Fréttablaðið - 03.01.2006, Side 58
32
C M Y CM MY CY CMY K
■■■■ { heilsublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Góður þjálfari er harður þjálfari,
það er ekki spurning,“ segir Sonja
Gylfadóttir, einkaþjálfari hjá World
Class Laugum. „En í hörku þurfa
ekki að felast nein leiðindi, fólk
þarfnast mest jákvæðni og hvatn-
ingar frá þjálfaranum sínum.“
Sonja hefur mikinn áhuga á öllu
sem viðkemur starfi sínu, sem hún
segir vera afar gefandi, fjölbreytt og
mannlegt.
„Starfið er mitt áhugamál, þar
tengist allt sem viðkemur mannlegu
heilbrigði, ræktun líkama og ekki
síst hugans. Hugarfarsbreyting fólks
skiptir höfuðmáli, fólk þarf einfald-
lega að læra að meta heilsu sína og
gefa sér tíma fyrir sjálft sig því við
eigum bara einn líkama og verðum
að hlúa vel að honum. Sjálfrækt
líkama og hugar er mikilvæg öllum,
ekki síst nú á tímum þegar hrað-
inn einkennir líf svo margra,“ segir
Sonja, sem er sjálfstætt starfandi
eins og allir einkaþjálfarar World
Class.
Fólk af öllum aldri, stærðum og
gerðum og með mismunandi kröf-
ur sækir til Sonju í einkaþjálfun.
Fleiri og fleiri leita þessa dagana til
einkaþjálfara, því aginn sem hann
veitir hjálpar fólki við að byrja að
hreyfa sig og að ná betri árangri og
kemur jafnframt í veg fyrir að fólk
gefist upp eftir fyrstu törnina.
„Þetta er allavega fólk á öllum
aldri með mismunandi kröfur og í
mismunandi ástandi sem kemur til
mín. Sem þjálfari legg ég áherslu
á að fólk fái áhuga fyrir heilbrigði
sínu og geri kröfur á sjálft sig, en
markmiðin verða þó að vera raun-
hæf,“ segir Sonja og bætir við að
eitt það skemmtilegasta við starfið
sé að fá að kynnast öllu því fólki
sem sækir til einkaþjálfarans í leit
að þekkingu og tilsögn um eigið
heilbrigði.
Sonja býr til raunhæfa æfingar-
áætlun í samvinnu við hvern við-
skiptavin og hjálpar honum að
byrja á og halda matardagbók.
Svo fylgir hún áætluninni hart
eftir, gefur ráð um mataræði og
hreyfingu almennt. Jafnframt
segir hún mælingarnar sem gerðar
eru í upphafi, svo sem þyngdar-
og þolmælingar, vera skemmtilega
hvatningu þegar síðari mælingar
séu gerðar, því árangur sjáist þá
svart á hvítu.
„Umfram allt þá er ræktun lík-
amans öllum nauðsynleg og það að
öðlast góða heilsu ætti að vera öllum
hvatning til að skella sér í gallann og
mæta,“ segir Sonja brosandi.
Hugarfarið
mikilvægast
Það er einfaldlega ekki hægt að undirstrika um of mik-
ilvægi breytts hugarfars gagnvart líkamanum þegar kemur
að líkamsræktarátaki, að sögn einkaþjálfarans Sonju Gylfa-
dóttur.
Sonja Gylfadóttir einkaþjálfari segir að fólk verði að læra að meta heilsu sína og gefa sér
tíma fyrir sjálft sig. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á nýja árinu er tilvalið að læra
að öskra á framandi tungumáli og
sparka eins og brjálaður maður.
Aikido, júdó, tae kwon do og karate
er meðal þess sem er í boði í bar-
dagaíþróttum hér á landi. Liðleiki
og styrkur þjálfast vel í þessum
greinum sem og viðbrögð þín ef
einhver ræðst á þig í dimmu húsa-
sundi. En bardagaíþróttir eru hvað
bestar fyrir geðheilsuna, því öll
öskrin og spörkin geta ekki annað
en skilað sér í gríðarlegri útrás.
Bardaga-
íþróttir