stofuna með
páskaliljum i vasa, er bezt að
taka þær snemma, áður en
blómin eru alveg útsprungin.
Þeim hæfir vel aö standa i frek-
ar grunnu vatni og endast þá
lengi.
Núna i aprillok ber mikið á
dverga-ogstjörnuliljum. Perlu-
byrjaði raunar að blómgast
álika snemma og vetrargosinn.
Hér sjáið þið myndir, aðeins
svarthvitar aö visu, af þessum
boðberum vorsins. Dverga-
liljurnar (Crocus) skarta með
stórum hvitum, bláum eða gul-
um blómum þegar sólin skin. A
myndinni sést lágvaxinn vor-
boðinn á milli þeirra. Hann ber
stórt gult sóleyjablóm ofan á
stórum kransi grænna sóleyja-
blaða, enda af sóleyjaætt.
Á annarri mynd er vetrargosi
með sitt hvita drjúpandi blóm
liljan er seinni á sér, en lika
unaðsfögur meö sin mörgu
smáu, heiöbláu blóm, likt og
perlur upp eftir stönglinum.
Túnfifillinn er farinn að breiða
fagurgular stórar blómkörfurn-
ar á móti sól sunnan undir hús-
um. Hér og hvar um borgina er
lika annar gulur fifill kominn i
blóm, allólikur hinum. Körfurn-
ar eru miklu minni og
stönglarnir þaktir hreistur-
kenndum smáblöðum. Þetta er
nýlegur landnemi á íslandi og
heitir hóffifill. Blóm hans falla
snemma, en niður viö jörð fara
að vaxa hóflaga blöö, sem geta
veriö oröin lófastór eöa meir að
hausti. Erlendis hafa mörg
skáld lofað þennan vorboða i
ljóði. Hingaö hefur hann borizt
með varningi og breiðzt mikiö
út i Reykjavik og viöar siðustu
áratugina. En hann er vara-
samur i görðum, þvi að hann
breiðist ört út og sáir sér einnig.
En fagur er hóffifillinn og sér-
kennilegur.
Fróðlegt er að virða fyrir sér
gróðurinn þegar gengið er á
hitaveitustokknum i Reykjavik.
Sunnan undir honum blómgast
fiflarnir, vallarfoxgrasið og há-
liðagrasið grær og loðin þyrnótt
þistilblöð gægjast upp úr mold-
inni. En norðan undir stokknum
er allt grátt og vetrarlegt i
hörpubyrjun Áhrif skjólsins eru
afar greinileg. Úti á melum og
klettasillum eru hin blárauðu
blóm vetrarblómsins farin að
lifga umhverfið. Þaö er venju-
lega einna fyrst á ferðinni is-
lenzkra hagablóma. Brátt mun
mega sjá krækilyng i blóma.
Hafið þið tekið eftir þvi? Blómin
eru rauöleit og örsmá, eiginlega
bara fræflar og frævur. I görö-
um þrútna óðum brum á viöi
o.fl. trjám og runnum og viöi —
blómskúfarnir (reklarnir eða
kettlingarnir) eru að koma i ljós
og fagna hörpu.
Nú laufgast trjágreinar fjótt
ef þær eru settar i vatn og hafö-
ar i hlýju inni. Það fellur alltaf
til talsvert af greinum nú þegar
verið er aö grisja og laga vöxt
trjáa og runna.
I gróðurhúsunum er nú mikil
„gúrkuvertiö” — og blóma,
bæöi pottablóma og afskurðar-
blóma. Afskornu blómin eru
vandmeðfarin ef þau eiga að
endast lengi og vera til ánægju á
heimilum. Gróðurhúsabændur
láta þau margir hverjir strax i
kæli sem vera ber. Blómabúð-
um er vandi á höndum aö láta
þau tafarlaust i vatn eöa kæli
þegar þangaö kemur, (en láta
þau ekki fyrst liggja i hirðuleysi
á borðunum).
Þaö er eins með blómin og
grænmetiö, sölubúðirnar hafa
mikilvægu hlutverki aö gegna
og verða aö rækja það vel, ef
Vetrargosi og stjörnuliljur
Dvergaliljur og vorboði
varan á að haldast óskemmd.
Rósin er kölluð drottning
blómanna og hér er mikið af af-
skomum rósum á markaði, en
endingin er æði misjöfn. Vel er
t.d. látið af endingu Mercedes-
rósa. Annars endist tryggða-
blómið (Chrysanthemum) flest-
um blómum betur og fæst i
mörgum stæröum, geröum og
litum. Það er skammdegisjurt,
þe. ber blóm þegar nóttin er
löng. En garðyrkjumenn
hrekkja það. Þeir skyggja bara
á hluta af sólarhringnum og fá
þaö til að blómgast einnig i
langdeginu vor og sumar.
A vorin vakna blómin og
fuglarnir fara að syngja. Karl-
inn syngur fyrir kvenfuglinn —
ogmeiraen það, þvi aðhann er
lika að auglýsa riíti sitt og helga
sér það. Hann segir með söngn-
um: Ég syng vel og hér bý ég
með konunni minni, haldið ykk-
ur i hæfilegri fjarlægð!
í hvaða átt skylduð þið heyra
fyrsthneggiði hrossagauknum i
sumar?
Nokkrar kýr og kvígur
til sölu. - Upplýsingar í síma 99-6543.
Vantar smið
i byggingaflokk.
Upplýsingar gefa Sigurþór Hjörleifsson,
sima. 95-5522 og 95-5523 og Sólberg Stein-
dórsson, simi 95-5528.
mörg önnur verkfæri
með
harðmálmstönnum
fyrir trésmíðar.
ÞÓR^
SIMI B15QO-ARMLJLA11
Suðurnes
Auglýsing til eigenda fyrirtækja á Suður-
nesjum.
Ló&askoðun hjá fyrirtækjum á svæðinu er
hafin og er þess vænzt að eigendur og um-
sjónarmenn fyrirtækja taki virkan þátt i
fegrun byggðarlaganna, hver á sinu
svæði, með snyrtilegri umgengni við
fyrirtæki sin.
Heilbrigðisfulltrúinn.