Fréttablaðið - 03.01.2006, Side 70
3. janúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR22
timamot@frettabladid.is
Ástkær bróðir okkar og mágur,
Einar Guðnason
viðskiptafræðingur
sem lést þriðjudaginn 20. desember síðastliðinn, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
4. janúar næstkomandi kl. 11.00 árdegis.
Gerður Guðnadóttir Sigrún Guðmundsdóttir
Bjarni Guðnason Anna Guðrún Tryggvadóttir
Þóra Guðnadóttir Baldur H. Aspar
Bergur Guðnason Hjördís Böðvarsdóttir
Jónína Margrét Guðnadóttir Sveinn Snæland
Elín Guðnadóttir
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1521 Martin Luther King er
bannfærður af rómversk-
kaþólsku kirkjunni vegna
trúarlegra skoðana sinna.
1597 Heklugos hefst með stórum
eldgangi og jarðskjálftum.
1888 Kristín Bjarnadóttir verður
fyrst kvenna til að kjósa
til bæjarstjórnarkosninga í
Reykjavík.
1948 Þýskur togari bjargar fjórum
skipverjum sem hrakist
höfðu í nær átta sólarhringa
á hafi úti á vélbátnum
Björgu.
1990 Íslandsbanki hf. hefur
starfsemi.
1993 George Bush Bandaríkja-
forseti og Boris Jeltsín
Rússlandsforseti skrifa
undir samkomulag um að
minnka kjarnorkuvopna-
birgðir landanna.
J.R.R. TOLKIEN (1892-1973)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Hugrekki finnst á ólík-
legustu stöðum.“
J.R.R. Tolkien var breskur rithöf-
undur, þekktastur fyrir verk sín
um Hringadróttinssögu.
Sólveig Ólafsdóttir hefur síðastliðin
sjö ár starfað sem sendifulltrúi Rauða
krossins í yfir tuttugu löndum og búið
til lengri tíma í Sviss, Simbabve, Kína
og Srí Lanka. Hún hefur nú snúið aftur
til hinnar ástkæru fósturjarðar og tekur
við starfi sviðsstjóra útbreiðslusviðs
Rauða kross Íslands þar sem hún mun
sjá um upplýsinga- og kynningarmál.
Sólveig er Reykvíkingur en ólst að
hluta upp í Selárdal í Arnarfirði. Hún
lauk BA prófi í ensku frá Háskóla
Íslands og stundaði nám í alþjóða-
stjórnmálum og blaðamennsku í
Bandaríkjunum og hefur starfað við
blaðamennsku og upplýsingamál allt
frá árinu 1988. Áhugi hennar á starfi
Rauða krossins vaknaði þegar hún
starfaði við erlendu deild fréttastöðv-
ar Sjónvarpsins og skrifaði fréttir um
margt sem tengdist Rauða krossin-
um. „Síðan á ég góðan vin sem heitir
Jón Valfells og hann ber ábyrgðina
á þessu,“ segir Sólveig kímin um það
hvernig hún gekk til liðs við Rauða
krossins. Þau Jón störfuðu saman hjá
EFTA í Brussel um tíma. „Þegar Jón
flutti sig yfir til Rauða krossins í Genf
atti hann mér út í þetta og fékk mig til
starfa,“ segir Sólveig sem sótti sendi-
fulltrúanámskeið vorið 1998 og hóf
síðan störf við upplýsingadeild Rauða
krossins í Genf.
Sólveig hefur farið víða í starfi sínu.
Hún starfaði í Albaníu þegar flótta-
menn komu frá Kosovo. Þá hefur hún
verið við hjálparstörf í Kína, Tævan,
Mongólíu, Indlandi, Pakistan og í meira
en tíu löndum í Afríku en hún vann
á svæðisskrifstofu í Simbabve í þrjú
ár. Innt eftir því hvort eitthvert þess-
ara landa sé minnisstæðara en annað
segir Sólveig hvert land vera með sínu
sniði og sérkennum. „Simbabve hefur
óskaplega sterk ítök í mér. Þá var það
sterk og mikil reynsla þegar ég fór til
Tævans út af jarðskjálftum. Að fara til
Mongólíu var rosalega sterk upplifun
enda unnum við í miklum vetrarkuld-
um, eða í allt að 50 stiga frosti,“ segir
Sólveig um þau lönd sem henni eru efst
í huga.
Sólveig hefur sannarlega upplifað
hörmungar og mannlega eymd. Það er
þó ekki sú reynsla sem hún man best
eftir. „Það sem stendur upp úr er lífs-
viljinn og þessi mannlega reisn að stíga
upp úr erfiðleikunum,“ segir Sólveig
með áherslu. Hún tekur dæmi af því
þegar hún starfaði að alnæmisverkefn-
um í Afríkulöndum þar sem upp undir
40 prósent þjóðarinnar er sýkt. „Þar
eins og annars staðar er það svo sterkt
í mannskepnunni að berjast fyrir lífi
og afkvæmum. Það fyllir mann frek-
ar bjartsýni en að draga mann niður,“
segir Sólveig sem telur það örvandi
verkefni að flytja aftur til Íslands til
að setjast hér að og skjóta aftur rótum.
Hún vill þó ekki slá því föstu að hún
verði hér um ókomin ár. „Það er rosa-
lega skemmtilegur lífsmáti að setjast að
í öðru landi og ég útiloka það alls ekki
en ég myndi þá helst ekki vilja gera
það ein. Ef einhver vildi deila með mér
þeim lífsmáta þá væri ég hæstánægð,“
segir Sólveig glettin en hlakkar til að
hefja störf í næstu viku.
SÓLVEIG ÓLAFSDÓTTIR: SVIÐSSTJÓRI ÚTBREIÐSLUSVIÐS RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Skýtur rótum á Íslandi
VÍÐFÖRULL SENDIFULLTRÚI Sólveig Ólafsdóttir hefur starfað sem sendifulltrúi Rauða krossins í yfir tuttugu löndum síðastliðin sjö ár. Hún tekur nú við starfi
sviðsstjóra útbreiðslusviðs Rauða kross Íslands. GVA
ANDLÁT
Álfheiður Lára Þórðardóttir,
Skólagerði 14, Kópavogi, lést á
Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 28. desember.
JARÐARFARIR
11.00 Þorsteinn Ingi Jónsson,
Árkvörn 2b, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
13.00 María Jensen, Samtúni 28,
Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju.
AFMÆLI
Vilhelm Anton
Jónsson, tónlistar- og
myndlistarmaður (Villi
naglbítur), er 28 ára.
Sölvi Blöndal tónlist-
armaður er 31 árs.
Úlfur Grönvold
myndlistarmaður er
fertugur.
Matthías Jóhann-
essen, skáld og
fyrrverandi ritstjóri, er
76 ára.
LEIÐRÉTTING
Eitt ár var haft af afmælisbörn-
um gærdagsins og biðst Frétta-
blaðið innilegrar afsökunar á því.
Rétt er að Halldór Hermannsson
skipstjóri á Ísafirði varð 72
ára. Björgólfur Guðmundsson
athafnamaður varð 65 ára. Þórð-
ur Friðjónsson, forstjóri Kaup-
hallarinnar varð 54 ára. Pjetur
Sævar Hallgrímsson, kaupmaður
í Neskaupsstað varð 53 ára. Jón
Gnarr, skemmtikraftur og pistla-
höfundur varð 39 ára og Kjartan
Sveinsson tónlistarmaður í Sigur
Rós varð 28 ára.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1909 Victor Borge,
danskur píanóleikari
og grínisti.
1883 Clement Attlee,
forsætisráðherra
Breta 1945-1951.
1829 Konrad Duden,
þýskur málvísinda-
maður.
106 f. Kr. Sísero,
rómverskur stjórn-
málamaður.
Á þessum degi árið 1967 andaðist
Jack Ruby úr krabbameini. Ruby
var eigandi næturklúbbs í Dallas
og myrti Lee Harvey Oswald,
meintan morðingja Johns F. Kenn-
edy Bandaríkjaforseta. Stuttu áður
hafði dómstóll í Texas afturkallað
dauðadóm yfir honum fyrir morð-
ið á Oswald og á döfinni voru ný
réttarhöld.
Í nóvember 1963, tveimur
dögum eftir morðið á Kennedy,
var Oswald færður í kjallara lög-
reglustöðvarinnar í Dallas á leið í
öruggari fangelsi. Mikill fjöldi fólks
og fjölmiðla beið eftir að fylgjast
með því þegar Oswald yrði færð-
ur í burtu. Þegar Oswald kom inn
í herbergið steig Jack Ruby fram
og særði hann banasári með einu
skoti úr skammbyssu. Ruby var
þegar handtekinn en hann rétt-
lætti verknaðinn með því að hann
hefði verið sturlaður vegna morðs-
ins á forsetanum. Sumir töldu
hann hetju en hann var samt sem
áður ákærður fyrir morð að yfir-
lögðu ráði.
Ruby átti og rak nokkrar nekt-
arbúllur og dansstaði í Dallas og
var að einhverju leyti tengdur
skipulagðri glæpastarfsemi. Sumir
samsæriskenningamenn halda því
fram að Ruby hafi verið fenginn til
að drepa Oswald til að hylma yfir
með stærra samsæri. Ruby neitaði
því og sagðist drifinn áfram af föð-
urlandsást. Í mars árið 1964 var
hann fundinn sekur og dæmdur
til dauða.
ÞETTA GERÐIST > 3. JANÚAR 1967
Morðingi morðingja lætur lífið
JACK RUBY HANDTEKINN
Ástkær dóttir mín, móðir okkar, systir,
tengdamóðir og amma
Bjarnfríður H. Guðjónsdóttir
(Fríða), Orrahólum 7, Reykjavík
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn
5. janúar kl. 13.00.
Lára Hjartardóttir
Ester Gísladóttir Haukur Barkarson
Eyrún Helga Jónsdóttir Sigurður Sigurðsson
Elva Rut Jónsdóttir
Erna Ósk Guðjónsdóttir
Þórdís M. Guðjónsdóttir Margeir Elentínusson
Lára Samira Benjnouh Yann Le Pollotek
Telma Rún, Mikael Elí og Sóley Nadía
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi
Jóhann Jónasson
frá Öxney, Sveinskoti Álftanesi
lést á Vífilsstöðum föstudaginn 30. desember. Jarðaför-
in fer fram frá Bessastaðakirkju föstudaginn 6. janúar
kl.14.00. F.h. aðstandenda.
Margrét Sigurðardóttir
Elín Jóhannsdóttir Jón B. Höskuldsson
Snorri Jóhannsson Hrönn Sveinsdóttir
Sturla Jóhannsson Sólborg Pétursdóttir
Jónas Jóhannsson
Sigrún Jóhannsdóttir
Sigríður Tryggvadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
13.00 Sigríður Ásmundsdóttir,
Bólstaðarhlíð 41, verður
jarðsungin frá Dómkirkj-
unni.
13.30 Pétur Þórarinn Þorleifs-
son, síðast til heimilis að
Dalbæ, Dalvík, verður jarð-
sunginn frá Dalvíkurkirkju.
15.00 Jónas Tryggvi Gunnarsson
frá Vík í Mýrdal, Kristnibraut
25, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju.