Tíminn - 31.08.1976, Síða 20
Þriðjudagur 31. ágúst 1976.
FÓÐURVÖRUR
þekktar
UM LAND ALLT
fyrir gæði
Guöbjörn
Guöjónsson
Heildverzlun Siðumúla 22
Simar 85694 & 85295
/
t
Auglýsingasími
Tímans er
ALLAR TEGUNDIR-
FÆRIBANDAREIMA
FYRIR
/Lárétta
/ færslu
Einnig: Færibandareimar ur
ryöfríu og galvaniseruöu stáli
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
40088 a* 40098 ____
Flóttamönnum fró
Vietnam bjargað
Reuter Singapore.— Tuttugu og
tveim flóttamönnum frá Viet-
nam., þar á meöal nokkrum
ungum börnum, var bjargað af
litlum bát, fáeinum minútum
áður en hann sökk, um fjögur
hundruð milur suöur af Viet-
nam, að þvi er talsmaður
eigenda skipsins sem bjargaöi
þeim skýrði frá i gær.
Flóttamönnunum var bjargað
á sunnudag, en þá voru öldur
farnar að ganga inn i bát þeirra,
sem var þrjátiu fet að lengd.
Meöal flóttamannanna var
tveggja mánaöa gamalt barn.
Björgunarskipið, Lady
Cynthia, flutti flóttamennina til
Singapore, þar sem það er nú i
höfn. Þeir voru allir við góða
heilsu.
Vietnamarnir voru i gær enn
um borð i björgunarskipinu, en
yfirvöld voru þá að ákveða hvaö
gera ætti við þá.
Ekki var að fullu ljóst hvers
vegna bátur þeirra sökk, en
talsmaður björgunarskips-
eigendanna sagði aö hugsanlega
heföi komið leki aö honum
vegna ofhleðslu.
Hópar fólks, aðallega fiski-
menn og fjölskyldur þeirra,
hafa flúið frá Vietnam siðan
kommúnistar unnu þar
hernaðarsigur sinn á siðasta
ári.
Flestir flóttamannanna hafa
farið til Thailands, Malaysiu og
Filippseyja.
Þegar til flóttamannanna
tuttugu og tveggja sást voru
þeir i nánd við Anambas-eyjar,
um hundrað og fimmtiu milur út
af strönd Malaysiu.
— .Undir venjulegum
kringumstæðum er átta manna
áhöfn á Lady Cynthiu, svo
þröngt var um flóttamennina,
sagði talsmaður eigenda henn-
ar.
Talið er hugsanlegt að yfir-
völd i Singapore verði treg til aö
taka við flóttamönnunum. Þau
hafa neitao að heimila sinu fólki
langdvöl i Singapore, jafnvel
þegar flóttamannastraumur
var mikill frá suöur-Vietnam,
fyrir sigur kommúnista þar.
Talsmaður hersins f Kota
Kinabalu, i Austur-Malaysiu
sagði i gær, að lögreglan i
Malaysiu hefði fylgt tveim bát-
um, sem i voru fimmtiu Dótta-
menn frá Vietnam, út á alþjöð-
lega siglingaleið, eftir að bát-
arnir hefðu átt stutta viðdvöl i
höfn i Malaysiu siðastliðinn
laugardag.
Talsmaðurinn sagöi að yfir-
völd i Malaysiu hefðu byrgt bát-
ana upp með matvælum og
vatni.
Amnesty International:
Fara fram á rann
sókn í Namibíu
Reuter, London. — Mannrétt-
indasamtökin Amnesty Inter-
national sendu i gær John
Vorster, forsætisráðherra Suður-
Afriku, skeyti þar sem þau fórú
fram á alþjóðlega rannsókn á
ásökunum þeim sem birzt hafa i
brezku dagblaði um að hermenn i
stjórnarher S-Afriku hafi framið
mikil grimmdarverk i Namibiu
(Suð-vestur-Afriku).
Dagblaðið Guardian hafði i gær
eftir manni sem þaö kallaði
„áskrifanda” i S-Afriku fréttir af
aögerðum gegn skæruliðum i
norðurhluta Nambiu i mai og júli.
Askrifandinn, Bill Anderson i
Höfðaborg, sagði frá barsmiðum,
pyntingum með vatni, raflostum
og vindlingabruna.
I yfirlýsingu Amnesty Inter-
national segir meðal annars: —
Meö tilliti til skrifa i brezku dag-
blaði i dag, fer Amnesty Inter-
national virðingarfyllst fram i
rannsókn af hálfu óháðrar og
alþjóðlegrar nefndar, á ásökun-
um um hóphandtökur og pynting-
ar i norðurhluta Namibiu af hálfu
sérstakrar sveitar fótgönguliðs
frá Suður-Afriku.
Talsmaður Amnesty bætti þvi
við i gær að samtökin hefðu hvað
eftir annað á undanförnum árum
fengið fregnir af þvi, að yfirvöld i
S-Afriku beittu pyntingum til þess
að knýja grunaða i Namibiu til
játninga.
Talsmaður Þjóðarhreyfingar
suð-vestur Afriku (SWAPO) i
London, en hreyfing þessi berst
fyrir sjálfstæöi Namibiu, gaf i
gær út yfirlýsingu þar sem
ásakanir Anderson eru staðfest-
ar.
Flyzt fró
Sovét
Hollenzka þingið ókvað að
sleppa Bernhard með skrekk
Reuter, Haag.— Hollenzka þingið
felldi i gær með yfirgnæfandi
meirihluta kröfu vinstri-sinnaðra
þingmanna um að höföað verði
sakamál á hendur Bernhard
prins, eiginmanni Júliönnu
drottningar, fyrir aðild hans að
Lockheed mútuhneykslinu.
I umræöunum um málið, sem
var sjónvarpaö, fordæmdu leið-
togar allra helztu flokka sam-
steypustjórnar landsins og
stjórnarandstöðunnar tengsl
drottningarmannsins við banda-
Krefjast
réttlætis
Reuter, Genf. — Heimssam-
band lútherstrúarm. sem i
eru um fimmtiu og fimm
milljónir lútherstrúarmenn,
hvatti i gær stjórnvöld i
Suður-Afriku að koma að
nýju á réttlæti i landinu, eða,
að öðrum kosti, standa
frammi fyrir vaxandi of-
beldi, sem ná myndi til alls
suðurhluta Afriku.
t opnu bréfi til John Vorst-
er, forsætisráðherra
S-Afriku, segir forséti
heimssambandsins, Miko
Juva, að fólk um viða veröld
fyndi til hryllings vegna
dauðsfalla, grimmdarað-
gerða og brota á mannlegri
virðingu, sem af fréttist á
hverjum degi
— Leiðrétting á óréttlæti
þessu nú þegar getur komið i
veg fyrir öldu ofbeldis, sem
að minnsta kosti mun steyp-
ast yfir alla þá sem búa á
þeim svæðum sem ofbeldið
hefur áhrif á nú, segir dr.
Juva.
— Rikisstjórn S-Afriku ber
ábyrg) á stefnu sem sönnuð
hefur verið sem ósiðleg,
óréttlát og ónothæf. Þér,
herra Vorster, hafið hneppt i
fangelsi eða hrakið i úÚegð
þá leiðtoga sem mest hefðu
getað hjálpað viö að binda
endi á ofbeldiö og byggingu
betri framtiöar, bætti hann
við.
risku flugvélaverksmiðjurnar og
lýstu sig að fullu samþykka þeirri
niðurstöðu rikisstjórnarinnar að
hann hefði með þeim skaðað
hagsmuni Hollands.
Afhjúpanir þær sem felast i
skýrslu rannsóknarnefndarinnar,
sem forsætisráöherra Hollands
skipaði til þess að fara ofan i kjöl-
inn á tengslum prinsins við Lock-
heed, hafa vakið hneykslisöldu i
Hollandi, sem svipar mjög til við-
bragða Bandarikjamanna við
Watergatemálinu á sinum tima.
Leiðtogar flestra stjórnmála-
flokka landsins sögöu hins vegar i
gær að þeir væru sammála Joop
den Uyl, forsætisráðherra, um að
höfða sakamál á hendur prinsin-
um gæti orðið til þess að Júlianna
drottning afsalaði sér krúnunni
og stjórnarfarskreppa kæmi upp i
landinu.
Flestir leiðtoganna sögðu að
þeir teldu grundvöll til höfðunar
sakamáls fyrir hendi, en nauðsyn
þess að viðhalda konungdæmi
Hnllands og komast hjá þvi að
drottningin færi frá væru mun
þyngri á metunum. Drottningin
Reuter, Wellington. — Rikis-
stjórn Nýja Sjálands tilkynnti i
gær að hún hygðist koma á lög-
um, sem takmarka myndu rétt
verkalýðsfélaga til þess aðefna
til pólitiskra verkfaUa.
Þetta var túkynnt eftir verk-
faU sjómanna og hafnarverka-
manna i Wellington, en til þess
var boðað vegna heimsóknar
bandariska herskipsins Trux-
tun, sem er kjarnorkuknúið, til
Nýja Sjálands. Verkfallið lam-
aði höfnina i Wellington og
stöðvaði þjónustu ferjunnar
milli Norður og Suðureyjanna,
þannig að þúsundir ferðamanna
urðu strandaglópar.
Peter Gordon, verkalýðs-
málaráðherra, sagði frétta-
er mjög vinsæl meðal þegna
sinna.
Hans Wiegel, leiðtogi Frjáls-
lynda flokksins, sem er helzti
stjórnarandstöðuflokkur
Hollands nú, skipaði sér i fylkingu
með öðrum þingbræðrum sinum,
með þvi að lofa rikisstjórnina
fyrir heiðarleika hennar i þvi að
birta skýrsluna. Endranær er
mönnum að löggjöf þessi myndi
meðal annars fela i sér háar
fjársektir sem lagðar yrðu á
verkalýðsfélög sem boða U1
ólöglegra verkfallsaögerða.
Hann sagði aö verkfallið i
Wellingtonhöfn hefði ekki verið
i neinum tengslum við launa-
mál, vinnuaðstæður eða annað
það sem verkalýösfélög með
réttu eiga að hafa afskipti af.
Orsakir þess heföu verið utan-
rikismál.
— Það er ekki verkalýösfé-
laganna að taka af rikisstjórn-
inni valdið til að ákveða utan-
rikisstefnu landsins, sagði hann.
Robert Muldoon, forsætis-
ráðherra, sem áður fyrir-
skipaöi flugvélum flughersins
Wiegel harður gagnrýnandi á
allar gerðir samsteypustjórnar-
innar.
Wiegel sagðist vera den Uyl
sammála um að prinsinum hefði
þegar verið refsað nægilega og
hvatti til þjóðlegrar samstöðu og
pólitiskrar varfærni.
Hann benti á að Bernhard prins
hefði þegar verið neyddur til að
segja af sér öllum embættum sin-
um i viöskiptalifi landsins og i
hernum, þar á meðal stööu æðsta
yfirmanns hersins, sem hann
hefur gegnt siðan i lok siöari
heimsstyrjaldarinnar.
Hann fór fram á að prinsinum,
sem er sextiu og fimm ára
gamall, verði gefið færi á að
endurvinna traust þjóðarinnar.
Eina krafan um höföun saka-
máls á hendur prinsinum kom frá
flokki friöarsinna sósialista
(PSP) sem erá móti konungdæmi
i Hollandi. Leiðtogar þess flokks
hafa sakað rikisstjórnina um að
reka tvenns konar refsikerfi i
landinu, annað fyrir venjulega
borgara, en hitt fyrir fjölskyldu
drottningar.
að hjálpa ferðamönnum og
flytja vörur sem ferjuverkfallið
stöðvaöi, sagði i Auckland i
gærkvöldi: — Við ætlum að gera
það að lagabroti, að boða til
pólitiskra verkfalla og senda
reikninginn af þvi til verkalýðs-
félaganna. Ef félögin ekki
greiða hann, þá munum við
sækja féð tU einstakra félaga i
þeim.
Forseti Verkalýðssambands
Nýja Sjálands, Tom Skinner,
sagði að refsingar þær sem
áætlaðar væru myndu mæta
andstöðu.
— Verkalýðsfélög eiga að
sinna velferð, vinnuumhverfi og
öryggi félaga sinna — ekki að-
eins launum og vinnuaöstæö-
Reuter, Moskvu,— Listmál-
arinn Igor Sinyavin, leiðtogi
óopinberu listamannahreyf-
ingarinnar i Leningrad, sem
blómstrað hefur undanfarin
tvö ár, sagði i gær, að hann
væri búinn að fá heimild til
þess að flytjast til vestur-
landa.
Synyavin, sem er þrjátiu
og niu ára gamall, sagði að
yfirvöld hefðu skipað sér að
yfirgefa Sovétrikin, ásamt
eiginkonu sinni og tveim
börnum, fyrir 22. september.
I mai var honum neitað um
heimild til þess að flytjast til
Bandarikjanna, eftir óleyfi-
lega útisýningu á listaverk-
um i Leningrad. Hann var
einn af skipuleggjendum
sýningarinnar, sem lögregl-
an jafnaði við jörðu.
Siðar sótti hann aftur um
heimild til að flytjastá brott
til Israel, en það leizt yfir-
völdum mun betur á, þar
sem engin stjórnmálatengsl
eru milli Israel og Sovétrikj-
anna og þeir sem flytja
þangað eru strax sviptir
borgararétti sinum i Sovét.
Sinyavin, sem er ekki
Gyðingur, sagði vestrænum
fréttamönnum, að hann og
eiginkona hans Tatyana,
ásamt tveim börnum sinum,
myndu flytjast til Bandarikj-
anna og hefðu alls ekki i
hyggju aö fara til tsrael.
\
um, sagði hann. — Þau eiga að
hafa afskipti af öllu þvi sem
snertir og hefur áhrif á verka-
menn i daglegu lifi þeirra. Ég
held að ekkert sé til sem heitir
póhtiskt verkfall.
Verkfallið i W'ellington hófst á
föstudag i siðustu viku, þegar
Truxtun kom þangað i sex daga
heimsókn. t gær ákváðu verka-
lýðsfélög þau sem að verkfall-
inu standa að afboða það ekki.
Þau sögðu hins vegar, að þau
hefðu ekkert á móti þvi að rikis-
stjórnin notaöi flugherinn til að
ferja fólk milli eyja. Bristoi
flutningavélar, Hercules C-130
ogDakota flugvélar voru notað-
ar tilf flutninganna.
Nýja Sjdland:
r verkalýðsfélaga til verkfalls-
boðana stórlega skertur með lögum