Tíminn - 05.11.1976, Side 5

Tíminn - 05.11.1976, Side 5
Föstudagur S. nóvember 1976 TÍMINN 5 NYJUNG I f BÚSTAÐAKIRKJU Auglýsið í Tímanum Jón Sigurðsson tekur aftur við starfi róðuneytis- stjóra í fjórmóla- róðuneytinu Frá 1. nóvember hefur Jón Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, tekið að nýju við starfi sinu i f jármálaráðuney tinu eftir tveggja ára leyfi frá störfum, segir í frétt frá ráðuneytinu. Höskuldur Jónsson, sem verið hefur settur ráðuneytisstjóri, mun taka að nýju við starfi skrif- stofustjóra frá og með næstu ára- mótum. Hefur Höskuldi Jónssyni verið falið sérstaklega að starfa að gerð kjarasamninga á næsta ári. Þá hefur Þorsteini Geirssyni, lögfræðingi, sem verið hefur deildarstjóri tekjudeildar og settur skrifstofustjóri, veriö falin forstaða tolladeildar ráðuneytis- ins i stað Þorsteins ölafssonar, sem nýverið tók við starfi fram- kvæmdastjóra Kisiliðjunnar h.f. Þorsteinn Geirsson mun gegna starfiskrifstofustjóra til 1. janúar n.k. Loks hefur Arni Kolbeinsson, lögfræðingur, verið settur deildarstjóri i ráðuneytinu og fal- in forstaða tekjudeildar ráðu- neytisins. Arni Kolbeinsson er fæddur 17.7. 1947. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um i Reykjavik 1967 og embættis- prófi i lögfræði 1973. Hann stund- aði framhaldsnám i skattarétti við Oslóarháskóla á árunum 1974 og 1975. Arni hóf störf i ráðuneyt- inu 1973. Hann er kvæntur Sigriði Thorlacius. Gangbrautar- Ijós tekin í notkun Gsal-Rvlk — Tekin hafa veriö f notkun gangbrautarljós á Hafnarfjarðarvegi rétt sunnan viö Vífilsstaöaveginn og eiga þau aö auövelda mjög umferö fólks yfir þennan fjöifarna veg. Gang- brautarljós þessi eru þannig, aö sá gangandi vegfarandi, sem þarf aö fara yfir veginn, ýtir á hnapp á staurnum og kviknar þá skömmu siöar grænt ljós fyrir hann, en rautt fyrir bila. Sunnudaginn 7. nóvember verð- ur messaöað venju kl. 2 siðdegis I Bústaðakirkju i Reykjavik. En sú nýbreytni verður tekin upp, að eftir að guðsþjónustu lýkur verð- ur kirkjugestum boöiö aö ganga til hinna vistlegu saiarkynna safnaðarheimilis kirkjunnar, þar sem sóknarnefndin býöur upp á kaffisopa og kirkjugestum gefst tækifæri til þess aö leggja spurn- ingar fyrir predikarann eöa ræöa frekar hina ýmsu þætti ræöu hans. En dr. Björn Björnsson, prófessor mun stiga I stólinn við guðsþjónustuna og flytja predik- un dagsins. Það heyrist oft, að predikun sé erfiðasti þáttur messunnar, og stundum fari kirkjugestir heim með fleiri spurningar, sem ræðan hefur vakið, en þær sem hún hef- ur svarað. Hvaö sem því liður, er það von forystumanna Bústaða- kirkjusóknar, að kirkjugestum þyki þessi nýbreytni þess virði að gefa henni gaum og kynna sér, hvað hún hefur upp á að bjóöa. Ekki er það þó ætlunin, að hér sé um aðeins eitt einstakt tæki- færi að ræða. Prófessorarnir dr. Björn og dr. Þórir Kr. Þórðarson munu skiptast á um þaö að predika i Bústaðakirkju fyrsta sunnudag hvers mánaðar vetrar- langt, og mun dr. Þórir stiga i stólinn fyrsta sunnudag I desem- ber. Þá er einnig vert að vekja athygli á þvi, aö barnagæzla er starfrækt meðan á messu stend- ur. Ekki vegna þess, aö börn séu ekki velkomin, það sannar barna- samkoman, sem er á hverjum sunnudagsmorgni ki. 11, heldur vegna þess að betur er unnt að njóta messunnar I eðlilegri kyrrð kirkjunnar. Er heldur ekki aö efa, að börnin kunna vel að meta leik- fangasafn þaö, sem Heildverzlun Ingvars Helgasonar hefur gefiö kirkjunni. Séra ólafur Skúlason íþróttahús í byggingu í Vindóshlíð Sumarstarfi K.F.U.K. I Vindás- hlið er lokið að þessu sinni. Þar með lauk 30. starfsári sumar- starfsins. Fyrstu árin var dvalið I tjöldum en fljótlega reis þar myndarlegur skáli. Var hann að mestu byggður I sjálfboðavinnu og fyrir frjáls framlög velunnara starfsins. Arið 1958 var gamla kirkjan á Saurbæ á Hvalfjarðar- strönd flutt upp I Vindáshlið. Var hún endurvigð 16. ágúst 1959. 1 sumar var hafin bygging 390 fermetra iþróttahúss. Það teikn- uðu Guðmundur og Björgvin R. Hjálmarssynir. Var lokið viö að steypa plötuna á liðnu sumri. Til fjáröflunar fyrir bygginguna i Vindáshlið hafa Hliðarstúlkur efnt til happdrættis og veröur Reykvikingum boðið aö kaupa miða á laugardag. Skeifan kynnir Onasse sófasettið. Onasse, sófasetútf setn fartf hefur sicjurjor um Evrópu. Frábœr hönnun og fagvinna býóur þá hvílá sem sóst er eftir. Selt gegn póstkröfu. Onasse sófasettió fæst hjá okkw. SMlimVI-GlO SIMI 44144m.K.IÖRGARIV SIMI /(">71

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.