Fréttablaðið - 03.01.2006, Page 49

Fréttablaðið - 03.01.2006, Page 49
23■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { heilsublaðið } ■■■■ Oft er sterk lykt af nýjum rúmfötum og stafar þefurinn af efnum eins og formalíni eða litarefnum sem notuð eru við framleiðslu rúmfatanna. Umhverfisstofnun ráðleggur fólki því að þvo rúmfötin fyrir fyrstu notkun því þessi efni geta framkallað ofnæmi, sérstaklega hjá börnum, en megnið af þessum efnum hverfur við þvott. Þvoðu rúm- fötin! Mikilvægt er að þvo öll rúmföt og vefnað- arvöru áður en hún er tekin í notkun. Sjálflýsandi hálsbönd eru sjaldan holl fyrir börn og varar Umhverfis- stofnun við notkun þeirra á heima- síðu sinni, ust.is, en dönsk yfirvöld hafa rannsakað þessi leikföng. „Stjörnur sem hægt er að líma í loft og á veggi innihalda ekki hættu- leg efni og eru heldur ekki hættu- legar þegar þær lýsa. Sjálflýsandi hálsbönd, sem eru gerð úr þunnum plastslöngum sem innihalda sjálf- lýsandi vökva, geta aftur á móti verið hættuleg,“ segir á síðunni, en þessi vökvi er blanda margra efna og þar á meðal geta verið þalöt sem bönnuð eru í leikföngum ætluðum smábörnum. Sjálflýsandi leikföng Umhverfisstofnun varar við sjálflýsandi hálsböndum fyrir börn. Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir setti saman námskeið sem inniheldur hina fullkomnu hreyfingu að hennar mati. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hreyfiland var upphaflega stofn- að fyrir konur með börn, en eig- andi þess og stofnandi, Krisztina G. Agueda, á mikla íþróttamennt- un að baki og hefur þróað sérstakt æfingakerfi fyrir börn, mæður og barnshafandi konur. Námskeiðin bera öll skemmtileg heiti, eins og bumbufimi, mæðrafimi og snill- ingafimi. Hreyfiland hefur vaxið og dafnað og eru mörg skemmtileg námskeið í boði á nýju ári. Má þar nefna dansleikfimi fyrir 20 ára og eldri sem Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir kennir. „Dansleikfimin kom fyrst og fremst til vegna áhuga hjá mér,“ segir Kolbrún Ýr hlæjandi og bætir við: „Þetta er nokkuð sem ég hef þróað sem hina fullkomnu hreyfingu að mínu mati.“ Hún segir námskeið- ið hafa fengið góða viðtökur, enda hafi verið þörf á danstímum fyrir þennan aldurshóp. „Margir telja sig þurfa að búa yfir vissri danstækni eða kunnáttu til að fara á dansnámskeið en dans- leikfimi er nokkuð sem fleiri telja sig ráða við,“ segir Kolbrún Ýr. Meginuppistöðu tímans segir hún vera dans, djassdans, salsa, hipp- hopp, nútímadans eða hvað það sem andinn blæs henni í brjóst. Í þetta er svo blandað öllum nauðsynlegustu styrktaræfingum, teygjum og fleiru. „Þetta eru fyrst og fremst skemmti- legir tímar,“ segir Kolbrún Ýr. Hin fullkomna hreyfing Hreyfiland er líkamsræktarmiðstöð fyrir mæður. Margt spennandi námskeiða er þar í boði eins og bumbufimi og dansleikfimi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.