Tíminn - 02.10.1976, Page 16
Laugardagur
2. október 1976
Auglýsingasími
Tímans er
LEIKFANGAHÚS1Ð
Skólavörðustig 10-Sími 1-48-06
Fisher Price leikföng
eru heimsfrag
Póstsendum
i* Brúðuhús
Skólar
Benzinstöðvar
Sumarhús
Flugstóðvar
Bilar
RAFDRIFIN
BRÝNI
Brýning tekur aöeins
1—2 minútur.
Stærö aöeins
25x20x15 sm.
EINNIG: 30 tegundir Victorinox
hnifa •— ryöfritt stál meö
' Nylon sköftum.
ÁRNl ÓLAFSSON & CO.
—...... 40088 zr 40098 __
Heimsóknirnar eru veiki
Gsal-Reykjavík. — Okkur er það Ijóst, að hér er ýmsu
ábótavant og sennilega gerir sér enginn betur Ijóst en við
sjálfir, að mörg vandamál eru hér fyrir hendi, sagði
Helgi Gunnarsson, forstjóri vinnuhælisins á Litla-
Hrauni, en stjórn vinnuhælisins boðaði f réttamenn á sinn
f und í gær til þess að sýna þeim stof nunina.
— Okkur vantar margt, einna
tilfinnanlegast er þó vöntunin á
sérstakri deild fyrir geöveika af-
brotamenn, sagöi Helgi. — Einnig
vantar okkur einangrunarfang-
elsi, en Litla-Hraun myndi teljast
hálf-opiö fangelsi. Þá vantar okk-
ur ýmsa aöstööu hér og tæki.
Helgi Gunnarsson sagöi að
mikil fjölgun heföi orðiö á geö-
sjúkum afbrotamönnum á undan-
förnum árum, og þvi væri brýnast
að koma upp sérstakri deild fyrir
þá. Undir þessi orð tók Frimann
Sigurösson, yfirfangavörður og
sagöi:
— Sibrotamönnum fer mjög
fjölgandi. Þetta eru sjúkir menn,
sem ekki eiga hér heima. Þeir
þurfa á mikilli samfélagslegri að-
stoö að halda, sem enginn veitir,
eins og málum er nú háttað.
Hafsteinn Þorvaldsson, formaöur
stjórnar vinnuhælisins sagöi aö
gallinn viö Litla-Hraun væri eink-
um sá, að þar ægði saman alls
konar föngum. Hann bætti viö, að
siðan byrjað var að greiöa
föngunum fyrir vinnu sina á
sómasamlegan hátt, heföi
ástandiö á vinnuhælinu batnaö
stórlega, en ekki eru mörg ár siö-
an það var tekiö upp og i núgild-
andi reglugerð fyrir vinnuhæliö
Mörg hagleiksverk hafa fangarn-
ir á Litla-Hrauni búiö tii.
er kiausa um það, að fangar eigi
að fá i daglaun sem svari til launa
verkamanns samkvæmt Dags-
brúnartaxta i eina klukkustund!
— Þetta fé dugði ekki einu sinni
fyrir sigarettum, sagði Helgi
Gunnarsson. — Hér eru allir
skyldaðir til þess að vinna og aö
minum dómi er vinnan mikilvæg-
ust hérna. Viö höfum tekiö hér
upp akkorð á félagslegum grund-
velli, þannig að hver fangi ýti á
annan. Meö þessu fyrirkomulagi
hafa þeir komizt upp í 1200 króna
dagkaup. Skuldi þessir menn t.d.
barnsmeðlög er það tekið af
kaupinu, og einnig hvetjum við þá
til þess að styrkja fjölskyldu sína
fjárhagslega og við vinnum
sameiginlega að þvi, að láta þá
borga upp i það tjón, sem þeir
hafa valdið. Augljóst er þó, að
ekki má ganga of harkalega eftir
þeirra fé, þvi það hefur sýnt sig
að það hefur niðurdrepandi áhrif.
Hér gildir að rata meðalveginn,
eins og annars staðar.
Fangar á Litla-Hrauni vinna
viö steypuvinnu, þar sem gerðar
eru annars vegar gangstéttar-
Gsal-Reykjavík. — Við
getum alls ekki sagt að að-
búnaðurinn hér sé slæmur,
en þetta er hins vegar ó-
sköp tilbreytingarlaust líf,
sögðu nokkkrir fangar,
sem Tíminn ræddi við á
Litla-Hrauni í gær.
urinn
hellur og hins vegar netasteinar,
og i þessu sambandi má geta
þess, að Færeyingar keyptu ný-
lega tuttugu þúsund netasteina.
Ennfremur vinna fangar við að
splæsa netasteinshanka, hnýta
spyrðubönd og annað þess háttar.
Þá ber að auki að geta þess, að
þeir eru einnig i ýmiss konar
handavinnu, þar sem þeir smiða
sér húsgögn, vinna i leir og
smelti, og sauma út.
— Þó að þessir menn séu af-
brotamenn má ekki dæma þá of
hart, þvi margir þeirra eru miklu
fremur ógæfumenn. Ég hef orðið
var viö það að refsigleðin er
miklu rikari hjá tslendingum en
öðrum þjóðum. Flestir þessara
manna eiga það sameiginlegt að
þeir eru litt menntaðir, og um 80-
85% þeirra eru annað hvort alkó-
hólistar eða fikniefnaneytendur,
sagði Helgi Gunnarsson.
Forstjórinn var inntur eftir þvi,
Fangarnir kváðust sætta sig við
vistina, og sögðu aö ýmislegt væri
gert til þess að gera hana sem
bærilegasta. — A daginn erum við
að vinna og á kvöldin sitjum við
og horfum á sjónvarpið, eða spil-
um og teflum, sagði einn þeirra.
Um þá staðreynd, að deyfilyf
bærust til þeirra með gestum,
sögðu þeir, að engin leið væri að
stöðva það eöa koma algjörlega i
veg fyrir það.
A einum stað i fangelsinu sátu
þrir fangar og voru tveir þeirra
með hljóðfæri i höndum, annar
með kassagitar og hinn með
bassa. — Þegar við losnum út
stofnum við hljómsveit og öflum
peninga, sagði einn þeirra og
brosti. Hann sagði nokkru siðar
um veruna á Litla-Hrauni:
— Það getur verið ágætt að
vera hér ef vistin er ekki lengri en
þrir mánuðir upp úr þvi er þetta
leiðinlegt. Ég hef sjálfur verið hér
i 6 mánuði, af 10 mánuðum, sem
mér ber að vera hér.
Enn einn fangi, sem við rædd-
um við, sagöi að þaö gæti verið á-
gætis afslöppun i þvi að dvelja á
„Hrauninu” i smá tima. Þessi
maður kom þangað fyrir örfáum
dögum.
hvort einhver brögð væru að þvi,
aö fangarnir kæmust i áfengi. —
Nei, s.l. þrjú ár hefur slikt aldrei
komið fyrir. Oðru máli gegnir um
pillurnar, þvi það er ákaflega
erfitt að koma i veg fyrir að þær
berist inn, þrátt fyrir að leitað sé
á öllum gestum, sem hingað
koma. Ég spurði kollega minn i
Sviþjóð að þvi hvort hann ætti við
sama vandamál að striða, en það
fangelsi rúmar 600 fanga, en
þetta 50. Hann sagði, að svo væri,
og bætti við að fangarnir hjá sér
reyktu hass á virkum dögum, en
marijuana á sunnudögum!!
Við inntum nokkra fanganna
eftir þvi hvernig samkomulagið
væri á milli þeirra og voru þeir
sammála um að það væri gott, —
Að visu ber mikið á þvi að við
fangarnir hópum okkur nokkrir
Helgi Gunnarsson forstjóri
sagði, að heimsóknirnar væri
veiki punktur fangelsisins, en
heimsóknir til fanga eru leyfðar á
sunnudögum og öðrum helgidög-
um frá kl. 11-18. — Við gerum
okkur ljóst, að þessar heimsóknir
eru mikils virði fyrir fangana og
við leggjum áherzlu á það, að þeir
missi ekki samband við fólkið
sitt. Þó verður það að segjast eins
og það er, að þetta eru okkar
verstu dagar, þvi leit á gestum og
föngum eftir heimsóknir skapar
ætiö taugaspennu.
Framhald á bls. 15
saman, en það gerist ekki oft, að
upp komi deilur, og ef það gerist,
er það yfirleitt út af smámunum
og ieysist fljótlega, sagöi einn
þeirra.
Séðinn ieinn klefann á Litla-Hrauni. Timamyndir: G.E.
PALLI OG PESI
— Nú er Alþýöublaðiö
loksins á uppleið —
— Ha? Af hverju heldurðu
það? —
— Nú, þeir eru komnir
með nógu marga áskrif-
endur til aö augiýsa
Fangar á Litla-Hrauni:
Þrír mánuðir bærilegir
en svo koma leiðindin