Fréttablaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 4
4 3. janúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Heilsugæsla á höf-
uðborgarsvæðinu var um áramót-
in sameinuð í eina stofnun.
Innan stofnunarinnar verða
heilsugæslustöðvarnar í Garða-
bæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mos-
fellsbæ, Reykjavík og á Seltjarn-
arnesi, alls 15 heilsugæslustöðvar,
auk Heilsuverndarstöðvarinnar
og Miðstöðvar heimahjúkrunar í
Reykjavík. Starfsmenn stofnunar-
innar eru alls um 600 og forstjóri
hennar er Guðmundur Einarsson.
Tvær nýjar heilsugæslustöðv-
ar verða opnaðar í janúar, Heilsu-
gæslan Fjörður í Hafnarfirði og
Heilsugæslan í Glæsibæ í Reykja-
vík. ■
Höfuðborgarsvæðið:
Heilsugæsla
sameinuð
ELDSVOÐI Ólafur J. Óskarsson,
varaformaður Hjálparsveitar
skáta í Hveragerði, segir sveitina
ekki fá bætta fjóra vélsleða sem
brunnu á gamlársdag. Sleðarnir
eru gjörónýtir.
Trygging sveitarinnar nær ekki
yfir vélknúin ökutæki og því verð-
ur sveitin að bera skaðann af snjó-
sleðamissinum sjálf. Sama gildir
um Ford-sendibifreið sem stóð
fyrir utan húsnæðið og kviknaði í
í brunanum. Hún er að sögn Ólafs
J. þó ekki ónýt en mikið skemmd.
Matsmenn tryggingafélags
sveitarinnar skoðuðu húsið í gær.
- æþe
Bruninn á gamlársdag:
Fjórir vélsleðar
ekki tryggðir
BRUNINN Í HVERAGERÐI Hér stendur Ford-
sendibifreiðin sem fæst ekki bætt. Hún
skemmdist ekki mikið. FRÉTTABLADID/KIDDI RÓT
SÝRLAND Nefnd á vegum Samein-
uðu þjóðanna sem rannsakar morð-
ið á Rafik Hariri, fyrrum forsæt-
isráðherra Líbanons, vill yfirheyra
Bashar Assad Sýrlandsforseta eftir
að Abdel Halim Khaddam, fyrrver-
andi varaforseti landsins, sakaði
hann um hlutdeild í morðinu.
Í samtali við Al-Arabiyya-sjón-
varpsstöðina fyrir helgi sagði
Khaddam að nokkrum mánuðum
fyrir banatilræðið í febrúar 2005
hefði Assad hótað Hariri öllu
illu héldi hann áfram andstöðu
sinni við að framlengja valdatíma
Emiles Lahoud, forseta Líbanons.
Khaddam sagði jafnframt útilokað
að sýrlenska leyniþjónustan hefði
skipulagt slíkt tilræði án vitundar
forsetans. Nefnd SÞ sem fer með
morðrannsóknina vill því ræða við
Assad um málið, svo og Farouq al-
Sharaa utanríkisráðherra.
Khaddam var varaforseti Sýr-
lands frá 1984 til 2004 en féll í ónáð
og hefur dvalið í París undanfarna
mánuði. Á sunnudaginn samþykkti
svo stjórn Baath-flokksins að reka
Khaddam úr flokknum og stefna
honum fyrir landráð. „Ljóst er að
Khaddam er orðinn þátttakandi í
samsæri Ísraela og Bandaríkja-
manna sem miðar að því að grafa
undan einingu Sýrlands og stefnu
þess,“ segir í yfirlýsingu sem rík-
isfréttastofan SANA birti. - shg
Fyrrverandi varaforseti Sýrlands ásakar forseta landsins um samsæri:
Forsetinn verði yfirheyrður
MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI Litlir kærleikar eru
á milli Bashars Assad (til vinstri) og Abdels
Halim Khaddam í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJARAMÁL Vélstjórafélag Íslands,
Landssamband íslenskra útvegs-
manna og Samtök atvinnulífsins
gerðu þann 29. desember nýjan
kjarasamning um kjör vélstjóra
á fiskiskipum. Gildistími nýja
samningsins er til 31. maí 2008.
Samningurinn er í meginatrið-
um sambærilegur við samninga
útvegsmanna við önnur stéttar-
félög sjómanna. Þó eru frávik,
til dæmis hvað varðar greiðslur
orlofs í tengslum við starfsaldur,
greiðslur í styrktar- og sjúkra-
sjóð og uppsagnarfrest, þannig
að greitt er álag á hlut allra vél-
stjóra. Einnig er boðið upp á tvær
leiðir varðandi séreignarsparnað
og tímakaup verður greitt vegna
löndunar á uppsjávarfiski.
Póstatkvæðagreiðsla um samn-
inginn fer fram meðal starfandi
vélstjóra á fiskiskipum og atkvæði
verða talin 15. febrúar. ■
Nýr kjarasamningur vélstjóra:
Svipaður og
sjómanna
FISKISKIP Vélstjórar á fiskiskipum greiða
atkvæði um nýjan samning og atkvæði
verða talin 15. febrúar
VILNÍUS, AP MiG-29-orrustuþotur
pólska flughersins tóku um helg-
ina við lofthelgiseftirliti á vegum
Atlantshafsbandalagsins í Eystra-
saltslöndunum þremur, Eistlandi,
Lettlandi og Litháen.
Orrustuþoturnar fjórar komu í
stað bandarískra þotna sem sinntu
þessu eftirliti síðasta ársfjórðung.
Flugherir nokkurra NATO-ríkja,
Belgíu, Bretlands, Noregs, Dan-
merkur og Þýskalands, hafa skipst
á um að sinna eftirliti með lofthelgi
Eystrasaltslandanna frá því þau
fengu fulla aðild að bandalaginu
vorið 2004. Löndin þrjú hafa ekki
eigin flugher. ■
Lofthelgi Eystrasaltslanda:
Pólverjar taka
við eftirliti
ÚKRAÍNA, AP Talsmenn Gazprom,
rússneska gassölu-einokunarfyr-
irtækisins, lýstu því yfir í gær
að fyrirtækið hygðist auka gas-
magnið sem það dældi til Evrópu-
sambandslanda í gegnum leiðslur
í Úkraínu. Daginn áður skrúfaði
Gazprom fyrir alla gassölu til
Úkraínu vegna deilu um verð, en
það olli þrýstingsfalli í leiðslun-
um sem liggja vestur í álfu og þar
með skilaði sér mun minna gas
þangað en áður.
Þetta var tilkynnt í símskeyti
sem sent var úkraínska gasfyr-
irtækinu Neftogaz og var tekið
fram að aukagasið sem ákveð-
ið hefði verið að dæla í gegnum
leiðslurnar væri til að bæta upp
það magn gass sem Úkraínumenn
tækju sér úr þeim. Úkraínskir
ráðamenn hafa neitað því að í
landinu væri stundaður stuldur á
gasi sem ætlað væri vestur-evr-
ópskum kaupendum.
Gazprom skrúfaði fyrir gas-
flutninga til Úkraínu á nýársdag
eftir að þarlend stjórnvöld neit-
uðu að fallast á rúmlega fjórfalda
verðhækkun á gasinu. Um 80
prósent af því gasi sem Rússar
selja til annarra Evrópulanda er
flutt um leiðslur sem liggja um
Úkraínu og fullyrða talsmenn
Gazprom að nægilegt magn gass
muni áfram renna um þær til að
gaskaupendur vestar í álfunni
verði ekki fyrir óþægindum af
völdum þessarar deilu.
En skömmu eftir að dregið var
úr gasstreyminu inn í leiðslurnar
í Úkraínu fór þrýstingur að falla
í mörgum öðrum Evrópulöndum.
Yfir fjórðungur alls þess jarðgass
sem notað er í Evrópu kemur frá
Rússlandi. Í Frakklandi sögðu
talsmenn gasfyrirtækja að þar
hefði gasmagnið í leiðslunum frá
Rússlandi minnkað um 30 pró-
sent. Verst varð Serbía þó úti;
helmingi minna gas barst þangað
og skömmtun var tafarlaust tekin
upp. Rof á gasstreyminu til heim-
ila og fyrirtækja varð þó hvergi
nema í Serbíu, þar sem dreifiveit-
ur gripu til varabirgða til að bæta
upp gasið sem vantaði í leiðslurn-
ar að austan.
Ríkisstjórnir Þýskalands og
fleiri ESB-landa skoruðu á stjórn-
völd í Rússlandi og Úkraínu að
komast tafarlaust að málamiðlun
í gasverðsdeilunni. Rússar tóku
um áramótin við formennskunni í
G8-hópi mestu iðnvelda heims og
Vladimír Pútín Rússlandsforseta
er í mun að náttúruleg orkuauð-
legð Rússlands skili sér betur í
pólitískum áhrifum. Mest finna
fyrrverandi austantjaldslöndin
fyrir þessu, en þau eru háðust gas-
og olíukaupum frá Rússlandi.
audunn@frettabladid.is
ÞRÝSTINGURINN FELLUR Hluti af jarðgasleiðslunni frá Rússlandi til Úkraínu í þorpinu Boy-
arka nærri Kíev. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Gazprom heitir tryggu
gasstreymi vestur
Rússneska gasfyrirtækið Gazprom hét því í gær að viðskiptavinir þess vestar í álf-
unni fengju sitt með skilum þrátt fyrir að búið væri að loka fyrir gassölu til Úkraínu.
Megnið af því rússneska gasi sem notað er í öðrum Evrópulöndum fer um Úkraínu.
Múslimar halda námskeið Samtök
múslima í Danmörku hafa ákveðið að
halda námskeið um íslam fyrir danska
fréttamenn. Námskeiðið mun taka einn
dag og er áætlað að halda það í apríl.
Talsmaður múslíma í Danmörku segir
ástæðuna vera skopteikningar af Allah
sem birtust í Jyllands Posten síðastliðið
haust.
DANMÖRK
Heróínfengur Tyrkneska lögreglan
gerði um helgina 194 kíló af heró-
íni upptæk austast í Tyrklandi, nærri
landamærunum að Íran, og handtók
þrjá menn grunaða um eiturlyfjasmygl.
Anatolia-fréttastofan greindi frá þessu
í gær.
TYRKLAND
104,9002
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 62,98 63,28
Sterlingspund 108,59 109,11
Evra 74,49 74,91
Dönsk króna 9,985 10,043
Norsk króna 9,317 9,371
Sænsk króna 7,922 7,968
Japanskt jen 0,536 0,5392
SDR 89,98 90,52
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 30.12.2005
���������������������� ���� ����������������������������������� ��� � �� ����������������������� ����������� ������ �������������������� ��
�������������
����
�������� ��
��������
������
�����
������
���������
������
���������
��������
������
��������
�������������
���������������
����������������
����������������
���������������
����������������
����������������
����������������
��������������
����������������
��������������
��������������
��������������
���������������
�������������
������������
���������������
��������������������
�������������������
�������� ��� �
������� �����
������
�������� � � �������� �
��������� � �������
�������� �������� �
�� ���� ������������� ��
������ ������������� ���
��� ������ ���������
��� �� � ���� ���
��� ������� � ���
� ������������ ��� �� �
� ��� �� ������ �������
������ ��������� ��
���������� ��
���
�����������
������� �� ���� �� �� ��
�� �������� ����������� �
��������� ��������� �
�� ������ �� ����������
������� �� ���
�������������
�������������
�������������
�
�
� �
�
�
�
�
�
�
�
�
��
�
��
�������������
�������������
�������������
�������������
�������������
��
��
���������
�������������
���������
����������
��
�
��