Fréttablaðið - 14.01.2006, Side 2
2 14. janúar 2006 LAUGARDAGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
UMHVERFISMÁL „Mér vitanlega
hefur Landsvirkjun ekki tekið
ákvörðun um framkvæmdir á
þessu svæði og á ekki von á að
það verði á næstunni,“ segir Hall-
dór Ásgrímsson forsætisráherra.
Hann segir að eftir úrskurð
Jóns Kristjánssonar, setts
umhverfisráðherra, um takmörk-
un veitunnar hafi forsvarsmenn
Landsvirkjunar lýst óánægju
með niðurstöðu málsins. „Stað-
reyndin er sú að ég veit ekki til
þess að núna um þetta leyti sé
neinn kaupandi að þessari orku.
Þannig að menn verða að gefa sér
tíma til að fara yfir þetta,“ segir
forsætisráðherra.
Sem kunnugt er hefur Krist-
inn H. Gunnarsson, þingmaður
Framsóknarflokksins og vara-
formaður umhverfisnefnd-
ar Alþingis, lýst sig andvígan
Norðlingaölduveitu og eru and-
stæðingar framkvæmdanna nú í
meirihluta í nefndinni. Stjórnar-
andstaðan hefur einnig krafist
þess að málið verði tekið upp á
Alþingi og lögum breytt með það
fyrir augum að afnema heimildir
Landsvirkjunar, stækka friðland
Þjórsárvera og koma þeim á
heimsminjaskrá.
Ef Landsvirkjun þarf að velja
aðra kosti en Norðlingaölduveitu
til frekari raforkuframleiðslu
á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu
nemur aukalegur kostnaður allt
að 6,5 milljörðum króna.
Í minnisblaði Landsvirkjunar
um stöðu framkvæmdaáætlunar
við Norðlingaölduveitu kemur
fram að fyrirtækið hafi þegar
lagt um 630 milljónir króna í
undirbúning veitunnar og þann
kostnað yrði að afskrifa ef hætt
verði við framkvæmdina.
Stofnkostnaður Norðlingaöldu-
veitu, miðað við 720 gígawatt-
stunda orkuframleiðslu á ári, er
9,5 milljarðar króna. Ef nýta yrði
aðra kosti gæti kostnaður numið
15 til 16 milljörðum króna að
mati Landsvirkjunar.
Landsvirkjun hefur í raun
öll leyfi nema svonefnd fram-
kvæmdaleyfi. Það er háð sam-
þykkt sveitarstjórna sem taka
mið af skipulagsáætlunum.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, hefur sagt að
næsta skref sé að hefja viðræður
við fulltrúa sveitarstjórnanna.
johannh@frettabladid.is
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA Forsætisráðherra segist ekki vita til þess að
neinn kaupandi sé að orku úr Norðlingaöldu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Enginn kaupandi að
orku Norðlingaöldu
Forsætisráðherra segir engan kaupanda að orku frá Norðlingaölduveitu sem
stendur og kveðst ekki eiga von á ákvörðun um framkvæmdir á næstunni.
Landsvirkjun telur veituna spara sér allt að 6,5 milljarða króna útgjöld.
STJÓRNMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra hefur fengið starfshóp til
þess að kanna hversu fýsilegt
sé að sameina Kennaraháskóla
Íslands og Háskóla Íslands. Hópn-
um er ætlað að skila niðurstöðum
fyrir lok febrúar.
„Ég hef haft þetta til skoð-
unar í tengslum við frumvarp
til háskólalaga sem er í mótun.
Ýmsar skýrslur liggja fyrir og
rektorar beggja skólanna hafa
lýst vilja til þess að skoða þetta í
alvöru, ekki síst með það í huga að
efla kennaramenntun í landinu.“
Þorgerður kveðst taka ákvörð-
un um framhald málsins þegar álit
starfshópsins liggi fyrir. „Þetta
verður unnið í sátt við báðar stofn-
anirnar. Athugaðir verða kostir og
gallar sameiningar. Í fljótu bragði
sýnist mér að þetta gæti orðið til
þess að efla kennaramenntun í
landinu, sem mjög er til umræðu.
Ég vil fá svar við því hvort sam-
eining sé líkleg til þess að bæta
kennaramenntunina í landinu,
bæta háskólastarfið og rannsókn-
ir. Ef svarið verður jákvætt hefj-
um við sameiningarferlið,“ segir
menntamálaráðherra.
Formaður starfshópsins verð-
ur Guðmundur Árnason ráðu-
neytisstjóri í menntamálaráðu-
neytinu. - jh
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
OG GUÐMUNDUR ÁRNASON Guðmundur
stýrir starfshópi þar sem kannað er hversu
fýsilegt sé að sameina HÍ og KHÍ.
Sameining Háskóla Íslands og Kennaraháskólans kemur til álita:
Kostir sameiningar skoðaðir
FÍKNIEFNAMÁL Lögreglan í Reykja-
nesbæ fann seint í fyrrakvöld um
800 grömm af hassi við húsleit í
heimahúsi í Sandgerði.
Íbúi í húsinu, maður á þrí-
tugsaldri, hefur játað að hafa
átt efnin og ætlað þau til sölu á
Suðurnesjum.
Lögreglan yfirheyrði mann-
inn strax í kjölfarið á fundinum
og sleppti honum lausum eftir að
hann hafði játað brot sitt.
Að sögn Jóhannesar Jenssonar,
rannsóknarlögreglumanns hjá
lögreglunni í Reykjanesbæ, stend-
ur rannsókn málsins enn yfir en
lögreglan á Keflavíkurflugvelli
aðstoðaði við húsleitina í fyrra-
kvöld. „Við yfirheyrðum sak-
borning í málinu og hann játaði
að hafa ætlað efnin til sölu. Við
undirbjuggum húsleitina vel og
rannsókn málsins er í eðlilegum
farvegi.“
Þessi fíkniefnafundur er
einn sá stærsti sem lögregl-
an í Reykjanesbæ hefur náð í
umdæmi sínu. Töluvert hefur
verið um smærri fíkniefnafundi
á síðustu árum í umdæminu og í
flestum tilfellum hefur verið um
hass að ræða. - mh
Fíkniefnafundur lögreglunnar í Reykjanesbæ í Sandgerði:
Tæpt eitt kíló af hassi fannst
HASSPÍPUR SEM GERÐAR HAFA VERIÐ UPPTÆKAR Í lögregluaðgerðum á suðvesturhorninu
að undanförnu hefur náðst að gera upptæk rúm tvö kíló af hassi. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN
TYRKLAND, AP Fuglaflensuveiru-
stofninn H5N1 gæti verið farinn
að smitast milli manna í Tyrk-
landi þó engar rannsóknir stað-
festi það enn, að sögn sérfræðings
hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni.
Rannsóknir sýna örlitla gena-
breytingu, sem þýðir að veiran
á auðveldar með að festa sig við
frumur úr manneskju heldur en
fuglum. Sýnið var tekið úr einu
af börnunum þremur sem létust
úr veikinni í Tyrklandi í síðustu
viku.
Þó eru vísindamenn ekki of
áhyggjufullir, því sams konar
breytinga varð vart í Suður-Kína
árið 2003 án þess að hún hefði
áhrif á útbreiðslu sjúkdómsins.
- smk
Fuglaflensan:
Genabreyting
í veirunni
FJAÐRAFOK Tyrkir slátra nú fiðurfé í stórum
stíl. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÍKNIEFNAMÁL Maður á fertugs-
aldri, sem búsettur er á höfuð-
borgarsvæðinu, er grunaður um
að hafa flutt inn og selt fíkniefni
til Vestmannaeyja en hann og
maðurinn sem tekinn var með 1,3
kíló af hassi í Eyjum tengjast fjöl-
skylduböndum.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
og fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík, vinna nú saman að því
að uppræta fíkniefnamisferlið en
vopn, fíkniefni og peningar voru
gerð upptæk í húsleitum í Vest-
mannaeyjum fyrir nokkru. - mh
Vestmannaeyjamálið:
Maður á fertugs-
aldri grunaður
FÍKNIEFNIN SEM FUNDUST Í EYJUM Spjótin
beinast nú að sölumanni efnanna á höfuð-
borgarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SÆÞÓRVÍDÓ
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Dóms- og
innanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsins ákváðu á föstudag að
ESB-ríkin myndu hjálpa yfirvöld-
um í Tansaníu að flytja flótta-
menn frá Mið-Afríku sem þar eru
í flóttamannabúðum til annarra
landa í Afríku.
Síðar mun ESB einnig veita
Úkraínu, Moldóvu og Hvíta-Rúss-
landi hliðstæða aðstoð við að fást
við flóttamenn sem þangað eru
komnir í von um að komast til
Vestur-Evrópu. Aðgerðirnar eru
liður í að efla milliríkjasamstarf
í því skyni að draga úr straumi
ólöglegra innflytjenda og hælis-
leitenda til Evrópu. ■
Innflytjendastefna ESB:
Flóttamönnum
haldið fjarri
DANMÖRK Flugfélagið SAS ætlar
að fjölga Kínverjum í áhöfnum
félagsins í áætlunarflugi til og
frá Kína á næstu árum. Þrjátíu
og fimm Kínverjar voru nýverið
ráðnir til starfa í þessum tilgangi.
Samkvæmt frétt Berlingske Tid-
ende er gert ráð fyrir að fjórir af
tíu starfsmönnum um borð verði
kínverskir í framtíðinni. Verka-
lýðsfélag flugliða í Danmörku
segir störf Dana hjá SAS vera að
flytjast úr landi. -ks
Flugfélagið SAS:
Fleiri Kínverjar
í flugáhafnir
SPURNING DAGSINS
Símon Jón, braustu nokkuð
spegil í gær?
Nei, enda fór ég varlega. Nú er bara að
sjá með daginn í dag; sjö, níu, þrettán.
Símon Jón Jóhannsson hefur skrifað margar
bækur um hjátrú og hvatti fólk til að fara sér
hægt í gær, föstudaginn 13. janúar.