Tíminn - 21.05.1976, Blaðsíða 7
Föstudagur 21. mal 1976
TÍMINN
7
|iiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini|
1 íslenzk stúlka hlýtur |
1 verðlaun í Frakklandi
FB-Reykjavlk. Nú stendur yfir
listsýning i Orley flugstö&inni I
Paris, þar sem sýnd eru lista-
verk eftir erlenda listamenn,
sem dveljast viö nám I Frakk-
landi og hlotið hafa styrk frá
franska rikinu. A þessari sýn-
ingu á ung íslenzk listakona,
Nina Gautadóttir, verk. Er það
ofið teppi, og hefur hiln nii hlotið
fyrstu verðlaun fyrir það. Verð-
launin veita eigendur sýningar-
salanna, þar sem sýningin fer
fram.
Einnig hefur Nina hlotið verö-
laun, bronsverðlaun,fyrirannaö
teppi, sem hún sýndi á stórri
sýningu i Grand Palace i Paris.
Nina stundar nám I Ecole
Nationale Superieure des
Beauxarts, en það er myndlist-
arskóli, þar sem kennd er al-
hliða myndlist. Vinnur Nina nú
að prófverkefni sinu, og er það
stórt teppi. Prófverkefnið er
lokastig námsins I þessum
skóla.
Hér stendur Nlna við vetstoi með einu af teppum slnum I.
=IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII|IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍ
Ndttbólið
FB-Reykjavik. Nú eru aðeins
tvær sýningar eftir á Náttból-
inu, leikriti Maxims Gorki,
sem sýnt hefur veriö I vetur i
Þjóðleikhúsinu. Náttbólið
veröur sýnt á laugardags- og
miðvikudagskvöld. Nokkur
hiutverkaskipti hafa orðið I
leikritinu frá þvl á frumsýn-
ingu. í þeim tveimur sýning-
um, sem eftir eru, mun Bjarni
Steingrlmsson fara með hlut-
verk Ævars R. Kvarans, sem
lék Médvedév lögregluþjón. i
nokkrum stærstu hlutverkum
leiksins eru GIsli Halldórsson,
Róbert Arnfinnsson, Rúrik
Haraldsson, Hákon Waage,
Erlingur Glslason, Bessi
Bjarnason, Sigrún Björnsdótt-
ir, Anna Kristin Arngrims-
dóttir, Herdis Þorvaldsdóttir,
Steinunn Jóhannesdóttir,
Baldvin Ilalldórsson, Gisli Al-
freðsson og Guðrún Stephen-
sen. A myndinni er Gisli Hall-
dórsson I hlutverki föru-
mannsins Lúkasar.
Hjörtur Hjartarson, formaður bygginganefndar Húss
verzlunarinnar, tekur fyrstu skófiustunguna. Timamynd : G.E
* .::x; “1 ¥■
lyi ' ■> t* ■'«. ML'*
- gffigjp 'VJm ’ ***f
„Hús verzlunarinnar"
Fyrsta skóflustungan
tekin ó miðvikudag
F.J. Reykjavik. — Fyrsta skóflu-
stungan að „Húsi verzlunarinn-
ar” var tekin i nýja miðbænum
við Kringlumýrarbraut á mið-
vikudag.
Stofnsamningur fyrir félagið,
Hús verzlunarinnar, var undirrit-
aður 30. des. 1974 af fulltrúum
allra byggingaraöila og staðfest-
ur skömmu siðar af félögunum
með skipun fulltrúa i stjórn
félagsins. Stjórn Húss verzlunar-
innar er nú þannig skipuð, að
hver eignaraðili skipar einn aðal-
mann og annan til vara.
Verzlunarbanki Islands: Þor-
valdur Guðmundsson, Höskuldur
Ölafsson.
Lifeyrissjóður verzlunar-
manna: Bjarni Felixson, Jón Jó-
hannesson.
Verzlunarmannafélag Reykja-
vikur: Hannes Þ. Sigurðsson, Elis
Adolphss.
Félag isl. stórkaupmanna:
Július S. Ólafsson, Arni J. Fann-
berg.
Kaupmannasamtök íslands:
Magnús E. Finnsson, Leifur Is-
leifsson.
Bilgreinasambandið: Geir Þor-
steinsson, Ingimundur Sigfússon.
Verzlunarráð Islands: Hjörtur
Hjartarson, Hjalti Geir Krist-
jánsson.
,,Hús verzlunarinnar” munrisa
i norðvesturhorni nýja mið-
bæjarins nálægt gatnamótum
Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar.
Húsið verður norðan við fyrir-
hugaða yfirbyggða göngu- og
verzlunargötu og tengist henni
með torgi.
Byggingin verður samtals 13
hæðir auk götuhæðar og kjallara,
samtals 13.641 ferm eða 47.051
rúmmetrar. Þar af eru 3.645 ferm
eða 12.757 rúmmetrar bila-
geymslur.
t kjallara undir aðalbygging-
unni verða sameiginlegar
geymslur og tækjabúnaður.
Á götuhæð verða yfirbyggðar
bilageymslur auk þjónustustarf-
semi ýmiskonar undir aðalhús-
inu.
A þaki bilageymslunnar sunnan
aðalbyggingarinnar, myndast
stórt göngutorg er tengist fyrstu
hæð hússins.
Þar verða afgreiðslusalir
banka og lifeyrissjóðs auk
veitingasölu o.fl.
Á annarri til tiundu hæö verða
skrifstofur.
A efstu hæðunum er gert ráð
fyrir aö komi bókaog minjasafn
auk fundarherbergja.
Halda tónleika
ó Raufarhöfn.
í Skjólbrekku
og ó Húsavík
Dagana 22., 23. og 25. mai halda
þau Margrét Bóasdóttir sópran-
söngkona, Kjartan Óskarsson
klarinettleikari og Hrefna Unnur
Eggertsdóttir pianóleikari tón-
leika i félagsheimilinu Hnitbjörg
Raufarhöfn, Skjólbrekku Mý-
vatnssveit og i félagsheimilinu
Húsavik. Tónleikarnir hefjast kl.
21.00, nema á Raufarhöfn, þar eru
þeir kl. 17.00.
A efnisskrá eru sönglög eftir is-.
lenzka og erlenda höfunda, verk
fyrir klarinett og pianó eftir Saint
Saens og Pierné, verk fyrir pianó
eftir Brahms og Debussy og verk
fyrir sópran, klarinett og pianó
eftir Spohr og Schubert.
Kór Öldutúnsskóla fer til Noregs
A föstudaginn 28. mai heldur kór öldutúnsskóia I söngför til Noregs og tekur þar þátt I norrænu barna-
kórakeppninni, sem fram fer I Bergen.
Sunnudaginn 23. mai efnir kórinn til tónleika IHáteigskirkju klukkan 5 siðdegis. Efnisskráin er fjöl-
breytt, m.a. verða frumflutt kórverk eftir dr. Hallgrim Helgason, Pál P. Pálsson og norska tónskáldið
Egil Hovland. Stjórnandi kórsins er Egill Friðleifsson.
Opnunar-
tími
Blómaskóla
Michelsens
Hveragerði
verður
til kl. 7
(kl. 19.00)
alla
daga
sumar