Tíminn - 02.10.1976, Side 6

Tíminn - 02.10.1976, Side 6
6 TÍMINN Laugardagur 2. október 1976 Halldór E. Sigurðsson, rdðherra: llaiidór E. Sigurðsson Svar við „opnu bréfi til samgönguróðherra fró Elíasi Davíðssyni, kerfisfræðingi, sem birtist í Morgunblaðinu 17. september sl. ii Nær allar spurningar Eliasar fjalla um alþjóöastofnun fjar- skipta um gervihnetti, Intelsat. NUverandi rekstursform Int- elsat tók gildi 12. febrúar 1973, en starfsemi stofnunarinnar hófst 1964 meö 19 þátttökulönd- um, nú eru þátttökulöndin 93. ísland undirritaöi samninginn um Intelsat 14. febrúar 1972 og var hann fullgiltur af Alþingi meö þingsályktun 27. janúar 1975. Alrangteraönokkurleynd sé yfir þessum upplýsingum og sést þaö bezt á þvi aö allur samningurinn um Intelsat er birtur i Stjórnartiöindum bæöi á islenzku og ensku og þar aö- gengilegur fyrir alla, sem hafa áhuga á honum. Eignarhluti Is- lands i Intelsat er 0.05% og er þaö minnsti hluti, sem hægt er að eiga. Upphaf samningsins um Intelsat er: „Aðilar samnings þessa hafa i huga meginreglu ályktunar 1721 XVI. allsherj- arþings Sameinuöu þjóöanna um, að svo fljótt sem veröa megi skuli komiö á f jarskiptum um gervihnetti milli þjóöa heims á alþjóðlegum grundvelli án mismununar”. Hlutverk Intelsat er að setja upp og reka gervihnetti til fjar- skipta og leigir stofnunin út af- not þeirra. Eignarhlutföll i Intelsat eru aðallega miöuö við notkun aðíldarlandanna á gervihnöttunum. Bandarikin eru stærsti eigandi og notandi Intelsat með tæp 30% en sú hlut- deild fer minnkandi með vax- andi notkun og þar meö vaxandi eignaraöild annarra rikja. Comsat (Communications Satillite Corporation) er undir- ritunaraðili Bandarikjanna og framkvæmda- og rekstursverk- taki fyrir Intelsat til ársins 1979. Allar meiriháttar framkvæmdir undir stjórn Comsat skulu samþykkjast af ráðinu og fram- kvæmdastjóra Intelsat. A þessu timabili stjórnar Comsat hönn- un, byggingu og uppsetningu gervihnatta. Comsat fyrirtækiö var upprunalega stofnaö aö til- hlutan Bandarikjastjórnar i þeim tilgangi að annast gervi- hnattfjarskipti fyrir Bandarik- in. Æösta stjóm Intelsat er þing hluthafanna (rikjanna), sem haldið er á tveggja ára fresti. Þar næst kemur þing undirrit- unaraðila, sem haldiö er árlega. Eftirlit meö framkvæmdastjórn .Intelsat er i höndum ráös 25 fulltrúa undirritunaraðila, en það heldur fundi oft á ári. Norö- urlöndin standa saman að ein- um fulltrúa i ráðinu. Núverandi forseti ráðsins er með eignar- umboð fyrir Bretland og Irland. Framkvæmdastjóri Intelsat er útnefndur af ráðinu og er ráðn- ing hans háð samþykki þings hluthafanna. Svör viö þeim spurningum Eliasar, sem ekki hefur verið svarað hér aö framan eru þessi: Spurning 4. Engin samskipti hafa veriö milli Intelsat og starfsmanna pósts og sima enda gerir samn- ingur Intelsat ekki ráö fyrir sliku. Spurning 5. Póstur og simi mun senda út almennt útboð um byggingu jaröstöðvar þegar endanleg heimild liggur fyrir þar að lút- andi og hefur þeim aðilum, sem sýnt hafa áhuga á að selja jarð- stöð hingað vtrið tilkynnt það. Spurning 7. Intelsat getur varla beitt neinni einokunaraðstöðu, þar sem mikil samkeppni rikir um fjarskipti um gervihnetti og út- hafssæsima. Allar þjóðir greiða Intelsat sömu gjöld fyrir sams konar notkun hvar sem er i heiminum. Spurning 8. Intelsat hefur engin umráð yfir þeim töxtum, sem aðildar- rikin taka fyrir fjarskiptaþjón- ustu. Leigugreiðslur aöildar- rikjanna til Intelsat fyrir sjálf gervihnattasamböndin hafa lækkaö ár frá ári þrátt fyrir vaxandi dýrtið og spáir Intelsat þvi að leigurnar haldi áfram að lækka. Spurning 9 Intelsat leggur aðeins til rásir i gervihnöttum til flutnings á fjarskiptum en hefur alls engin itök i fjarskiptunum sjálfúm og er þvi fráleitt að halda að stofn- unin fari að sölsa undir sig frettamiðlun, gagnabanka o.fl. hjá aðildarrikjunum. Prentarar mótmæla lokun mjólkurbúða — Neytendasamtökin gagnrýna f ramkvæmdina Timanum hefur borizt ályktun frá Hinu islenzka prentarafélagi, þar sem lýst er fullum stuöningi við aögerðir ASB-nefndar gegn lokun mjólkurbúöa Mjólkursam- sölunnar. Segir i ályktun prentara, að af lokun leiði þaö, aö fjölda borgar- búa verðigerterfiðara um vik aö ná til mjólkursölu og einnig leiði lokunin til atvinnuleysis. Þá hafa Neytendasaihtökin itrekaö, að lokun allra mjólkur- búöa i senn, sé í ósamræmi við vilja samtakanna. Aðalfundur kirkjunnar í Hólastifti KS-Akureyri —17. aöalfundur kirkjunnar i Hólastifti, veröur haldinn á Hofsósi dagana 2. og 3. október næstkomandi og hefst i barna- og unglingaskóla staðar- ins kl. 3 siðdegis á laugardag. A laugardagskvöld veröur almenn samkoma i Hofsóskirkju. Þar flytur erindi séra Kristján Valur Ingólfsson prestur á Raufarhöfn og fjallar það um æskulýösstarf kirkjunnar á Noröurlandi.Stina Gisladóttir aöstoöaræskulýösfull- trúi flytur hugvekju og Haukur Björnsson frá Bæ syngur einsöng viö undirleik Ingimars Pálssonar kennara og organista á Hólum. Þá flytur erindi séra Jón Einarsson i Saurbæ, og staöar- prestur, séra Sigurpáll Óskars- son, og séra Bolli Gústafsson form. ÆSK. annast helgistund. A sunnudag veröur fundi fram haldiö og honum lýkur eftir há- degi með messum I Hofsóskirkju, Fellskirkju, og I Barðskirkju I Fljótum. Æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar, séra Þorvaldur Karl Helgason mun prédika við guðsþjónusta á Hofsósi. Full- trúar viös vegar af á Noröurlandi munu sækja fundinn. Skókbók fyrir byrjendur FJ-Reykjavik. Timaritiö Skák hefur gefiö út Skákkveriö fyrir byrjendur eftir þá Júri Averbak og Mikael Beilin i þýöingu Braga Halldórssonar, Braga Kristjáns- sonar og Ragnars Þ. Ragnarsson- ar. 1 formála segir Guömundur Arnlaugsson, rektor, m.a.: — Mér sýnist valiö á þessari litlu kennslubók hafa tekizt ljómandi vel, hún er ljós og einföld aö framsetningu og hefur aö geyma furöu mikiö efni. Ég held, aö hver meöalgreindur unglingur geti lært að tefla af henni án annarrar tilsagnar, og mér sýnist hún þannig úr garöi gerö, aö ýmsir myndu eiga öröugt meö aö slita sig frá henni fyrr en lokið er. Margt I bókinni þarf raunar aö ihuga aftur og aftur unz lesandinn hefur náö valdi á þvi. En sá, sem hefur efni þessa litla kvers sæmi- lega á valdi sinu, er oröinn þokka- legasti skákmaöur, ef ekki meir. Alafoss: Ný garntegund „Tröll-lopi" Á sýningunni tslenzk Föt ’76 kynnti Alafoss h/f nýja garn- tegund, er hlotiö hefur nafnið „Tröll Lopi”. Eins og nafniö bendir til, er hér um ullargarn af lopa-ætt- inni að ræöa, en all verulega grófara en þær lopa tegundir, sem hafa veriö á markaönum hingað til, segir i frétt frá Ala- fossi. Hefur garn þetta þegar verið kynnt á erlendum mörkuöum, og hlotiö góðar viötökur. Áöur en garniö var sett á markaöinn var efnt til verðlaunasamkeppni um nafn á þvi, og eins og áður segir var nafniö Tröll Lopi valið. Atta aðilar voru með tillögur um þetta nafn, og fór verðlauna- afhending fram i sýningarbás Alafoss h/f i Laugardalshöll- inni s.l. laugardag. Pétur Eiriksson forstjóri og Magnús Pétursson sölustjóri viö afhendingu verölauna fyrir nafngiftina „Tröll lopi”, en þaö er nafn, sem ný garn- tegund, er Álafoss h/f hefur hafið framleiöslu á, hefur hlotið. Jafnframt þvi að kynna nýja garntegund á sýningunni Islenzk Föt ’76, þá komu út hjá Álafossi h/f sextán nýjar prjónauppskriftir fyrir hinar ýmsu garntegundir, er fyrir- tækið framleiðir. Álafoss h/f hefur á undan- förnum árum gefið út á annað hundrað slikar uppskriftir, og er þeim dreift bæði á inn- lendum og erlendum mörk- uðum. Auglýsið í Tímanum

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.