Fréttablaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 40
14
„Við stækkum í austur út á Pollinn
og tæplega þreföldum bygging-
una og verðum þá ein af stærstu
líkamsræktarstöðvum landsins,“
segir Guðrún Gísladóttir, fram-
kvæmdastjóri Átaks heilsuræktar
við Strandgötu á Akureyri. „Við
opnuðum haustið 2003 og þetta
hefur bara gengið það vel að stöð-
in er ekki nógu stór eins og hún er
í dag. Það er lítið sem ég get bætt
við og mig vantar pláss til að gera
meira fyrir kúnnana. Þess vegna
ákvað ég að fara út í þessar fram-
kvæmdir.“
Verktakar hófu vinnuna í byrj-
un desember og fylltu 28 metra
út í Pollinn. „Húsið mun hafa þá
sérstöðu að það stendur í raun frítt
í sjó,“ segir Guðrún.
Áætluð starfslok eru í lok
sumarsins og gerir Guðrún ráð
fyrir að stöðin verði opnuð á ný
með pompi og prakt 1. september.
Átak er hefðbundin líkamsrækt-
arstöð sem byggir meðal annars á
Les Mills-kerfunum. Þar er boðið
upp á þolfimi, tæki, hlaupabraut-
ir, einkaþjálfun, aðhaldsnámskeið
fyrir bæði konur og karla og ýmis-
legt fleira. Í dag starfa þar sautján
kennarar og einkaþjálfarar. Frekari
upplýsingar um stöðina er að finna
á vefsíðu hennar, atakak.is.
Átak þrefaldast að stærð
Svo vel hefur gengið hjá líkamsræktarstöðinni Átaki á
Akureyri síðan hún var opnuð árið 2003 að eigendur
hennar hafa ákveðið að stækka stöðina úr tæplega 500
fermetrum í rúma 1.400 fermetra.
Guðrún Gísladóttir, framkvæmdastjóri heilsuræktarinnar Átaks á Akureyri.
■■■■ { heilsublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Fátt er betra í góðu veðri en að
sitja út á höfn, anda að sér sjáv-
arloftinu og dorga. Þegar farið er
að dorga er um að gera að taka
með sér gott nesti og ágætan
stól, því ef veiðin er slæm gerir
það ekkert til ef hitt er í lagi.
Miðbæjarhöfnin hefur reynst
mörgum ágæt, en til eru marg-
ir aðrir góðir staðir, en höfnin í
Geldinganesi hefur verið nokkuð
vinsæl meðal dorgara. Kannski
ekki mikil líkamsrækt en góð úti-
vist, tilvalið fyrir eldra fólk.
DORGAÐU
EVERY BODY TELLS A STORY
PÚLSMÆLAR
Nýtt útlit
FS1
FS3c
F4 F11
RS200sd
hlaupamælir
F6
Söluaðilar:
Útilíf Smáralind, Kringlunni og Glæsibæ // Markið // Örninn // Hreyfing
Afreksvörur // Fitness Sport // Maraþon // Hlaup.is // Hreysti
Maður Lifandi Borgatúni og Hæðarsmára // Halldór Ólafsson Akureyri
Guðmundur B. Hannah Akranesi // Georg B. Hannah Keflavík
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI