Tíminn - 02.10.1976, Side 16

Tíminn - 02.10.1976, Side 16
Laugardagur 2. október 1976 Auglýsingasími Tímans er LEIKFANGAHÚS1Ð Skólavörðustig 10-Sími 1-48-06 Fisher Price leikföng eru heimsfrag Póstsendum i* Brúðuhús Skólar Benzinstöðvar Sumarhús Flugstóðvar Bilar RAFDRIFIN BRÝNI Brýning tekur aöeins 1—2 minútur. Stærö aöeins 25x20x15 sm. EINNIG: 30 tegundir Victorinox hnifa •— ryöfritt stál meö ' Nylon sköftum. ÁRNl ÓLAFSSON & CO. —...... 40088 zr 40098 __ Heimsóknirnar eru veiki Gsal-Reykjavík. — Okkur er það Ijóst, að hér er ýmsu ábótavant og sennilega gerir sér enginn betur Ijóst en við sjálfir, að mörg vandamál eru hér fyrir hendi, sagði Helgi Gunnarsson, forstjóri vinnuhælisins á Litla- Hrauni, en stjórn vinnuhælisins boðaði f réttamenn á sinn f und í gær til þess að sýna þeim stof nunina. — Okkur vantar margt, einna tilfinnanlegast er þó vöntunin á sérstakri deild fyrir geöveika af- brotamenn, sagöi Helgi. — Einnig vantar okkur einangrunarfang- elsi, en Litla-Hraun myndi teljast hálf-opiö fangelsi. Þá vantar okk- ur ýmsa aöstööu hér og tæki. Helgi Gunnarsson sagöi að mikil fjölgun heföi orðiö á geö- sjúkum afbrotamönnum á undan- förnum árum, og þvi væri brýnast að koma upp sérstakri deild fyrir þá. Undir þessi orð tók Frimann Sigurösson, yfirfangavörður og sagöi: — Sibrotamönnum fer mjög fjölgandi. Þetta eru sjúkir menn, sem ekki eiga hér heima. Þeir þurfa á mikilli samfélagslegri að- stoö að halda, sem enginn veitir, eins og málum er nú háttað. Hafsteinn Þorvaldsson, formaöur stjórnar vinnuhælisins sagöi aö gallinn viö Litla-Hraun væri eink- um sá, að þar ægði saman alls konar föngum. Hann bætti viö, að siðan byrjað var að greiöa föngunum fyrir vinnu sina á sómasamlegan hátt, heföi ástandiö á vinnuhælinu batnaö stórlega, en ekki eru mörg ár siö- an það var tekiö upp og i núgild- andi reglugerð fyrir vinnuhæliö Mörg hagleiksverk hafa fangarn- ir á Litla-Hrauni búiö tii. er kiausa um það, að fangar eigi að fá i daglaun sem svari til launa verkamanns samkvæmt Dags- brúnartaxta i eina klukkustund! — Þetta fé dugði ekki einu sinni fyrir sigarettum, sagði Helgi Gunnarsson. — Hér eru allir skyldaðir til þess að vinna og aö minum dómi er vinnan mikilvæg- ust hérna. Viö höfum tekiö hér upp akkorð á félagslegum grund- velli, þannig að hver fangi ýti á annan. Meö þessu fyrirkomulagi hafa þeir komizt upp í 1200 króna dagkaup. Skuldi þessir menn t.d. barnsmeðlög er það tekið af kaupinu, og einnig hvetjum við þá til þess að styrkja fjölskyldu sína fjárhagslega og við vinnum sameiginlega að þvi, að láta þá borga upp i það tjón, sem þeir hafa valdið. Augljóst er þó, að ekki má ganga of harkalega eftir þeirra fé, þvi það hefur sýnt sig að það hefur niðurdrepandi áhrif. Hér gildir að rata meðalveginn, eins og annars staðar. Fangar á Litla-Hrauni vinna viö steypuvinnu, þar sem gerðar eru annars vegar gangstéttar- Gsal-Reykjavík. — Við getum alls ekki sagt að að- búnaðurinn hér sé slæmur, en þetta er hins vegar ó- sköp tilbreytingarlaust líf, sögðu nokkkrir fangar, sem Tíminn ræddi við á Litla-Hrauni í gær. urinn hellur og hins vegar netasteinar, og i þessu sambandi má geta þess, að Færeyingar keyptu ný- lega tuttugu þúsund netasteina. Ennfremur vinna fangar við að splæsa netasteinshanka, hnýta spyrðubönd og annað þess háttar. Þá ber að auki að geta þess, að þeir eru einnig i ýmiss konar handavinnu, þar sem þeir smiða sér húsgögn, vinna i leir og smelti, og sauma út. — Þó að þessir menn séu af- brotamenn má ekki dæma þá of hart, þvi margir þeirra eru miklu fremur ógæfumenn. Ég hef orðið var viö það að refsigleðin er miklu rikari hjá tslendingum en öðrum þjóðum. Flestir þessara manna eiga það sameiginlegt að þeir eru litt menntaðir, og um 80- 85% þeirra eru annað hvort alkó- hólistar eða fikniefnaneytendur, sagði Helgi Gunnarsson. Forstjórinn var inntur eftir þvi, Fangarnir kváðust sætta sig við vistina, og sögðu aö ýmislegt væri gert til þess að gera hana sem bærilegasta. — A daginn erum við að vinna og á kvöldin sitjum við og horfum á sjónvarpið, eða spil- um og teflum, sagði einn þeirra. Um þá staðreynd, að deyfilyf bærust til þeirra með gestum, sögðu þeir, að engin leið væri að stöðva það eöa koma algjörlega i veg fyrir það. A einum stað i fangelsinu sátu þrir fangar og voru tveir þeirra með hljóðfæri i höndum, annar með kassagitar og hinn með bassa. — Þegar við losnum út stofnum við hljómsveit og öflum peninga, sagði einn þeirra og brosti. Hann sagði nokkru siðar um veruna á Litla-Hrauni: — Það getur verið ágætt að vera hér ef vistin er ekki lengri en þrir mánuðir upp úr þvi er þetta leiðinlegt. Ég hef sjálfur verið hér i 6 mánuði, af 10 mánuðum, sem mér ber að vera hér. Enn einn fangi, sem við rædd- um við, sagöi að þaö gæti verið á- gætis afslöppun i þvi að dvelja á „Hrauninu” i smá tima. Þessi maður kom þangað fyrir örfáum dögum. hvort einhver brögð væru að þvi, aö fangarnir kæmust i áfengi. — Nei, s.l. þrjú ár hefur slikt aldrei komið fyrir. Oðru máli gegnir um pillurnar, þvi það er ákaflega erfitt að koma i veg fyrir að þær berist inn, þrátt fyrir að leitað sé á öllum gestum, sem hingað koma. Ég spurði kollega minn i Sviþjóð að þvi hvort hann ætti við sama vandamál að striða, en það fangelsi rúmar 600 fanga, en þetta 50. Hann sagði, að svo væri, og bætti við að fangarnir hjá sér reyktu hass á virkum dögum, en marijuana á sunnudögum!! Við inntum nokkra fanganna eftir þvi hvernig samkomulagið væri á milli þeirra og voru þeir sammála um að það væri gott, — Að visu ber mikið á þvi að við fangarnir hópum okkur nokkrir Helgi Gunnarsson forstjóri sagði, að heimsóknirnar væri veiki punktur fangelsisins, en heimsóknir til fanga eru leyfðar á sunnudögum og öðrum helgidög- um frá kl. 11-18. — Við gerum okkur ljóst, að þessar heimsóknir eru mikils virði fyrir fangana og við leggjum áherzlu á það, að þeir missi ekki samband við fólkið sitt. Þó verður það að segjast eins og það er, að þetta eru okkar verstu dagar, þvi leit á gestum og föngum eftir heimsóknir skapar ætiö taugaspennu. Framhald á bls. 15 saman, en það gerist ekki oft, að upp komi deilur, og ef það gerist, er það yfirleitt út af smámunum og ieysist fljótlega, sagöi einn þeirra. Séðinn ieinn klefann á Litla-Hrauni. Timamyndir: G.E. PALLI OG PESI — Nú er Alþýöublaðiö loksins á uppleið — — Ha? Af hverju heldurðu það? — — Nú, þeir eru komnir með nógu marga áskrif- endur til aö augiýsa Fangar á Litla-Hrauni: Þrír mánuðir bærilegir en svo koma leiðindin

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.