Tíminn - 02.10.1976, Síða 6
6
TÍMINN
Laugardagur 2. október 1976
Halldór E. Sigurðsson, rdðherra:
llaiidór E. Sigurðsson
Svar við „opnu bréfi til samgönguróðherra
fró Elíasi Davíðssyni, kerfisfræðingi, sem
birtist í Morgunblaðinu 17. september sl.
ii
Nær allar spurningar Eliasar
fjalla um alþjóöastofnun fjar-
skipta um gervihnetti, Intelsat.
NUverandi rekstursform Int-
elsat tók gildi 12. febrúar 1973,
en starfsemi stofnunarinnar
hófst 1964 meö 19 þátttökulönd-
um, nú eru þátttökulöndin 93.
ísland undirritaöi samninginn
um Intelsat 14. febrúar 1972 og
var hann fullgiltur af Alþingi
meö þingsályktun 27. janúar
1975. Alrangteraönokkurleynd
sé yfir þessum upplýsingum og
sést þaö bezt á þvi aö allur
samningurinn um Intelsat er
birtur i Stjórnartiöindum bæöi á
islenzku og ensku og þar aö-
gengilegur fyrir alla, sem hafa
áhuga á honum. Eignarhluti Is-
lands i Intelsat er 0.05% og er
þaö minnsti hluti, sem hægt er
að eiga.
Upphaf samningsins um
Intelsat er: „Aðilar samnings
þessa hafa i huga meginreglu
ályktunar 1721 XVI. allsherj-
arþings Sameinuöu þjóöanna
um, að svo fljótt sem veröa
megi skuli komiö á f jarskiptum
um gervihnetti milli þjóöa
heims á alþjóðlegum grundvelli
án mismununar”.
Hlutverk Intelsat er að setja
upp og reka gervihnetti til fjar-
skipta og leigir stofnunin út af-
not þeirra. Eignarhlutföll i
Intelsat eru aðallega miöuö við
notkun aðíldarlandanna á
gervihnöttunum. Bandarikin
eru stærsti eigandi og notandi
Intelsat með tæp 30% en sú hlut-
deild fer minnkandi með vax-
andi notkun og þar meö vaxandi
eignaraöild annarra rikja.
Comsat (Communications
Satillite Corporation) er undir-
ritunaraðili Bandarikjanna og
framkvæmda- og rekstursverk-
taki fyrir Intelsat til ársins 1979.
Allar meiriháttar framkvæmdir
undir stjórn Comsat skulu
samþykkjast af ráðinu og fram-
kvæmdastjóra Intelsat. A þessu
timabili stjórnar Comsat hönn-
un, byggingu og uppsetningu
gervihnatta. Comsat fyrirtækiö
var upprunalega stofnaö aö til-
hlutan Bandarikjastjórnar i
þeim tilgangi að annast gervi-
hnattfjarskipti fyrir Bandarik-
in.
Æösta stjóm Intelsat er þing
hluthafanna (rikjanna), sem
haldið er á tveggja ára fresti.
Þar næst kemur þing undirrit-
unaraðila, sem haldiö er árlega.
Eftirlit meö framkvæmdastjórn
.Intelsat er i höndum ráös 25
fulltrúa undirritunaraðila, en
það heldur fundi oft á ári. Norö-
urlöndin standa saman að ein-
um fulltrúa i ráðinu. Núverandi
forseti ráðsins er með eignar-
umboð fyrir Bretland og Irland.
Framkvæmdastjóri Intelsat er
útnefndur af ráðinu og er ráðn-
ing hans háð samþykki þings
hluthafanna.
Svör viö þeim spurningum
Eliasar, sem ekki hefur verið
svarað hér aö framan eru þessi:
Spurning 4.
Engin samskipti hafa veriö
milli Intelsat og starfsmanna
pósts og sima enda gerir samn-
ingur Intelsat ekki ráö fyrir
sliku.
Spurning 5.
Póstur og simi mun senda út
almennt útboð um byggingu
jaröstöðvar þegar endanleg
heimild liggur fyrir þar að lút-
andi og hefur þeim aðilum, sem
sýnt hafa áhuga á að selja jarð-
stöð hingað vtrið tilkynnt það.
Spurning 7.
Intelsat getur varla beitt
neinni einokunaraðstöðu, þar
sem mikil samkeppni rikir um
fjarskipti um gervihnetti og út-
hafssæsima. Allar þjóðir greiða
Intelsat sömu gjöld fyrir sams
konar notkun hvar sem er i
heiminum.
Spurning 8.
Intelsat hefur engin umráð
yfir þeim töxtum, sem aðildar-
rikin taka fyrir fjarskiptaþjón-
ustu. Leigugreiðslur aöildar-
rikjanna til Intelsat fyrir sjálf
gervihnattasamböndin hafa
lækkaö ár frá ári þrátt fyrir
vaxandi dýrtið og spáir Intelsat
þvi að leigurnar haldi áfram að
lækka.
Spurning 9
Intelsat leggur aðeins til rásir
i gervihnöttum til flutnings á
fjarskiptum en hefur alls engin
itök i fjarskiptunum sjálfúm og
er þvi fráleitt að halda að stofn-
unin fari að sölsa undir sig
frettamiðlun, gagnabanka o.fl.
hjá aðildarrikjunum.
Prentarar mótmæla
lokun mjólkurbúða
— Neytendasamtökin gagnrýna
f ramkvæmdina
Timanum hefur borizt ályktun
frá Hinu islenzka prentarafélagi,
þar sem lýst er fullum stuöningi
við aögerðir ASB-nefndar gegn
lokun mjólkurbúöa Mjólkursam-
sölunnar.
Segir i ályktun prentara, að af
lokun leiði þaö, aö fjölda borgar-
búa verðigerterfiðara um vik aö
ná til mjólkursölu og einnig leiði
lokunin til atvinnuleysis.
Þá hafa Neytendasaihtökin
itrekaö, að lokun allra mjólkur-
búöa i senn, sé í ósamræmi við
vilja samtakanna.
Aðalfundur kirkjunnar í
Hólastifti
KS-Akureyri —17. aöalfundur
kirkjunnar i Hólastifti, veröur
haldinn á Hofsósi dagana 2. og 3.
október næstkomandi og hefst i
barna- og unglingaskóla staðar-
ins kl. 3 siðdegis á laugardag. A
laugardagskvöld veröur almenn
samkoma i Hofsóskirkju. Þar
flytur erindi séra Kristján Valur
Ingólfsson prestur á Raufarhöfn
og fjallar það um æskulýösstarf
kirkjunnar á Noröurlandi.Stina
Gisladóttir aöstoöaræskulýösfull-
trúi flytur hugvekju og Haukur
Björnsson frá Bæ syngur einsöng
viö undirleik Ingimars Pálssonar
kennara og organista á Hólum.
Þá flytur erindi séra Jón
Einarsson i Saurbæ, og staöar-
prestur, séra Sigurpáll Óskars-
son, og séra Bolli Gústafsson
form. ÆSK. annast helgistund.
A sunnudag veröur fundi fram
haldiö og honum lýkur eftir há-
degi með messum I Hofsóskirkju,
Fellskirkju, og I Barðskirkju I
Fljótum. Æskulýðsfulltrúi
þjóðkirkjunnar, séra Þorvaldur
Karl Helgason mun prédika við
guðsþjónusta á Hofsósi. Full-
trúar viös vegar af á Noröurlandi
munu sækja fundinn.
Skókbók fyrir
byrjendur
FJ-Reykjavik. Timaritiö Skák
hefur gefiö út Skákkveriö fyrir
byrjendur eftir þá Júri Averbak
og Mikael Beilin i þýöingu Braga
Halldórssonar, Braga Kristjáns-
sonar og Ragnars Þ. Ragnarsson-
ar.
1 formála segir Guömundur
Arnlaugsson, rektor, m.a.: —
Mér sýnist valiö á þessari litlu
kennslubók hafa tekizt ljómandi
vel, hún er ljós og einföld aö
framsetningu og hefur aö geyma
furöu mikiö efni. Ég held, aö hver
meöalgreindur unglingur geti
lært að tefla af henni án annarrar
tilsagnar, og mér sýnist hún
þannig úr garöi gerö, aö ýmsir
myndu eiga öröugt meö aö slita
sig frá henni fyrr en lokið er.
Margt I bókinni þarf raunar aö
ihuga aftur og aftur unz lesandinn
hefur náö valdi á þvi. En sá, sem
hefur efni þessa litla kvers sæmi-
lega á valdi sinu, er oröinn þokka-
legasti skákmaöur, ef ekki meir.
Alafoss:
Ný garntegund
„Tröll-lopi"
Á sýningunni tslenzk Föt ’76
kynnti Alafoss h/f nýja garn-
tegund, er hlotiö hefur nafnið
„Tröll Lopi”.
Eins og nafniö bendir til, er
hér um ullargarn af lopa-ætt-
inni að ræöa, en all verulega
grófara en þær lopa tegundir,
sem hafa veriö á markaönum
hingað til, segir i frétt frá Ala-
fossi.
Hefur garn þetta þegar
verið kynnt á erlendum
mörkuöum, og hlotiö góðar
viötökur. Áöur en garniö var
sett á markaöinn var efnt til
verðlaunasamkeppni um nafn
á þvi, og eins og áður segir var
nafniö Tröll Lopi valið. Atta
aðilar voru með tillögur um
þetta nafn, og fór verðlauna-
afhending fram i sýningarbás
Alafoss h/f i Laugardalshöll-
inni s.l. laugardag.
Pétur Eiriksson forstjóri og
Magnús Pétursson sölustjóri
viö afhendingu verölauna
fyrir nafngiftina „Tröll lopi”,
en þaö er nafn, sem ný garn-
tegund, er Álafoss h/f hefur
hafið framleiöslu á, hefur
hlotið.
Jafnframt þvi að kynna nýja
garntegund á sýningunni
Islenzk Föt ’76, þá komu út hjá
Álafossi h/f sextán nýjar
prjónauppskriftir fyrir hinar
ýmsu garntegundir, er fyrir-
tækið framleiðir.
Álafoss h/f hefur á undan-
förnum árum gefið út á annað
hundrað slikar uppskriftir,
og er þeim dreift bæði á inn-
lendum og erlendum mörk-
uðum.
Auglýsið í Tímanum