Fréttablaðið - 08.01.2006, Page 73
SUNNUDAGUR 8. janúar 2006 33
FÓTBOLTI Aðstandendur voru geysilega ánægðir með
hversu vel tókst til með mótshaldið enda var mótið
nánast á áætlun allan tímann. Auk mótsstjórnarinn-
ar tóku um 100 foreldrar úr HK og Breiðabliki þátt í
mótshaldinu. Dómarar voru líka fjölmargir en keppt
var í Smáranum, Fífunni og Digranesi.
Keppt var í tólf flokkum og þátttökuliðin 233
talsins frá tuttugu félögum. Mótið verður klárlega
haldið á ný um næstu jól.
Líf og fjör á Jólamóti SPK
Gleðin réð ríkjum á hinu árlega Jólamóti SPK sem fram fór á milli jóla og nýárs. Þetta er í
fjórða skipti sem Breiðablik og HK standa fyrir þessu skemmtilega móti.
MARGIR LÆRISVEINAR 233 lið tóku þátt á mótinu og
því ekkert grín fyrir þjálfara liðanna að hafa stjórn á
lærisveinum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
RÉTT FRAMHJÁ Vonbrigðin leyna sér ekki
hjá þessari stúlku sem skaut rétt framhjá úr
upplögðu færi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
EINBEITING Varnarmaður Breiðabliks hafði lítið að gera í
þennan sóknarmann Tindastóls sem sýndi snilldartakta við
að komast í gegn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
HÁLOFTABOLTI Hér sjást þrjár stúlkur reyna sitt besta við að
ná lausum bolta í leik Breiðabliks og Hauka.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FLJÚGANDI TÆKLINGAR Þegar komið er í eldri flokkana eykst alvaran í leikjunum og þá er ekkert gefið eftir. Eins og
sést á þessari mynd veigra leikmenn sér ekki við því að renna sér í skriðtæklingarnar.FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FÉLAGAR Þau Bergrún, Hrannar, Gunnar og Katrín skemmtu
sér vel á jólamótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FLOTT LIÐ Lið Hauka í 4. flokki kvenna stóð sig mjög vel á Jólamótinu, enda tólf stúlkur í leikmannahópnum, hver
annari áhugasamari. Þessar stelpur munu án efa ná langt í íþróttinni á næstu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
KAPPHLAUP UM BOLTANN Sóknarmaður Leiknis hefur hér
betur gegn einum leikmanna Víkings. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
STALDRAÐ VIÐ Miklu máli skiptir að hita vel upp og teygja
síðan vel á stífum vöðvum eftir leikina. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
HRESSAR Þær Hildur Sif, Ísabella, Ásta Eir og Sandra Kristín
notuðu tímann á milli leikja til að hvíla lúin bein.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FYLGST MEÐ OG LÆRT Það er oft árangursríkt að staldra við á hliðarlínunni og fylgjast með öðrum
leikjum til að bæta leikskilninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
BARÁTTA UM BOLTANN Lið Breiðabliks var
sigursælt í kvennaflokkunum á mótinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
GÓÐAR Katrín, Kolbrún, Sólborg og Vigdís
spiluðu mjög vel með liði Breiðabliks.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÁFRAM BREIÐABLIK Erna Helga og Katrín
stóðu sig vel í grænu búningunum á
jólamótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÞRÍR Á MÓTI EINUM Leikmenn Blika spiluðu dúndrandi
sóknarbolta í leikjum sínum á jólamótinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SÓLAÐIR UPP ÚR SKÓNUM Þessi ungi
leikmaður FH fór illa með leikmenn Breiða-
bliks. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA