Tíminn - 01.06.1976, Side 20
20
TÍMINN
Þriðjudagur 1. júni 1976.
Útboð
Olíumöl h.f. Hamraborg 7, Kópavogi ósk-
ar hér með eftir tilboðum i akstur á stein-
efnum úr námu i Rauðamel við Grinda-
vikurveg að blöndunarstöð Oliumalar h.f.
i Smárahvammslandi i Kópavogi.
Útboðsgögn afhendast á skrifstofu Oliu-
malar h.f.
Tilboð sendist Oliumöl h.f. fyrir kl. 14
föstudaginn 4. júni n.k.
Oliumöl h.f.
Unglinganámskeið
í áhaldafimleikum •
að Laugarvatni
Dagana 22.-25. júnl gengst FSt fyrir fimleikanámskeiði I
tþróttamiðstöð tSt að Laugarvatni.
Námskeiðið er ætlað fyrir stúlkur og pilta sem eru að æfa
þrep 1-3 i f imleikastiganum.
Kennarar verða tveir.
Þátttökugjald er kr. 6000.00 auk fargjalds
Þátttökuþarfað tiikynna fyrir 10. júni innritun er á skrif-
stofu tSt I sima 83377 og hjá formanni námskeiðsnefndar
FSt, Ástbjörgu Gunnarsdóttur I slma 33290 hún gefur einn-
ig nánari upplýsingar.
Fimleikasamband íslands.
Góðar kýr til sölu
að Svarfhóli, Hvalfjarðarstrandarhreppi.
Upplýsingar ekki gefnar i sima.
Vöruflutningamenn
Til sölu er GMC Astro vörufiutningabif-
reið, árg. 1973, ekin 95 þús. km, hlass-
þyngd 13 tonn. Bifreiðin er i mjög góðu
ásigkomulagi og verður til sýnis bak við
Hótel Esju i dag.
Upplýsingar gefur Marteinn Karlsson i
simum 93-6238 og 93-6252, Ölafsvik.
..
Lesendur
segja:
„Hvers vegna fá okkar
fremstu skákmenn
ekki listamannalaun?"
G.S. skrifar:
Við tslendingar höfum státað
okkur af þvi að eiga mjög fram-
bærilega skákmenn, og ávallt
erum við hreykin af stór-
meisturunum okkar, Friðriki
Ólafssyni og Guömundi Sigur-
jónssyni, sem báðir verða að
teljast með fremstu skákmönn-
um heimsins.
Báðir þessir merku skákmenn
hafa nú gert skáklistina að at-
vinnu sinni, enda verða þeir að
einbeita sér að skákinni til þess
að ná góðum árangri á alþjóða-
skákmótum, þar sem allir
keppendur eru atvinnumenn.
Það er ekki hægt að loka aug-
unum fyrir þvi að forsenda þess
að menn nái góðum árangri á
alþjóðaskákmótum er að miklu
leyti undir þvi komið hvort
menn fá tækifæri til þess að ein-
beita sér algjörlega að skákinni,
eða stunda skákiökanir að
kvöldlagi og um helgar, eftir
stranga vinnu. Dæmi um þetta
sjáum við alls staðar I Iþróttum
og gildir það sama um skákina.
Það er að minum dómi
skömm fyrir íslendinga,að hafa
ekki fyrir löngu gefið Friðriki
Ólafssyni tækifæri til þess að
helga sig skákinni, þvi aö það er
samdóma álit allra, að hann er
afburðamaður á þessu sviöi. En
I mörg ár varð Friðrik að stunda
skáklistina eins og hvert annaö
tómstundagaman að loknum
erfiðum vinnudegi.
Skák er mjög vinsæl hér á
landi, og nú eigum við mikið af
mjög efnilegum skákmönnum.
Ég vil varpa fram þeirri spurn-
ingu, hvort ekki sé rétt að gefa
nokkrum af okkar efnilegasta
skákfólki tækifæri til þess aö
helga sig skákinni. 1 þessu sam-
bandi vil ég nefna það, að Ulf
Anderson, hinn kunni skákmað-
ur Svla, fær listamannalaun,
sem gerir honum kleift að helga
sig skákinni. Gætum viö ekki
notað sömu aðferð?
Skák er af mörgum talin til
lista — og alla vega virðast Svi-
ar lita svo á, að skák sé listgrein
— og það beri að veita styrk til
þeirra sem ná góðum árangri á
þvi sviði. Arlega er veitt opinber
laun til listamanna, og ákveöur
sérstök úthlutunardeild lista-
manualauna hver fái laun
hverju sinni. Um mat þeirra
hafa alltaf verið skiptar skoðan-
ir og verða alltaf, þvl að ekki er
hægt aö nota neina algilda
mælistiku á list. Mig langar til
þess að spyrja þá menn, sem I
þessari ágætu nefnd starfa,
hvort það hafi aldrei hvarflað að
þeim að úthluta launum til
skákmanna.
Ef það er vilji okkar ungu og
efnilegu skákmanna, s.s. Helga
ólafssonar og Margeir Péturs-
sonar, að helga sig skákinni
(um það veit ég að vísu ekkert)
þá teldi ég það vera mjög
miður, ef þeir fengju ekki tæki-
færi til þess af fjárhagsástæð-
um.
Ég tel það engum vafa undir-
orpiö, að styrkur frá opinberum
aðilum til handa skákmönnum
myndi mælast vel fyrir hjá al-
menningi.
A
Frá gagnfræðaskólum
Kópavogs
Innritun nemenda næsta vetrar i Þing-
hólsskóla og Vighólaskóla fer fram
fimmtudaginn 3. júni n.k. kl. 10—12 og
14—16 I skólunum.
Innritun þessi nær aðeins til þeirra, sem
ekki hafa þegar látið innrita sig. Innritað
verður bæði i skyldunámsdeildir og fram-
haldsdeildir, þar sem gefinn verður kostur
á kjörsviðum eftir þvi sem þátttaka leyfir.
Skólaskrifstofan i Kópavogi.
Hemlahlutir í flestar
gerðir bifreiða frá
Japan og Evrópulöndum
Stýrisendar í brezkar ,
vöru- og fólksbifreiðar
og dráttarvélar
33LOSSI?--------------
Skipholti 35 • Simar:
8-13-50 verzlun -8-13-51 verkstæöi ■ 8-13-52 skrifstofa
y 33LOSSI?
Skipholti 35 • Simar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
-
AAargrét frd Dalsmynni:
„í málæðinu er mesta harka
þótt marga skorti getuna"
Dalsmynni 15/5 1976
Póstsamgöngur eru ekki greiðar hér á Snæfells-
nesi, ég var farin að álita, að þið þyrðuð ekki að
birta bréfið mitt en svo kom það i gær.
Ég get ekki orða bundizt þegar þingmenn okkar
leyfa sér að eyða mörgum dögum á fárra ára
fresti I jafn nauðaómerkilegt mál og Z-una, þenn-
an útlenda, úrelta og óþarfa staf, hann er orðinn
þjóðinni dýr, utan allra leiðinda, sem hann hefur
valdið. Ég álit að langskólagengiðfólk eigi að geta
sýnt yfirburði án þess að hafa sérstakan stimpil.
Ég sendi þingmanni, sem barðist við að vekja Z-
una upp frá dauðum um árið, þessar stökur, og
leyfi ykkur að birta þær, og einnig nokkrar I viðbót
sem eru settar saman eftir siðustu Z-fréttir.
í málæðinu er mesta harka,
þó marga skorti getuna.
Alþingismenn ætla að þjarka,
endalaust um Z-una.
Þó að þeir eflaust allir vilji,
efla menningu og frið.
Þeir eru að vona að þjóðin skilji,
hvað þingmenn eru menntað lið.
Þetta er ekki ærlcg glima,
aðeins snobb og fánýtt hjal.
Dýrmætum og dýrum tlma,
drengir eyða I þetta mal.
Merkismálin mega ei dragast,
þó mörgum þyki vinnan ströng.
Um Z-una mættuð seinna jagast,
syfjaðir I timaþröng.
Mér fannst þetta þá, en nú finnst mér ódrengi-
legt að berja þetta fram af sliku offorsi á siðustu
stundu, að kennurum, nemendum og öðrum sem
eru á móti þessum málflutningi, vinnst ekki tlmi
til andmæla. Þetta er i lagi með gömlu þingmenn-
ina sem eru búnir að vera, hvort sem er, en þeir
yngri ættu að athuga, að unglingarnir, sem verið
er að hrella að óþörfu verða bráðum kjósendur.
i landhelginni Bretar berjast,
og beita her við seiða dráp.
Þjóöin á I vök að verjast,
verður að sýna þrek og táp.
Þjóðarskúta á æstum öldum,
illa stödd við skuldalón.
brýzt hún um á báruföldum,
blindsker geta unnið tjón.
Z-u stimpill menntamanna,
margan áður hafði glatt.
Ef yfirburði átti að sanna,
var ekki nóg að borga skatt.
Mörgum öldnum íslendingi,
á þvl finnst ei nokkurt lag.
Að Z-u menn á þessu þingi,
þvæla um málið nótt og dag.
Um smámál þingmenn þjarka og þæfa,
þegar vanda að höndum ber.
Stóru málin salta og svæfa,
Z-an þeirra hugsjón er.
Margrét I Dalsmynni.