Fréttablaðið - 03.01.2006, Qupperneq 6
6 3. janúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Skráning
Verslunarfrelsi og vernd–Hver er hagur neytenda?
Valger›ur Sverrisdóttir, vi›skiptará›herra
Hva› kostar íslenska landbúna›arkerfi›?
Dr. Jón fiór Sturluson forstö›uma›ur Rannsókna-
seturs verslunarinnar, Bifröst
Valmöguleikar til lækkunar matvælaver›s
A›alsteinn Leifsson, a›júnkt Háskólanum
í Reykjavík
D A G S K R Á
8:15
Valger›ur Sverrisd.
A›alsteinn Leifsson
Jón fiór Sturluson
Morgunver›arfundur á Grand Hótel
fimmtudaginn 5. janúar kl. 8:30 – 10:00
Lækkun matarver›s
og landbúna›arstefna
Áhrif landbúna›arstefnunnar
og a›ger›ir til lækkunar matarver›s
Fundarstjóri: Sigur›ur Jónsson, framkvæmdastjóri SVfi
– Samtaka verslunar og fljónustu
A›gangseyrir: 2500 kr. me› morgunver›i
Skráning á www.fvh.is e›a í síma 511 1317
8:30
Leigubílstjóri selur dóp Lögreglan
í Keflavík stöðvaði leigubílstjóra á gaml-
ársdag vegna gruns um fíkniefnasölu.
Hún fann amfetamín í úlpuvasa hans.
Heima hjá honum fundust rúmlega
þrjátíu e-pillur, nokkuð magn af vaxtar-
hormónum og ólöglegt skotvopn. Málið
telst upplýst.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FÍLABEINSSTRÖNDIN, AP Hettuklædd-
ir vígamenn gerðu árás á aðalher-
stöð stjórnarhers Fílabeinsstrand-
arinnar í hafnarborginni Abidjan
í gærmorgun. Borgarastríð hefur
staðið yfir með hléum á Fílabeins-
ströndinni frá því árið 2002, en í
áratugi var landið eitt það friðsæl-
asta í Vestur-Afríku. Norðurhluti
landsins er á valdi uppreisnar-
manna en suðurhlutinn stjórnar-
hollra.
Í fyrstu fréttum af árásinni kom
ekkert fram um hverjir staðið hefðu
að henni. Hershöfðinginn Philippe
Mangou reyndi að róa fólk í sjón-
varpsávarpi. Árásinni hefði verið
hrundið. Hann bað íbúa á svæðinu
um að halda sig innandyra á meðan
árásarmennirnir væru eltir uppi.
Skömmu fyrir jól var mynd-
uð ný ríkisstjórn, þjóðstjórn með
þátttöku allra málsmetandi stjórn-
málahreyfinga landsins, og var
Charles Konan Barry valinn til að
fara fyrir henni. Myndun hinnar
32 manna þjóðstjórnar er álitin-
mikilvægur áfangi að því að koma
á sáttum milli stríðandi fylkinga í
landinu. - aa
Átök á Fílabeinsströndinni þrátt fyrir nýmyndaða þjóðstjórn:
Ráðist á herstöð stjórnarhersins
AKUEDO-HERSTÖÐIN Stjórnarhermaður
gengur hjá brunnu bílflaki við Akuedo-
herstöðina í Abidjan í gær, eftir að árás
uppreisnarmanna var hrundið.
NORDICPHOTOS/AFP
Hefndaraðgerð í ölæði Ungur
maður brást hinn versti við því að vera
vísað út af dansleik á Akranesi í síðustu
viku, sótti bifreið sína og ók henni marg-
sinnis á bifreið dyravarðarins sem vísaði
honum af ballinu. Maðurinn, sem var
ölvaður, fór síðan rakleiðis á lögreglu-
stöðina og sagði frá verknaðinum.
BANDARÍKIN, AP Miklir eldar hafa
geisað á sléttum Oklahoma, Nýju-
Mexíkó og Texas undanfarna daga.
Fjórir hafa látið lífið í eldunum og
á annað hundrað hús hafa eyði-
lagst. ■
Skæðir sinueldar:
Heilu þorpin
þurrkuðust út
ELDSMATUR Hús í Arlington í Texas
skemmdust í eldinum um helgina.
SJÁVARÚTVEGUR Kristinn H. Gunn-
arsson, þingmaður Framsókn-
arflokksins, telur að við upphaf
kvótakerfisins fyrir liðlega 20
árum hafi stórum hluta ekki verið
úthlutað á grundvelli veiðireynslu.
Hann vill fá svör við því frá
sjávarútvegsráðherra hve stórt
hlutfall kvótans fór til manna án
veiðireynslu. Í fyrirspurnum sem
bíða svara á Alþingi spyr hann
einnig um skerðingar við upphaf
úthlutunar sem loðnu- og rækjuút-
gerðir urðu fyrir.
„Það átti að miða við veiði-
reynslu útgerða síðustu þrjú árin
áður en kvótakerfið var tekið upp.
Þeir sem fengu úthlutun áttu að að
fá hana í krafti veiðireynslu sinn-
ar.“
Kristinn véfengir að réttur-
inn hafi verið látinn helgast af
veiðireynslunni. „Af hverju fengu
menn úthlutað veiðirétti án veiði-
reynslu? Var ætlunin að úthlutun
án veiðireynslu yrði ótímabund-
in og að menn nytu sama réttar
og hinir sem höfðu raunverulega
útgerðarsögu og veiðireynslu?
Spyrja má hvort ekki sé eðlilegt
að innkalla slíkan kvóta og endur-
úthluta.“
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna, segir að
líklega hafi stjórnvöld viljað taka
tillit til mismunandi aðstæðna
við úthlutun. „Skip gátu verið
frá veiðum á viðmiðunartíman-
um eða hugsanlega var um nýjar
útgerðir að ræða. Núorðið er sára-
lítill hluti kvótans í upprunalegri
eign. Þeir sem stunda úgerð í dag
hafa að mestu keypt þann kvóta
sem þeir hafa til umráða,“ segir
Friðrik.
Kristinn segist vilja draga
fram að eignarhaldið á aflaheim-
ildum sé að nokkru leyti án tilvís-
unar í veiðireynslu. Því sé eðlilegt
að líta svo á að slíkur afnotaréttur
eða kvóti sé aðeins tímabundinn.
„Ég spyr hve mikið sé eftir af
upphaflegri úthlutun og hver sé
réttlætingin fyrir því að heim-
ila framsal ef menn framselja í
litlum mæli kvóta sem þeir hafa
öðlast með útgerð. Eru menn nú
að framselja kvótaeign sem ekki
byggðist á veiðireynslu og var
af öðrum tekin? Er ekki í lagi að
flytja aflaheimildir til annarra í
dag ef það var í lagi fyrir liðlega
20 árum?“ spyr Kristinn H. Gunn-
arsson.
johannh@frettabladid.is
Telur forsendur til
að innkalla kvóta
Kristinn H. Gunnarsson telur að stjórnvöld geti innkallað kvótaúthlutun
ef hún byggist ekki á veiðireynslu. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir lítið af
upphaflegri úthlutun kvóta vera enn í upprunalegri eign.
KUNDALINI JÓGA
eftir forskrift Yogi Bhajan - Nýtt á Íslandi!
Orkugefandi - markv iss t - umbreytandi
Byrjum í dag 3. janúar ALLIR VELKOMNIR
Þriðjudagar og fimmtudagar 18.35-19.50
Laugardagar 10.00-11.15
Kennari Auður Bjarnadóttir. Skráning og upplýsingar:
audur@vortex.is eða 8461970. www.lotusjogasetur.is
AKUREYRIN EA-110 Meginreglan við upphaf kvótakerfis-
ins var að miða við afla og veiðireynslu útgerða næstu
þrjú ár á undan. Dæmi voru einnig um að kvóti gæti
fylgt skipstjórum. Aðrir fengu kvóta án veiðireynslu og
enn aðrir sættu skerðingu, segir Kristinn.
BYGGÐAMÁL „Hann er kominn nýi
póstmaðurinn, vaskur, enda af
góðum ættum, en þetta er ekki
spurning um menn heldur það
hvort við getum fengið jógúrt
og axlabönd þegar okkur van-
hagar um það,“ sagði Baldur Vil-
helmsson eftir að nýi pósturinn
við Ísafjarðardjúp hafði komið
að bænum í Vatnsfirði í fyrsta
sinn.
Súðavíkurhreppur lét gera
könnun á þjónustuþörf íbúa við
Djúpið og hefur nú brugðist við
niðurstöðunum í samvinnu við
Íslandspóst. Áfram verður farið
með póstinn frá Ísafirði þrisvar
í viku og tekið við sendingum í
sömu ferð. Þá mun landspóstur-
inn einnig flytja farþega til og
frá Ísafirði og Súðavík.
Gunnar Pétursson, fyrrver-
andi póstur sem lét af störf-
um um áramótin, sinnti einnig
sveitunum við Djúpið með því
að sendast fyrir menn og ná í
ýmsa vöru úr bænum. „Þetta
verður leyst með því að íbúarn-
ir geta hringt í ákveðinn mann
sem mun sinna því að skjótast
eftir vörum fyrir þá og koma
þeim með póstbílnum þannig að
þessi þjónusta sem Gunnar hélt
uppi á ekki að leggjast af,“ segir
Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri
í Súðavíkurhreppi. - jse
Póstflutningar um Ísafjarðardjúp verða áfram þrisvar í viku:
Nýi pósturinn við Djúpið
BALDUR VILHELMSSON Í ÍSAFJARÐADJÚPI
Fyrrverandi sóknarpresti í Vatnsfirði leist vel
á nýja póstinn.
KJÖRKASSINN
Strengdir þú áramótaheit?
Já 31%
Nei 69%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eru starfslokagreiðslur til fyrrverandi
forstjóra FL Group ásættanlegar?
Segðu skoðun þína á visir.is
Neyðarlög afturkölluð Jacques
Chirac Frakklandsforseti hyggst tilkynna
í vikunni að neyðarlög, sem sett voru í
nóvember í því skyni að binda enda á
óöld í innflytjendaúthverfum franskra
borga, yrðu aftur afnumin. Gildistími
þeirra hafði áður verið framlengdur fram
í febrúar.
FRAKKLAND
LÖGREGLA Um hálfa klukkustund
tók að klippa konu úr jeppabif-
reið sem valt í gær eftir árekstur
við fólksbíl á Vesturlandsvegi við
Grundarhverfi á Kjalarnesi.
Guðjón Baldursson, læknir á
vakt á slysadeild, segir konuna
ekki alvarlega slasaða. Líkleg-
ast hafi hún ekki brotnað heldur
aðeins tognað við veltuna, en henni
var haldið á sjúkrahúsinu í nótt.
Loka þurfti Vesturlandsvegi í
rúma tvo tíma vegna árekstursins
og mynduðust því kílómetra lang-
ar raðir bíla sem voru á leið um
veginn. Lögreglan segir marga
hafi hringt og kvartað yfir bið-
inni. Tildrög slyssins séu óljós.
- gag
Kílómetraraðir vegna slyss:
Klippa þurfti
konu úr jeppa