Fréttablaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 64
48 14. janúar 2006 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JANÚAR 11 12 13 14 15 16 17 Laugardagur ■ ■ LEIKIR  14.00 ÍBV og Fram mætast í DHL- deild kvenna í handbolta.  15.00 Valur og Víkingur mætast í DHL-deild kvenna.  15.00 KA/Þór og Stjarnan mætast í DHL-deild kvenna.  16.15 FH og Haukar mætast í DHL- deild kvenna.  16.15 Grótta og HK mætast í DHL- deild kvenna í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  11.30 Heimsbikarinn á skíðum á Rúv.  13.30 Körfuboltahátið í Frostaskjóli á Rúv..  18.50 Spænski boltinn á Sýn.  22.50 NFL á Sýn. Úrslitakeppnin. Á undanförnum árum hafa kanadískir sykursjúklingar komið til Íslands til þess eins að hlaupa í hinu árlega Reykja- víkurmaraþoni sem fer fram í ágúst ár hvert. Landssamband sykursjúkra í Kanada hefur á undanförnum árum sent hlaupara til fjölmargra borga um allan heim í þeim tilgangi að safna fé til handa sambandinu. Hundruðir sykursjúkra Kanadamanna hlaupa á hverju ári í borgum eins og Róm, Dublin og Amsterdam. Hlaupar- arnir sjálfir skuldbinda sig til þess að afla tiltekinni fjárhæð og sambandið borgar kostnaðinn af æfingum, ráðgjöf og ferðalögum. Undanfarin ár hefur sam- bandið sent hlaupara til Íslands til þess að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Samkvæmt Kelly Webb, framkvæmda- stjóra sérverkefna fyrir Landssam- band sykursjúkra í Kanada, er þetta fjórða árið sem sambandið sendir hlaupara til Íslands. „Þetta er okkar uppáhaldsmaraþ- on af öllum þeim sem við tökum þátt í um allan heim. Það er ekki mjög stórt en er aftur á móti einstakt í sinni röð þar sem það er ekki þessi stórborgarbragur á því eins og mörgum öðrum.“ Samkvæmt Frímanni Ara Ferdinandssyni, framkvæmda- stjóra Reykjavíkurmaraþ- onsins, er þetta eini erlendi hópurinn sem kemur hingað gagngert til þess að safna fyrir einhverjum ákveðnum málstað. „Við erum reyndar með aðila í Þýska- landi og Bandaríkjunum sem koma hingað með hópa á hverju ári en það er enginn sem kemur í sömu erindagjörð- um og kanadísku sykursjúklingarnir.“ Frímann segir að metþátttaka hafi verið í Reykjavíkurmaraþoninu undanfarin ár og fjöldi erlendra keppenda aukist ár frá ári. í fyrra tóku þátt í hlaupinu rúmlega 4.200 manns og er von á að enn fleiri taki þátt í ár. Á þessu ári munu um 300 Kan- adamenn taka þátt á vegum landssambandsins sem er met- þátttaka. Það lítur því allt út fyrir að kanadískir sykursjúklingar verði á hverju strái hér á landi í ágúst á þessu ári. SYKURSJÚKIR KANADAMENN: KEPPA Í REYKJAVÍKURMARAÞONI 300 sykursjúklingar á leið til Íslands > Allir á völlinn Við mælum með að körfuboltaáhuga- menn fjölmenni í DHL-höllina í dag þegar Stjörnuleikir KKÍ fara fram. Ásamt leikjunum tveimur verður keppt í þriggja stiga keppni og troðslukeppni. Einnig munu starfs- menn KKÍ mæta íþrótta- frétta- mönnum í stuttum leik. Þetta ætti að verða veisla fyrir augað sem allir hafa gaman af. Ólafur og Sigfús meiddir Þeir Ólafur Stefánsson og Sigfús Sig- urðsson gátu ekki leikið með íslenska landsliðinu gegn Katar í gær vegna smávægilegra meiðsla. Þeir verða vænt- anlega báðir með gegn Norðmönnum á morgun. HANDBOLTI Arnór Atlason minnti rækilega á sig þegar Ísland lagði Noreg á fimmtudag. Hann fékk tækifæri til þess að leysa vandræðastöðu liðsins, sem er skyttustaðan vinstra megin, og má segja að hann hafi gripið tækifærið báðum höndum. Hann skoraði sex falleg mörk og átti þar að auki nokkrar línusending- ar sem gáfu mörk. Alfreð Gíslason hefur verið að móta Arnór sem handboltamann síðustu ár og hann gleðst yfir því að strákurinn sé að grípa tæki- færið. „Hann kemur úr þessari stöðu upprunalega þannig að hann þekkir hana vel,“ sagði Alfreð sem notaði Arnór aðallega sem miðju- og hornamann. Hann segir að Arnór geti engu að síður vel leikið sem skytta. „Hann átti frábæran leik í þessari stöðu hjá mér í fyrra gegn Hamburg og skoraði átta mörk. Það segir sína sögu.“ Það er eitt að eiga góðan leik í æfingaleik en annað að standa sig á stórmóti þegar mikið liggur við. Telur Alfreð að Arnór geti valdið þessu erfiða hlutverki? „Það er erfitt að leika aðra stöðu ef enginn er til að leysa mann af. Það á ekki bara við um Arnór heldur flesta leikmenn. Þetta eru margir leikir á skömm- um tíma en Arnór getur klár- lega hjálpað mikið og lagt sitt af mörkum. Arnór er sterkur kar- akter sem er vel treystandi og hann er sérstaklega sterkur gegn aggressívri vörn .“ henry@frettabladid.is Arnór getur leyst skyttuhlutverkið Alfreð Gíslason, fyrrum þjálfari Magdeburg og lærifaðir Arnórs Atlasonar, segir að Akureyringurinn ungi geti vel leyst skyttustöðuna vinstra megin hjá íslenska handboltalandsliðinu. ARNÓR Í FÍNU FORMI Skyttan unga sló í gegn í Túnis fyrir ári og fær gott tækifæri til að sanna sig aftur í Sviss.FRÉTTABLAÐIÐ/BONGARTS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.