Tíminn - 11.09.1976, Blaðsíða 15
Laugardagur 11. september 1976.
TÍMINN
15
flokksstarfið
Héraðsmót
á Suðureyri
Héraðsmót framsóknarmanna verður i félagsheimilinu á
Suöureyri við Súgandafjörð laugardaginn 18. sept. og hefst kl.
21.00.
Ræðumenn veröa Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráð-
herra og Steingrimur Hermannsson, alþingismaður.
Töframaðurinn Baldur Brjánsson skemmtir. Hljómsveitin
Mimósa leikur fyrir dansi. Nefndin.
V_______________________________________________J
Kanaríeyjar
Munum geta boðið upp á Kanarieyjaferðir i
vetur. Hafið samband við skrifstofuna Rauðar-
árstig 18. Reykjavik simi 24480.
íþróttir ®
sterka trú á henni — en óneitan-
lega væri gaman að brjóta hana á
bak aftur.
Þess má geta til gamans, að
þessi hjátrú hefur verið nokkuð
sterk undanfarin ár — hjá þeim
leikmönnum, sem hafa lagt Vik-
ing að velli, og einnig þeim leik-
mönnum, sem mæta þeim liðum,
sem hafa unnið Viking.
Það má fastlega búast við þvi,
að úrslitaleikurinn verði
skemmtilegur og spennandi, eins
og le'ikir Vals og Akraness hafa
verið undanfarin ár. Valur og
Akranes léku til úrslita I bikar-
keppninni 1975, en þá tryggðu
Valsmenn sér bikarinn (4:1) og
komu I veg fyrir að Skagamenn
ynnu þá bæði i 1. deildar- og
bikarkeppninni.
Aðeins einu félagi hefur tekizt
að tryggja sér sigur i þessum
tveimur stórmótum — KR-ingar
urðu bæði tslands- og Bikar-
meistarar 1961 og einnig 1963.
Valsmenn geta leikið þetta eftir á
morguná Laugardalsvellinum, ef
þeim tekst að sigra Skagamenn.
-SOS
Sölusýning
á vélprjóni
Aðalfundur Vélprjónasambands
Islands var haldinn að Hall-
veigarstöðum sunnud. 5. sept. sl.
Ákveðiö var að sölusýning
Sambandsins verði að Hall-
veigarstöðum 9. október. Þar
verða á boðstólum vélprjónaöur
fatnaður, sem unninn er á heimil-
um þeirra húsmæðra er hafa
prjónað sér til ánægju fyrir
heimilisfólk sitt og kunningja.
Þar sem þetta er fyrsta sölusýn-
ing sambandsins mun hún aðeins
vera þennan eina dag.
í nýskipaðri stjórn eru: Form.
Sigriður Norðkvist i Bolungavik
og til vara Hólmfriður Gestsdóttir
i Kópavogi. Ritari Erna Helga-
dóttir i Kópavogi. Gjaldkeri Vig-
dis Magnúsdóttir i Reykjavik og
til vara Svanfriður Jónasdóttir i
Reykjavik. Endurskoðandi Guð-
ný Helgadóttir.
Samningar við Pólverja og
Tékka fromlengdir óbreyttir
t viðskiptasamningum tslands
við Tékkóslóvakiu og Pölland er
gert ráðfyrir árlegum viðræðum
um framkvæmd samninganna og
önnur atriði, sem varða viðskipti
landanna. Sikar viðræður fóru
fram i Prag dagana 1.-3. septem-
ber og I Varsjá 6.-8. september
s.l.
Fimm ára viðskiptasamningur
viðTékkóslóvakiu áttiað renna út
30. september 1976, en ákveðið
var að framlengja hann
óbreyttan um eitt ár. Viðskiptin
við bæði löndin hafa þróazt eðli-
legaog farið vaxandi á þessu ári.
1 ár eru 30 ár siðan fyrstu
viðskiptasamningar voru gerðir
við þessi lönd og hafa viðskiptin
haft verulega þýðingu fyrir
Island, einkum vegna útflutnings
á freðfiskflökum til Tékkósló-
vakiu og fiskimjöli, saltsild og
gærum til Póllands.
Helztu niðurstöður viðræðn-
anna voru skráðar i samþykktar
fundargerðir, sem voru undirrit-
aðar af formönnum nefndanna.
Formaður islenzku nefndarinnar
var Þórhallur Asgeirsson, ráðu-
neytisstjóri, en nefndarmenn Sig-
urður örn Einarsson, fulitrúi
Seðlabankans,Andrés Þor-
varðarson, fulltrúi Sambands isl-
lenzkra samvinnufélaga, Arni
Finnbjörnsson, fulltrúi Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna og
fulltrúar Verzlunarráðs tslands
voru Kristján G. Gislason i' við-
ræðum við Tékka og Hjörtur
Hjartarson I viðræðum við Pól-
verja.
, ^rkiasotnarar
Frínr©rK-iu
r=SS 5S:™-SS'
► Umsiog'n ^ ■
Upplag ^06 .
'iMirsUáUmótio
v„.ffiVK»VKU„S
Internationa*
Kr.
497
24. ágóat
__ 14. sept.
1976.
-hs-Rvik. Þrjú fyrirtæki voru i gær heiðruð fyrir fallegustu sýningar-
básana á sýningunni tslenzk föt ’76. Fyrirtækin, sem heiðruð voru, eru
Iðnaðardeild Sambandsins, Karnabær og Gráfeldur. Meðfylgjandi
myndir sýna hluta verðlaunabásanna og þegar Pétur Sveinbjarnarson,
framkvæmdastjóri sýningarinnar, afhenti Birni Péturssyni, forstjóra
Karnabæjar, og Agnari Fr. Svanbjörnssyni, framkvæmdastjóra Grá-
feids, viðurkenningaskjöl. Timamynd: Róbert.
FATAV£RKSMiOJAN
KAflUVIANN
/ '"RA-nZHAH
GRÁFELDUR
il 4jm
J t • jgw ■ {gsg i J
Róðstefnur um
hverja helgi á
Höfn í Hornafirði
SJ-Reykjavik. — Hér á Höfn er
mikið aö gera þessa dagana og
mikið um að vera, sagði Arni
Stefánsson hótelstjóri i gær, —
og veðrið er eins og bezt verður
á kosið, sól og bliða. Bilgreina-
sambandið er með 90-100 manna
ráðstefnu á hótelinu nú um helg-
ina, og verða ráðstefnur hér um
hverja helgi út september. Mik-
ið hefur verið að gera hér á
hótelinu i allt sumar.