Fréttablaðið - 03.01.2006, Page 41
15■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { heilsublaðið } ■■■■
„Farið var út í þessa rannsókn með
það að leiðarljósi að safna upplýs-
ingum um eldra fólk til að öðlast
betri skilning á því hvernig fólk
eldist,“ segir Vilmundur Guðnason,
forstöðulæknir Hjartaverndar.
Öldrunarrannsóknin er sam-
starfsverkefni Hjartaverndar og
bandarískra heilbrigðisyfirvalda og
er ein stærsta og ýtarlegasta far-
aldsfræðilega rannsókn á heims-
vísu á heilbrigði öldrunar í heim-
inum.
Með rannsókninni er leitast við
að öðlast skýra mynd af því hvernig
fólk eldist. Beinþéttni fólks er könn-
uð, sem og breytingar á blóðþrýst-
ingi og vitrænni getu með aldri.
Fólkið sem rannsakað hefur
verið tók þátt í hóprannsókn Hjarta-
verndar á árinu 1967. Það þýðir
að til verða gögn um viðkomandi
einstaklinga yfir meginhluta ævi
þess, svo hægt er að kanna hvað í
líkamsstarfsemi þeirra breytist við
öldrun.
„Hugmyndin er sú að geta beitt
þeirri þekkingu sem við náum til
þess að beita forvörnum í þessum
aldurshópi, þannig að fólk lifi ekki
endilega miklu lengur, heldur eigi
einfaldlega þægilegra ævikvöld og
þurfi síður að fara inn á stofnanir
og sjúkrahús,“ segir Vilmundur.
Þegar hafa niðurstöðurnar svar-
að mörgum spurningum og lofar
rannsóknin góðu.
„Eftir að hafa skoðað þær niður-
stöður sem við erum þegar komin
með segi ég að forvarnir eru fyrir
fólk á öllum aldri, ekki bara unga
fólkið,“ segir Vilmundur.
Forvarnir fyrir alla
Hjartavernd hefur undanfarin fimm ár staðið fyrir öldrunarrannsókn sem hátt í sex
þúsund Íslendingar hafa tekið þátt í.
Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir
Hjartaverndar, en hátt í 6.000 manns
hafa nú tekið þátt í öldrunarrannsókn
Hjartaverndar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Kaffibollinn er leið margra til rænu
að morgni í skammdeginu, en kaffið
er þó ekki allt þar sem það er séð.
Kaffi getur hækkað blóðþrýsting ef
það er drukkið í óhóflegum mæli
og aukið kólesterólmagn í blóði. Þá
er einnig mælt með því að ófrískar
konur hemji kaffidrykkjuna sem þær
frekast geta þar sem það getur haft
hamlandi áhrif á járnfrásog.
Kaffisvolar geta þó huggað sig
við það að kaffið hefur einnig ýmis
jákvæð áhrif. Það hefur til að mynda
verið talið minnka líkur á gall- og
nýrnasteinamyndun og draga úr
hættu á ristilkrabbameini. Það skal
hins vegar athugað að kaffi er afar
þvaglosandi og því mikilvægt að
drekka einnig annan vökva til að
forðast ofþornun.
Margir kjósa að fá sér í aðra tána,
ef ekki báðar, þegar þeir lyfta sér upp
á síðkvöldum. Allir kannast við lát-
lausa síbylju um hættuna af áfengis-
neyslu og afleiðingar hennar. Færri
vita hins vegar að rannsóknir benda
til þess að mjög hófleg áfengisneysla,
sem sárafáir Íslendingar þekkja af
reynslu, getur minnkað líkur á hjar-
takvillum. Fjögur til fimm vínglös á
viku valda því tæpast miklu heilsu-
tjóni og gætu jafnvel verið til bóta.
Kaffi og vín í
skammdeginu
Kaffið og áfengið eru haldreipi margra í grámyglu
skammdegisins. En hverjir eru kostir og gallar þessara
vinsælu drykkja?
Fólk ætti að geta gætt sér óhrætt á kaffibolla eða vínglasi af og til.