Fréttablaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 78
3. janúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR30
JANÚAR
FEBRÚAR
MARS
APRÍL
MAÍ
JÚNÍ
JÚLÍ
ÁGÚST
SEPTEMBER
OKTÓBER
NÓVEMBER
DESEMBER
OKTÓBER Baltasar Kormákur tilkynnir að hann muni sjálfur leik-
stýra Mýrinni en upphaflega var gert ráð fyrir að Reynir Lyngdal
myndi taka það að sér. Októberbíófest hefst með pompi og
prakt en tilkynnt er að Tarantino muni sækja landið heim vegna
frumsýningar Hostel, hryllingsmyndar sem hann framleiðir en
Íslandsvinurinn Eli Roth er í leikstjórastólnum.
SEPTEMBER Clint Eastwood
hrópar „klippa“ í síðasta skipti
og hópurinn hverfur af landinu.
Allt lítur vel út eftir tökurnar sem
vöktu mikla athygli. Kvikmyndin
Strákarnir okkar er frumsýnd en
í ljós kemur að gallað eintak var
notað á frumsýningu.
ÁGÚST Clint Eastwood mætir á klakann ásamt fríðu
föruneyti. Mestur er áhuginn á Ryan Phillippe sem
leikur lausum hala og Reykjavíkurmeyjarnar halda
vart vatni yfir þessum snoppufríðu drengjum. Karl-
peningur Reykjavíkur líkir þessu við ástandið á tímum seinni heimstyrjald-
arinnar. Cameron Diaz birtist öllum að óvörum í Leifsstöð og skoðar sig um
í borginni. Smástirnið Rob Schneider kemur og kynnir mynd sína European
Gigolo. Myndin er leiðinleg en stjarnan skemmtir landanum á Rex. Jón
Ólafsson og Hildur Vala opinbera ást sína en þetta Idol-par vekur ekki mikla
hrifningu hjá aðstandendum keppninnar. Allt fer þó vel að lokum.
JÚLÍ Harrison Ford stoppar hér eina nótt og tryllir
ungar sem eldri meyjar á börum Reykjavíkur með
fótafimi sinni. Engin kemst þó í náin samskipti við
Hollywood-hetjuna. Rapparinn Snoop Dogg leikur
fyrir Íslendinga og býður í partí. Hann segist elska
Ísland en honum þykir víst vænt um allar þjóðir.
JÚNÍ Clint Eastwood
boðar komu sína hingað
til lands en hann ætlar
að nota svartar fjörur á
Suðurnesjum sem töku-
stað fyrir kvikmyndina sína,
Flags of our Fathers. Duran
Duran heldur tónleika í
Egilshöll við mikinn fögnuð
gamalla aðdáenda sem fylla
húsið. Stemningin er rosaleg
og gömlu poppararnir standa
svo sannarlega fyrir sínu.
Árið 2005 var viðburðarríkt í afþreyingariðnaðinum hér
heima sem erlendis. Skilnaðir og óvænt pör, frægir gestir og
uppákomur sem líða seint úr minni einkenndu þetta ár sem
gárungarnir hafa nefnt Clint-(f)árið.
DESEMBER Kiefer Sutherland sækir
landann aftur heim í annað skiptið á einu
ári. Nú er hann með rokkhljómsveitina
Rocco and the Burden með sér sem heldur
tónleika á Nasa. Tarantino býður í kung
fu-partí og heldur mikið teiti á Rex. A Little
Trip to Heaven er frumsýnd en þar leikstýrir
Baltasar Kormákur Hollywood - stjörnun-
um Forest Whitaker og Juliu Stiles.
NÓVEMBER
Quentin Tarantino mætir
á klakann ásamt Eli Roth
gagngert til að kynna hryll-
ingsmyndina Hostel þar sem
Eyþór Guðjónsson leikur eitt
aðalhlutverkanna. Tarantino
fellur kylliflatur fyrir landi og
þjóð og tilkynnir að hann
muni sækja landið aftur heim
í bráð. Hann heimsækir
forsetann og lætur vígja sig
sem víking. Hljómsveitin
White Stripes heldur magnaða
tónleika í Laugardagshöllinni.
Sigur Rós heldur líklega sína
bestu tónleika fyrr og síðar.
MAÍ Ingvar E. Sigurðsson er ráðinn í hlutverk Erlends rannsóknarlögreglumanns í Mýrinni. Miklar vangaveltur höfðu verið um hver myndi
hreppa þetta eftirsótta hlutverk, en sú niðurstaða að velja Ingvar fékk blendin viðbrögð. Baltasar Kormákur, leikstjóri myndarinnar,
taldi Ingvar hafa „aldurslaust“ yfirbragð. Kvikmynd Dags Kára, Voksne Mennesker, var frumsýnd hér á landi eftir að hafa fengið misjöfn
viðbrögð gagnrýnenda á Cannes.
OKTÓBER Breski Leikarinn Daniel Craig
er valinn til þess að leika ofurnjósnar-
ann James Bond í næstu myndinni um
kappann. Mun myndin heita Casino royale.
Erfiðlega hefur hins vegar gengið að fá
mótleikkonu á móti Bond. Hafa Angelina
Jolie, Sienna Miller og Scarlett Johansson
allar hafnað hlutverkinu.
SEPTEMBER Ofurfyrirsætan Kate
Moss fær á baukinn í fjölmiðlum
þegar myndir birtast af henni
sniffandi kókaín. Fyrir vikið missir
hún fjölda auglýsingasamninga og
orðspor hennar bíður hnekki. Hún
skráir sig í meðferð og hættir með
dópistanum Pete Doherty þar sem
hann hefur yfirmáta slæm áhrif á
hana.
JÚLÍ Michael Jackson er sýknaður af ákæru
um kynferðislegt ofbeldi gagnvart ungum
dreng. Aðdáendur hans um allan heim
fagna en orðspor söngvarans fellur hratt
hjá almenningi. ekki ósvipað og sölutöl-
urnar á plötunum hans.
DESEMBER Grínleikarinn
góðkunni Richard Pryor fellur
frá. Pryor hafði barist við MS-
sjúkdóminn lengi vel en varð
að láta í minni pokann að
lokum. Spjallþáttastjórnandinn
Johnny Carson yfirgefur einnig
þennan heim.
NÓVEMBER Ofurparið
Nick Lachey og Jessica
Simpson skilja eftir
einungis tveggja ára
hjónaband. Að þeirra
sögn skilja þau sem
góðir vinir.
MAÍ Sjötta og seinasta myndin í
Star Wars-seríunni er frumsýnd.
Myndin, sem nefnist Revenge of
The Sith, verður aðsóknarmesta
mynd ársins og er lofuð í hástert af
gagnrýnendum víða um heim.
JANÚAR Jennifer Aniston og Brad Pitt segja veröldinni frá því að
hjónaband þeirra sé orðið að engu og hafi þau nú ákveðið að
skilja að borði og sæng. Skilnaðurinn verður ekki formlegur fyrr
en í september. Grunar marga að Angelina nokkur Jolie eigi hlut
að máli og hafi tælt til sín Brad við tökur á spennumyndinni Mr.
and Mrs. Smith.
FEBRÚAR Mugison kom sá og sigraði á íslensku
tónlistarverðlaunahátíðinni sem haldin var
snemma í febrúar. Hlaut hann verðlaun fyrir
bestu poppplötuna, besta lagið, umslag ársins
og sem vinsælasti flytjandinn.
FEBRÚAR Réttarhöldin yfir Michael
Jackson hefjast í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum. Er Jackson ákærður fyrir að
hafa misnotað dreng kynferðislega.
Hefur málið tekið mjög langan tíma
og dregst enn frekar á langinn á árinu
2005.
MARS Athafnamaðurinn Eyþór
Guðjónsson hreppti aðalhlutverkið
í nýrri kvikmynd eftir Eli Roth sem
ber heitið Hostel. Er þetta fyrsta kvik-
myndahlutverkið sem Eyþór hefur
tekið að sér. Komu nokkrir íslenskir
leikarar til greina í hlutverkið, svo
sem Auðunn Blöndal og Rúnar Freyr
Gíslason. Eyþór skaut þeim öllum ref
fyrir rass og hreppti rulluna.
MARS Tom Cruise og Katie Holmes
tilkynna að þau séu saman. Það á
eftir að verða umfjöllunarefni slúð-
urblaðanna næstu mánuðina. Cruise
mætir til Opruh Winfrey og hoppar á
húsgögnunum þegar hann tilkynnir
henni og umheiminum að hann sé
ástfanginn upp fyrir haus.
APRÍL Kvikmynd Dags
Kára, Voksne Mennesker,
er valin til sýninga á hinni
virtu kvikmyndahátíð
í Cannes í Frakklandi.
Verður hún sýnd í
svokölluðum Un Certein
Regard-flokki, en í þann
flokk eru einungis valdar
um tuttugu kvikmyndir
sem þykja sérstaklega
athyglisverðar, hvaðanæva
úr heiminum.
JÚNÍ Sjötta bókin um
galdrastrákinn Harry Potter
kemur út og rýkur bókin
út eins og heitar lummur.
Tilkynnt er að höfundurinn
J.K. Rowling, muni hefjast
handa við seinustu bókina
eftir áramót.
Hvað bar hæst
á árinu 2005?
JANÚAR Kiefer Sutherland fagnar nýja árinu
hér á landi. Hann kom skömmu síðar fram
í þætti Davids Letterman og lýsti gamlárs-
kvöldinu hér sem geðveiki.