Tíminn - 31.08.1976, Qupperneq 1
Áætlunarstaðir:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavik
Hvammstangi — Stykkishólm-
ur — Rif Súgandaf j.
Sjúkra- og leiguflug um allt
land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Sfjórnlokar
Oliudælur
Olíudrif
Síðumúla 21
Sími 8-44-43
Nordli meðmæltur láni
til Grundartangaverksmiðju
Norski forsætisráðherrann, Odvar Nordli, ásamt tveim förunauta sinna, Paul Engstad ráðuneytis-
stjóra og Eivind Bolle fiskimálaráðherra. — Timamynd: Róbert.
íslenzku ferðamennirnir f Dublin:
við óþægindi
Sluppu
—hs-Rvik. Eins og skýrt hefur
verið frá, voru mikil spellvirki
unnin i Dublin á irlandi i
fyrrinótt, þegar eldsprengjur
sprungu i 4 krám, 3 kvikmynda-
húsum og 2 ibúðarhúsum i mið-
borginni. Engin slys urðu á fólki,
en eignatjónið er metið á eina
milljón pund, að sögn ólafiu
Sveinsdóttur, fararstjóra Sam-
vinnuferða, sem kom til Dublin I
gærmorgun, þegar sprengingarn-
ar voru afstaðnar, með tæplega
180 manna hóp islenzkra ferða-
manna.
Ólafia sagði, að afskaplega litið
væri rætt um þetta i borginni, en
greinileg væri talsverð spenna i
fólki. Þeir einu sem sýndu ein-
hver veruleg óttaviðbrögð væru
skyldmenni fslenzku ferðalang-
anna, sem ekki höfðu fengið ljós-
ar fréttir af þvi hvernig þeim
reiddi af. Ólafia sagði, að engin á-
stæða væri til að óttast, þvi að
sprengjunum væri greinilega
ekki ætlað að springa meðal fólks
í dag
Aðalfundur
Stéttar-
sambands
bænda
— bls. 3
16. þing SUF
— bls. 3
og auk þess væri þetta i allt öðr-
um borgarhluta en þar sem Is-
lendingarnir dvelja.
Ólafi'a sagði i gær, að þau i
ferðahópnum hefðu ekki séð af-
leiðingar sprenginganna ennþá,
en meiningin væri að fara og
skoða þær undir kvöldið.
— Það sem vakir fyrir þessum
Gsal-Reykjavik. — Við fórum
margsinnis á kaf, þegar við vor-
um að reyna að setjast á krókinn
hjá þyrlunni, og vorum alveg aö
drepast úr kulda, sagði Valgeir
Sveinsson skipstjóri á Tjaldi
EA-175 frá Vestmannaeyjum,
sem sökk um 13 sjómilur út af
Krisuvikurbjargi á sunnudags-
morgun.
A Tjaldi voru þrir skipverjar,
Valgeir Sveinsson skipstjóri,
Gisli Guðjónsson og Gisli Val-
geirsson. Þeim var bjargað um
borð i þyrlu varnarliðsins.
— Ég veit ósköp litið um það,
hvernig þetta gerðist, sagði Val-
geir, en þegar við fórum eina
ferðina til þess að lita eftir vélinni
kom i ljós mikill leki i vélarrúm-
inu. Það hefur sennilega verið um
10 leytið. Um 11 leytið sá ég að
þetta var alveg vonlaust, og kall-
aði á hjálp.
Slysavarnafélagið bað þegar
alla nærstadda báta að koma
skipverjum á Tjaldi til aðstoðar,
auk þesssem beðið var um aðstoð
varnarliðsins, sem sendi þyrlu til
skipsins.
— Okkur gekk vel að komast i
gúmmibjörgunarbát, en hins veg-
mönnum er eyðilegging á mann-
virkjum, en ekki manndráp,
sagði Ólafia að lokum, og bætti
þvi við að tæpast væri nokkur á-
stæða til að óttast um velferð
ferðahópsins, þrátt fyrir það, að
Evening Press hafi sagt á forsiðu
i gær, að búast mætti við fleiri
sprengingum.
ar gekk okkur mjög illa að koma
gúmmibátnum frá Tjaldi, þvi
báturinn hraktist alltaf að skip-
inu. Það vildi bara svo vel til að
Tjaldur lagðist á stjórnborössið-
una, annars hefði hann lagzt ofan
á okkur, sagði Valgeir.
Tjaldur fylltist á fjórum tii
fimm timum, að sögn Valgeirs,
og gefur það góða hugmynd um
það hversu mikill lekinn var.
Þegar þyrla varnarliðsins kom á
vettvang áttu skipverjar i' erfið-
leikum með að komast á krókinn
frá þyrlunni og fóru margsinnis i
kaf. Um svipað leyti og skipverj-
arnir komust um borð í þyrluna
sökk Tjaldur í djúpið.
Flogið var með skipverjana til
Reykjavikur og hresstust þeir
fljótt eftir að hafa fengið þurr föt
og farið i heitt baö i húsi Slysa-
varnafélagsins.
— Mig langar að biðja Timann
um aðkoma á framfæri þakklæti
til Bandarikjamannanna, sem
björguðu okkur, og Slysavarnafé-
lagsins, þar sem tekið var yndis-
lega á móti okkur og við klæddir
upp, sagði Valgeir að lokum.
Tjaldur var 53 tonn. Skipið var i
þessum mánuði keypt til Vest-
mannaeyja frá Dalvik.
Aðstoð boðin við
SJ-Reykjavik. Norömenn eru
reiðubúnir til að miöla okkur af
reynslu sinni ef oliuleit verður
hafin hér við land. Þetta kom
fram á blaðamannafundi Odvars
Nordli forsætisráðherra Noregs i
gær, en heimsókn hans hér á landi
lauk I morgun. Nordli kvað is-
lenzka ráðamenn hafa bryddað
upp á þessu máh I viðræöum hans
við þá hér og hefði svar sitt fyrir
hönd rikisstjórnar Norömanna
verið jákvætt. tslendingar ættu
hins vegar eftir að útUsta nánar
hvað þeir vildu hagnýta sér af
reynslu Norðmanna af oliuborun-
um, og ekkihefði verið tekið fram
hvort hér væri bæði um tæknilega
og stjórnmálalega reynslu að
ræöa.
Nordli kvaðst ánægður yfir, að
hafa komið til tslands i sina
fyrstu opinberu heimsókn sem
forsætisráðherra. Ekki hefði
verið sérstök ástæða fyrir
heimsókninni enda þyrfti þess
ekki þegar þessar tvær frænd-
þjóðir færu að finna hvor aðra.
Hann sagðist hafa kynnzt náttúru
landsins og atvinnulifi. Geir
Hallgrimsson forsætisráöherra
og hann hefðu átt fróðlegar
umræður um stjórnmál og
alþjóðamál, sem snertu báðar
. þjóðirnar.
Þeir hefðu m.a. rætt um út-
færslu fiskveiðilögsögu og haf-
réttarmál, og horfur i þróun fisk-
veiða og fiskiðnaðar. Norðmenn
og Islendingar væru hvorir
tveggja töluverðar fiskútflutn-
ingsþjóðir og hefðu hagsmuna að
gæta á sömu mörkuðum.
Þá ræddu ráðherrarnir stjórn-
málasamvinnu i iðnaðar og orku-
málum. M.a. fjölluðu þeir um
fyrirhugaða samvinnu að
Grundartangaverksmiðjunni, og
kvað Nordli málum þannig
háttað, að sú samvinna gæti orðið
að raunveruleika. Hann kvaðst
hlynntur þvi að Norræni fjár-
festingarbankinn veitti háttlán til
verksmiðjuframkvæmdanna, en
það væri einmitt i verkahring
þess banka að styðja framkvæmd
sem þessa.Einnig kæmitil greina
að tslendingar færu fram á út-
flutningsivilnanir af hálfu Norð-
manna vegna málmblendisfram-
leiðslunnar, en þeir hefðu ekki
farið fram á neitt slikt ennþá, en
gerðu þeir það, myndi hann lita á
málið með velvilja.
Nordli kvaðst einnig hafa rætt
sameiginleg áhugamál
þjóðarinnar innan alþjóðasam-
taka við Geir Hallgrimsson. Von-
andi hefðu viðræður þeirra orðið
til að auka enn þann skilmng, sem
rikti milli þjóðanna og búa i hag-
inn fyrir að framvegis yrðu
vandamál leyst á þann hátt, sem
yrðu báöum þjóöunum til góðs.
Nordli kvað Norömenn
myndu halda áfram þeirri stefnu
sinni að tryggja fiskimönnum
jafnar tekjur með rikisstyrkjum,
það væri hluti fiskveiðistefnu
stjórnarinnar. Honum væri ljóst
að þessir styrkir orsökuðu
stundum aukna samkeppni milli
norskra og islenzkra fiskútflytj-
enda. Það hefði þó aldrei veriö
vilji norskra stjórnvalda aö skaða
islenzkt efnahagslif. Það væri
vilji þeirra að finna leið til að
draga úr óhagstæðum áhrifum af
þessum styrkjum fyrir tslend-
olíuleit
inga. Embættismönnum héöan
hefðu nú verið boðið tii Noregs að
kynna sér þessi mál og stefnu
Norðmanna i fiskveiðimálum.
Nordli kvað aukinn útflutning
islenzks kindakjöts til Noregs
hafa komið til umræöu hér. Þar
væri um hliðstætt vandamál að
ræða, þvi útflutningsbæturnar á
kjötið orsökuðu óeðlilega sam-
keppni við norska kindakjöts-
framleiöendur.
Ráöstefnu æðstu manna um
nánari samvinnu landanna innan
EFTA, sagöi Nordli æskilega, ef
ákveðin stefna yrði mörkuð fyrir-
fram. Það væri óhugnanleg stað-
reynd að 4% verkamanna i
Evrópu væru atvinnulausir.
Eivind Bolle fiskveiðiráðherra
sagði á blaðamannafundinum aö
meðan á opinberu heimsókninni
stóð hefði verið rætt um sam-
vinnu Norðmanna og tslendinga
Framhald á bls. 19.
í gæzluvarðhaldi
vegna morðsins:
Neitar
allri
aðild
Gsal-Reykjavik. — A laugar-
daginn var maður um fertugt úr-
skurðaður i allt að 30 daga gæzlu-
varðbald vegna rannsóknar á
morðinu, sem framið var I húsinu
númer 26 við Miklubraut á
fimmtudaginn. Maður þessi var
handtekinn á föstudag, og hefur
hann ekki getað gefið viðhlitandi
upplýsingar um ferðir sínar
umræddan dag. Maðurinn þekkti
til hús"áöenda á Miklubraut 26.
Að sögn rannsóknarlögreglunn-
ar neitar maöurinn allri aðild að
málinu. Þessi maður var á s.l.
vetri handtekinn, grunaður um
stórþjófnað i vélsmiðjunni Héðni i
Reykjavik, en ekki tókst lögregl-
unni að sanna sekt hans i þvi
máli.
A sunnudagskvöld var annar
maður tekinn til yfirheyrslu
vegna morðmálsins, en til hans
hafði sézt á fimmtudaginn, þar
sem hann var að þvo af sér blóð á
almenningssalerni. Rannsóknar-
lögreglan sleppti þessum manni
úr haldi i gær, en hann gat fylli-
lega gert grein fyrir ferðum
sinum á fimmtudaginn.
Komið hefur fram i álití lækna,
að morðið hafi allt eins getað
verið framið um hádegisbilið á
fimmtudag og þvi biður
rannsóknarlögreglan alla þá, sem
einhverjar upplýsingar geta gefiö
um mannaferöir við Miklubraut
26 um það leytí að gefa sig fram.
Að lokum skal þess getið aö föt-
in, sem fundust á Miklatúni og
mynd var birt af i Timanum á
sunnudaginn, reyndust alls
óskyld morðingjanum. Eigandi
fatanna kom og sótti þau til
rannsóknarlögreglunnar og
reyndist hann ekkert viðriðinn
málið.
Tjaldur sökk á sunnudaginn:
„ÉG SÁ ÞAÐ
VAR VONLAUST"