Tíminn - 21.05.1976, Blaðsíða 24

Tíminn - 21.05.1976, Blaðsíða 24
brnado þeytidreifarinn góð vinnslubreidd nákvæmar stillingar einnig f yrir sáningu Guöbjörn Guöjónsson Heildverzlun Siöumúla 22 Simar 85694 & 85295 Saltsteinar fyrir hesta, sauðfé og nautgripi blár ROCKIE hvítur KNZ rauður KNZ SAMBANDIÐ INNFLUTNINGSDEILD Gólf-og ‘ili tf" Nýborg, Ármúla 23 - Sími 86755 Danir taka upþ" sam- band við Kambódiu Keuter. Kaupntannahöfn. — Kikisstjórn Danmerkur ákvað i gær að taka upp stjórnmála- samband viö Kambódiu, eftir þvi sem ulanrikisráðuneytið tilkynnti i Kaupmannahöfn. Búizt er viö að ákvörðun þessi verði gagnrýnd mikið af stjórnarandstöðunni i Dan- mörku, einkum þar sem rikis- stjórn Khrner Rouge var gagnrýnd harkalega i Dan- mörku fyrir skömmu, fyrir ætluð fjöldamorð. Utanrikisráðuneytið skýrði frá þvi i gær að sendiherra yröi skipaður i Kambódlu, en hann myndi ekki verða búsett- ur i' iandinu. Björgunarstörfum að Ijúka i La Coruna Iteuter/NTB, La C'oruna. — Björgunarsérfræðingar von- ast til að lokið verði við að dæla siöustu fimmtán þúsund tonnunum af oliu úr flaki spænska oliuflutningaskipsins Unquiola, ekki siðar en i kvöld. Farmur skipsins var tæp- lega 111 þúsund tonn af hrá- oliu, er það strandaöi við inn- siglinguna i höfnina i La C’oruna á fimmtudag í siöustu viku. Eldar kviknuðu i flaki þess og mikili oliuleki var úr þvi. Strandlengjan umhverfis La Coruna er þakin oliu og talið er að mikið tjón hafi hlotizt á skelfiskrækt sem þar er. Þá hafa spænskir liffræöing- ar gagnrýnt notkun oiiueyð- andi efna við björgunarstörf- in, en þeir segja þau hættu- legri fyrir sjávarlif, heidur en oliuna sjálfa. H£tlfiSHORNA " ÁIVIILLI Fyrstu nákvæniu fregnirnar af jarðskjálftuuum i Sovét Keuter, Moskvu. — Jarð- skjálftarnir á landsvæðum Sovétrikjanna i Mið-Asiu á mánudag i þessari viku, urðu til þess að nú eru um tiu þús- und manns heimilislaus i eyöi- merkurborginni Gazli i Uzbekistan. t lýðveldunum Tadzhikistan og Turkmenia, sem eru nágrannariki Uzbe- kistan, missti fólk lifiðaf völd- um jarðskjálftanna, eftir þvi sem fréttastofan Tass skýrði frá i gær. Tass sagöi að fólkið hefði látiö lifið þegar jarðskjálft- arnir og miklar rigningar komu af stað skriðuíöllum i nokkrum hlutum þessara lýðvelda. Ekki var tekið fram hve margir heföu látizt. Kvikmynd, sem sýnd var i sovézka sjónvarpinu á mið- vikudagskvöld, sýndi að i borginni Bukhara, þar sem um 140 þúsund manns búa, hafi lágrelst hús og einnar hæðar hús hrunið, en hins veg- ar hafi nýlegar ibúðablokkir staðið skjálftana af sér. Útvarpið i Moskvu talaði i gær um „fáein dauðsföll’ af vöidum skjálftanna. Þá var þess getiö aö skriðu- föllin hefðu valdið nokkru eignatjóni. Þetta eru fyrstu fregnir af jarðskjálftunum i Sovét- rikjunum á mánudag, þar sem tekið er fram eitthvaö um tjón, slys og dauðsföll. Þrýst á Breta og íslendinga í Osló í gær: Landhelgismálið vekur einna mesta athygli fréttamanna Reuter, Osló. —Bretar og islend- ingar voru beittir miklum þrýst- ingi i upphafi fyrsta hluta utan- rikisráðherrafundar Nato-rikja i gær, vegna fiskveiðideilu þeirra. Þrýstingur kom frá bæði Odvar Nordli, forsætisráðherra Noregs, svo og frá framkvæmdastjóra NATO, Joseph Luns. I setningarræöu sinni á fundin- um igær sagöi Odvar Nordli með- al annars: — Þaö er persónuleg ósk min, að okkur takist á þessum fáu dögum i Osló aö ná fram skilningi, sem leyst gæti þessi vandamál, en fari svo ekki, þá gætuþau brotið ialgeran bága við grundvallartilgang Nato. — Og dr. Luns sagöi, þegar hann fjallaði um ástand þessara mála nú, að hann vonaði, að samstaða Nato-rikja yrði ekki fyrir áföllum og að samstaða næðist um mála- miðlun, sem gert gæti bandalag- inu kleift að halda einingu sinni. Sagði hann að Bretar og Islend- ingar ættu að geta náð samkomu- lagi, e ins og Vestur-Þjóðverjar og Islendingar gerðu. Landhelgisdeila Breta og Is- lendingaer meðal þeirra málefna sem mesta athygli vekja á ráö- herrafundinum i Osló. 1 fréttum af fundinum i gær segir meðal annars, að Einar Agústsson, ut- anrikisráðherra, hafi lýst þvi yf- ir, að ef deilan verði ekki leyst innan sex mánaöa, muni islenzka rikisstjórnin að öllum likindum tilkynna úrsögn Islands úr Nato. ræn rlki yrðu að halda vöku sinni gagnvart Sovétrikjunum þar. Crosland sagði þetta á fundi, þar sem sambúð austurs og vest- urs var til umræðu, svo og hern- aðarlegt jafnvægi milli NATO og Varsjárbandalagsins. Hann rakti f ræðu sinni innihald viðræðna sinna við kinverska Crosland: Sovéther beint að Vesturveldum að þrem fjórðu hlufum í Evrópu, en fjórðung í Asíu Þá kom fram i viðtali við hátt- settan islenzkan embættismann, að ef dcki tækist að ná árangri I átt til lausnar deilunni á ráð- herrafundinum, þá gæti slikt haft alvarlegar afleiöingar fyrir is- lenzku rikisstjórnina. Anthony Crosland, utanrikis- ráðherra Bretlands sagði I gær á utanrikisráðherrafundinum, að kínverskir leiötogar litu á Evrópu sem helztu gróðrarstíu stjórn- málaátaka I heiminum og vest- leiðtoga fyrir þrem vikum slðan, en hann var þá I Peking. Sagði hann að Kinverjar full- yrtu að þrem fjórðuhlutum her- afla Sovétrikjanna væri beint gegn Vesturlöndum i Evrópu. Fjórðungur væri staðsettur I Asiu, en þeim hluta væri beint gegn Bandarlkjunum fyrst, Japan I öðru lagi, en Kina I þriöja lagi. Sagði Crosland, aö þess vggna álitu Kinverjarnir nauðsynlegt að Nato héldi styrk slnum._________ Engin tengsl milli Berger og leyniþjónustumannsins En v-þýzka utanríkisráðuneytið sagt vera „lekt eins og sigti" Reuter, Bonn. — Lögreglu- og leyniþjónustumenn þeir, sem eru að rannsaka nýjasta njósna- hneykslið I utanrlkisráðuneyti Vestur-Þýzkalands, hertu I gær leit slna aö dularfullum fertugum málara, sem kallar sig Klaus ísraelar haldii sig í fjarlægð og skipti sér ekki af mótmælum Reuter, Tel Aviv. — Israelskir hermenn munu framvegis halda sig i fjarlægð frá mótmælagöng- um — og fundum á herteknu svæðunum á vesturbakka árinnar Jórdan, nema i þeim tilvikum, að óeirðir virðist ætla að trufla um- ferð milli borga, sagði háttsettur israelskur embættismaður i gær. Israelsmenn eru þó ákveðnir i að halda reglu á herteknu svæðunum, og munu ekki leyfa öfgamönnum að ná tökum á ibú- Átta í gislingu Reuter, New Rochelle. — Talið er aö vopnaöir menn haldi átta manns I gislingu I útibúi Barclays bankans I New Rochelle i New York. Lögreglan telur aö mennirn- ir séu vopnaðir byssum. Talsmaður lögreglunnar i New Rochelle sagði að ekki væri vitað hversu margir byssumennirnir væru, né heldur nákvæmlega hvernig þeir væru vopnaðir. — Viö höfum umkringt bygginguna og höfum komið vopnum okkar þar fyrir, sagi talsmaðurinn. Hann sagöi ennfremur, að menn frá alrikislögreglu Bandarikjanna, FBI, væru til aöstoðar f samningaum- leitunum þeim, sem fara fram við mennina i bankan- um. New Rochelle er meðalstór bær, fyrir norðan New York-borg. um þeirra sagði embættismaður- inn ennfremur. Hann sagði ennfremur, að Israelsmenn teldu ekki að um skipulagða áætlun væri að ræða að baki óróans á vesturbakkan- um, þar sem israelskir hermenn hafa skotiö niu Araba til bana sið- ustu fjóra mánuði, en engu að sið- ur væri um „fámennan hóp öfga- sinna” að ræða, sem vildu ná völdunum i sinar hendur þar. Talið er að þessar nýju fyrir- skipanir muni ná til staða svo sem Casbah, sem er elzti hluti borgarinnar Nablus,en þar hefur komið til mikilla átaka undan- farna mánuði. Þrjár manneskjur, þar á meðal sautján ára gömul skólastúlka, hafa verið skotnar til bana i Nablus og gamla borgin þar, Cas- bah, var enn lokuð i gær. Þar gildir einnig útgöngubann enn þá. tsraelski herinn er nú að athuga möguleika á notkun óeirðavopna, sem ekki eru banvæn, svo sem gúmmikúlna og handsprengja sem springa en dreifa ekki sprengjubrotum. Notkun gúmmikúlna getur þó verið vafasöm, þar sem þær geta orsakað mikil meiðsli og talið er að hermennirnir yrðu fljótari til að beita vopnum með þeim en ella. Woehler. Maöurinn, sem leitaö hefur verið i tvo daga, komst hjá hand- töku, þegar öryggislögreglan handtók Helge Berger, trúnaöar- ritara I utanrlkisráðuneytinu, en hún er grunuð um að hafa njósnað fyrir kommúnistarfki um tiu ára skeið. Talið er að Klaus Woehler hafi verið yfirmaöur hennar i njósna- kerfinu. Taliðerennfremur að frú Berg- er hafi verið einn af bezt staðsettu njósnurum Austur-Þýzkalands. Klaus Woehler, njósnarinn, notfærði sér nafn og heimildir um hinn raunverulega Klaus Woehl- er, en hann er málari og er bú- settur á Nýja Sjálandi. Embættismenn öryggisþjón- ustu V-Þýzkalands sögðu I gær, að algengt væri, að njósnarar kommúnistarlkjanna tækju sér nöfn raunverulegra manna er- lendis, til þess að þeir hafi ein- hvernbakgrunnaðdvölsinni iþvi landi sem þeir stunda njósnir sln- ar I. Rannsókn málsins beinist nú einkum að utanrikisráöuneytinu I Bonn og aðalstöövum v-þýzku leyniþjónustunnar fyrir utan Munchen, en yfirmaður einnar deildar hennar, Jurgen von Alten, varrekinnfrá störfum á miðviku- dagskvöld. Rikissaksóknari vildi þó ekki viöurkenna að tengsl væru milli mála hans og Helge Berger. Haft var eftir stjórnmálamönn- um i gær, að Hans-Dietrich Gencher, utanrikisráöherra V-Þýzkalands, hefði af þvl þung- ar áhyggjur að Bonn virtist „lekt sem sigti” þegar njósnir eru ann- ars vegar. Rikissaksóknari hefur ekki enn gefið upp hvaða rikisleyndarmál hafa verið afhent A-Þjóðverjum, en talið er að mál Berger sé að mörgu leyti sambærilegt viö mál Guenther Guillaume, njósnarans, sem varð tilþess aö Willy Brandt, fyrrverandi kanslari neyddist til að segja af sér fyrir tveim árum. Frú Berger hefur viðurkennt að hafa þekkt mann þann sem notaði nafnið Klaus Woehler, frá þvi hún var i Varsjá, sem ritari yfir- manns viðskiptasendinefndar V-Þýzkalands þar. Indverjar sárir Kanada- mönnum vegna bannsins Reuter, Nýju Delhi,— Rikisstjórn Indlands mótmælti i gær harölega þeirri ákvörðun rikisstjórnar Kanada, að Kanada myndi ekki veita Indverjum meiri aðstoð i sambandi við þróun kjarnorku- tækni. Var gefið i skyn, að ákvörðun þessi gæti haft slæm áhrif á sam- bandið milli rfkjanna tveggja. Yeshwantrao Chavan, utan- rlkisráðherra Indlands sakaði Kanadamenn um aö ganga á bak orða sinna og brjóta samninga milli rlkjanna. Talsmaöur Kanada svaraði þvi til I gær, að ákvörðun þessi væri ekki brot á samningi, þar sem skjöl þau sem um ræöir séu fyrst og fremst greinargerð um stöðu rlkjanna gagnvart hvort öðru. Kanadamenn, sem frestuðu allri aðstoð við Indverja eftir að þeir sprengdu kjarnorkusprengju áriö 1974,tilkynntuaö þeir myndu ekki hefja á ný sendingar á tækni- upplýsingum og útbúnaöi til Ind- lands, þar sem ekki hefði reynzt unnt að ná fullnægjandi sam- komulagi um tryggingu á þvl að upplýsingar og tæki frá Kanada yröu ekki notuð til smiöa á kjarn- orkusprengjum. Ólfklegt er talið að þetta leiði til stjórnmálasambandsslita, en engu aö siður gætu áhrifin á sam- búð rikjanna oröið slæm. Indland á þegar fjögur kjarn- orkuver, sem eru oröin starfhæf eða eru I byggingu, en taliöer aö stærsti hluti þeirrar aðstoðar, sem þeir hafa þegið, hafi komið frá Kanada. Bandarikin, Frakkland og Vestur-Þýzkaland hafa einnig að- stoðað Indverja á þessu sviöi, en nýlega var stöðvuð sending á uranium frá Bandarlkjunum, BARUM BREGST EKKI | Jeppa I hjólbaröar I Kynnið ykkur hin hagstæðu verð. TÉKKNESKA BIFRE/ÐAUMBOÐ/ÐI Á ÍSLANDI H/E AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.