Tíminn - 11.09.1976, Blaðsíða 3
Laugardagur 11. september 1976.
TÍMINN
3
REYKJAVÍKUR-SKÁKMÓTIÐ
AAargeir vann Antoshin
og Ingi vann
MÓL - Reykjavlk. í gærdag
voru tvær biöskákir tefldar og
jafnframt þær einu, sem eftir
voru. Margeirvann Antoshin og
Ingi vann Björn.
Aður höfðu þeir Antoshin og
Ingi samið um jafntefli.
Staðan eftir 12 umferðir er þá
þannig:
1.-4. Friðrik, Timman,
Tukmakov og Najdorf 8.5 vinn-
ingar, 5. Ingi 7.5 vinningar, 6.-7.
Westerinen og Antoshin 7 vinn-
inga, 8.-9. Guðmundur og Keen
6.5 vinninga, 10.-11. Vukcevich
og Matera 5.5 vinninga, 12.
Haukur 4.5 vinninga, 13. Mar-
geir 4 vinninga, 14. Helgi 3.5
vinninga, 15. Björn 3 vinninga
og 16. Gunnar 1.5 vinninga.
Athyglisverður er góður
árangur Inga R., en hann hefur
h'tið teflt að undanförnu eins og
kunnugt er. Einnig er athyglis-
Björn
vert, aðFriðrik er eini taplausi
keppandinn á mótinu.
Gifurleg spenna hefur færzt i
mótið, og til að lesendur átti sig
betur á stöðunni, þá er gott að
athuga við hverja efstu menn
eiga eftir að tefla:
Friðrik: Helga (H), Gunnar
(S) og Inga (H).
Timman: Inga (H), Margeir
(S) og Vukcevich (H)
Tukmakov: Najdorf (S),
Hauk (S) og Helga (H)
Najdorf: Tukmakov (H),
Helga (S) og Gunnar (H).
13. umferð verður tefld í dag
og hefst taflmennskan klukkan
14 i Hagaskólanum. Þá tefla
saman:
Friðrik - Helgi, Timman -
Ingi, Najdorf - Tukmakov, Guð-
mundur - Gunnar, Keen -
Haukur, Matera - Westerinen,
Björn - Margeir, Antoshin -
Vukcevich.
fovleiurik /f 7-L / l 3 Y f 6 / $ Ý /2 // u /3 // /3
jL Helgi ólafsson X 'L 'A h h 0 0 4 ö */í .0 0 %
z Gunnar Gunnarsson 'U X o 0 O o 1 o o o G 0 o
3 Ingi R Jóhannsson 'lx I X i 0 Vx ‘4 4 V, l 0 1 1
XI Margeir Pétursson 'íx i ö X o o 0 4 l Hi o 0 •h
XI Milan Vukcevich h l 1 1 X 'A o 0 0 Vz Vx o
A. Heikki Westerinen 1 1 % J % X //, 0 h 0 % ft l
X Raymond Keen 1 0 Vi l 1 X i 0 l4 o Vi [h
JL Salvatore Matera >/z i Vx V* 1 X /z i o % o 0 0
X Vladimir Antoshin l l ð % X h h 4 ‘/? k 1
/ó Björn Þorsteinsson '/j. I 0 0 0 h X fj « 0 o 'A 0 o
// Jan Timman I t 1 1 i % ■ z X i 'A 0 G 1
/2 Guðmundur Sigurjónsson I 4 •4 % V* 4 0 X 4 0 Va %
Æ. Friðrik ólafsson h 'll i I I V* 4 'A Vx X i l’ Vz
&. Miguel Najdorf 1 1 Vx ‘lz V? ] ‘k 'A I l u X 1
/S Vladimir Tukmakov 1 0 1 1 ‘h VíL J h i ! Zu A X
ÍL Haukur Angantýsson & i± o 'A Va o I 0 & SL X
KULDINN I
KIRKJUNNI
DREPUR ALLT
SAFNAÐARSTARF
— segir organisti Hólakirkju
Flýtum okkur hægt segir
þjóðminjavörður, sem þakkar það ekki
sízt kuldanum hve vel dýrgripir tveggja
alda gömlu kirkju hafa varðveitzt
SJ-Reykjavík. — Kuldinn I
kirkjunni stendur öllu
safnaðarstarfi hér fyrir
þrifum. Það hefur ekki verið
hægt að stofna kirkjukór, og
þó er mikið af söngfólki i
þessari fámennu sókn, sem
ekki telur nema um 200
manns,sagði Ingimar Pálsson
organisti Hólakirkju og
kennari við búnaðarskólann i
viðtali við Timann. — Fyrir
um áratug siðan eignaðist
kirkjan pipuorgel, sem er tólf
milljón króna virði nú, og það
liggur undir skemmdum
ásamt dýrmætum fórn-
gripum, sem eru I kirkjunni.
Það þarf að fá viðgerðarmenn
árlega erlendis frá til aö gera
við orgelið og kostar þaö stór-
fé, og á hverju vori er aftur
viðgerðar þörf.
Söngfólk i Hólasókn hefur
stundað æfingar á Hofsósi.
Presturinn þar sr. Sigurpáll
Óskarsson messar mánaöar-
lega i Hólakirkju yfir vetur-
inn, en sárafáir koma til
kirkju þar sem illverandi er i
kirkjunni fyrir kulda. Dýr-
mætt orgelið, sem byggt er úr
tré þolir ekki þann hitamis-
mun, sem þarna er.
Að sögn Ingimars Pálssonar
organista heyrir Hólakirkja
undir þjóðminjavörð, en söng-
málastjóri, rikið og sóknin
hafa skipt með sér kostnaði
við viðgerðir á orgelinu.
Þór Magnússon þjóðminja-
vörður hefur ekkert viljað
gera til umbóta en þó ber
öllum hér saman um að þetta
sé algert ófremdarástand.
Tlminn leitaði til Þórs
Magnússonar, sem haföi þetta
um máliö aö segja.:
— Hólakirkja (byggð 1763)
var fyrst óupphituð I 200 ár, en
siöan var verkfræðifyrirtæki
fengið til að setja upp hitakerfi
I kirkjunni og var komið þar
fyrir loftblástri. Þessi hitun
hefur hins vegar aldrei verið I
góðu lagi. Verkfræðingar hafa
margsinnis verið fengnir til að
bæta hér um en ástandið hefur
litið batnað. Kyndiklefi er
nokkuð frá kirkjunni og hitinn
fluttur i leiðslu til kirkjunnar
og er hitatapið á leiðinni
mikið. Gárungarnir segja að á
Hólastað sé eini upphitaði
kirkjugarðurinn á landinu og
hitinn fari allur i að verma þá
framliðnu.
Rætt hefur verið um að
koma upp rafmagnshitun i
kirkjunni, en við höfum viljað
flýta okkur hægt i þvi efni.
Rafmagnshitun fylgir oft
þurrt loft. Og er kirkjan
verður hituð að staðaldri
óttumst við að dýrmætir
kirkjumunir inni þorni.
Hugsanlegt er að hitaveita
komi senn að Hólum og hitann
sem henni fylgi teljum við
miklu æskilegri, einkum ef
hann verður ekki hafður hærri
I kirkjunni en 6-10 stig.
Orgelið sem keypt var til
Hólakirkju var sérstaklega
fengið með tilliti til þess að
það þyldi hita- og rakabreyt-
ingar. En þær vonir, sem
menn gerðu sér um það hafa
brugðizt, og hafa viðgerðir á
orgelinu kostaö geysimikið fé.
Nú siðast var gert fyrir það
fyrir a.m.k. 70.000 kr.
Hólakirkja er eitt af elztu
steinhúsum á landinu og stór-
merk bygging. Þar er forn
altaristafla, útskorin með
máluðum myndum, frá
dögum Jóns Arasonar
biskups. Hún er talin vera
þýzk. Þar er einnig stórt
krossmark frá þvi i lok
kaþólsku, mjög fornir
kaleikar og skirnarfontur og
predikunarstóllinn er jafn-
gamall kirkjunni. Ljósa-
hjálmur og stjakar eru einnig
merkir gripir fornir. I kirkj-
unni eru hvað mestir dýr-
gripir, sem yfirleitt eru til I
kirkjum hér á landi. Það hvað
þessir gripir eru vel varð-
veittir er sennilega þvi að
þakka hvaö snemma kom
steinkirkja að Hólum.
Samkeppni um gerð kirkju í Breiðholti
SJ-Reykjavik. Efnt verður til
samkeppni um gerð kirkju i
Breiðholti og verður hún auglýst
siðar i þessum mánuði. Þetta
verður fyrsta kirkjan i fjölmenn-
asta hverfi borgarinnar, en
kirkjustarfið fer nú að mestu
fram i Breiðholtsskóla. 7-8 þús-
und mannsbúa nú ihverfinu, sem
er tvö prestaköll, Breiðholts-
prestakall og Fellaprestkall. I
Fellasókn var i fyrra keypt hús,
sem veröur starfsmiðstöð þess
safnaðar fyrst um sinn.
Byggingarnefnd Breiðholts-
kirkju hefur hafiðstörf, og er for-
maður hennar Sigurður E. Guð-
mundsson framkvæmdastjóri.
Dómnefnd vegna samkeppninnar
skipa Bjöm Björnsson prófessor,
arkitektamir Helgi Hafliðason og
Hilmar Ölafsson og Sig. E. Guð-
mundsson.
Breiðholtssöfnuöur hefur þann
metnað að nýja kirkjan verði fög-
ur bygging, sem þjóni tilgangi
sinum sem bezt.
A meðfylgjandi uppdrætti má
sjá staösetningu væntanlegrar
kirkju. Er það syðst i svonefndri
Mjódd, þar sem verður væntan-
legt þjónustuhverfi — miöbær —
allrar Breiðholtsbyggðarinnar.
Sunnan kirkjunnar mun verða
garður, en göngugötur tengja
svæðið við væntanlegt iþrótta-
svæði neðan við Skógahverfið
(Breiðholt II). Er augljóst, að
fyrst i stað mun þessi kirkja
þjóna ibúum Breiöholts I og II eöa
þar til og ef önnur ris einhvers-
staðar isyðra hverfinu, sem nú er
að mótast.
Nú á þessu ári hóf fjáröflunar
nefiid vegna kirkjubyggingarinn
ar störf sin.
Fjáröflunarnefndin er nú að
hefja fyrsta stórátakið i bygg-
ingarmálinu: Næstu daga fer af
staðhappdrætti Breiðholtskirkju.
Vinningurinn verður Volvobif-
reið, sem draga á um 6. janúar
nli. Er þess vænzt, að bæði Breiö-
hyltingar og aðrir velunnarar
málsins geri sitt til að árangur
verði góður.
Hafréttarráðstefnan:
Óútkljáð togstreita strand
ríkja og afskiptra ríkja
JH-Reykjavik. — Nefnd,
skipuö tuttugu og einum
manni, tiu frá strandríkjum
og tiu frá landluktum og af-
skiptum ríkjum, sem litla
strandlengju hafa, auk for-
manns, hefur starfað svo til
linnulaust þann tfma, sem haf-
réttarráöstefnan hefur staðiö
aö þessu sinni, sagöi Þórarinn
Þórarinsson, einn fulltrúa Is-
lendinga á ráöstefnunni, i sim-
tali i gær. 1 þessari nefnd er
fjallað um hugsanleg réttindi
eöa forréttindi afskiptra rikja
innan landhelgi hinna. Hefur
formaöurinn tekiö saman upp-
kast, sem á aö vera samnefn-
ari þeirra skoöana, er komiö
hafa fram i nefndinni og lýtur
að forgangi landluktra rikja til
afgangsveiöa.
Um þetta uppkast er ekki
samkomulag, að sinni, en auk
þess snertir þetta ekki ísland
þar sem það er undanþegið
þessum ákvæöum vegna þess,
hve afkoma okkar er alger-
lega háð fiskveiðum. Tilraunir
hafa verið gerðar til þess að
koma Færeyjum og Norður-
Noregi undir þetta ákvæöi, en
þvi hefur verið hafnaö til
þessa á þeim grundvelli,
að þar er aö ræöa hluta rikja,
en ekki riki óskipt. Þetta
ákvæði tekur, eins og nú
stendur, til Islands eins, en
það myndi gera stöðu okkar
veikari, ef: fleiri yrði skipaö i
sama flokk.
1 fyrstu nefnd hefur veriö
rætl um framtiðarstofnun þá,
sem á sjá um nýtingu hafs-
botnsins, sagði Þórarinn og
hefur þar veriö öllu léttara
fyrir fæti en áður, siðan Kis-
singer, utanrikisráðherra
Bandarikjanna, kom til skjal
anna og bauðst ti! pess ao
styrkja þessa stofnun. Niöur-
staða er þó ekki fengin, og er
talað um óformlegan fund um
málið siðar. Bandarikjamenn
telja sig eiga öröugt um vik,
þar til forsetakosningar eru
um garð gengnar.
Drögum þeim, sem varða
væntanlegan hafréttardóm-
stól, hefur ekki verið breytt,
og hefur ekki fengizt sam-
komulag um valdsvið hans. Er
þar um það deilt, hvort haf-
réttardómstóllinn eigi aö hafa
úrskurðarvald um þaö,
hvenær fiskstofnar eru van-
nýttir.