Fréttablaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 12
 14. janúar 2006 LAUGARDAGUR H blaelgar › Hefurflúsé› DV í dag GÍSLI MARTEINN SPURNINGAKEPPNI UNDIRBÝR EUROVISION- 6 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 12. TBL. – 96. ÁRG. – VERÐ KR. 295 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 Helgarblað Þrúður ástfangin Bls. 33 Bls. 6 Bls. 24 Bls. 28–29 Bls. 22–23 Krummi borðar morgun- mat í kvöldmat Árni Jón Guðmundsson verður jarðsunginn í dag. Hannlést af völdum illkynja heilaæxlis sem lengi framan af vartalið að væri bara vöðvaverkir. Ekkja hans og börnin þeirra sex syrgja hann sárt en fjölskyldan sundraðist í kjölfar veikindanna. Börnin eru tímabundið í fóstri, enda fjárhagsstaða ekkjunnar bágborin, en í dag hefst söfnun til styrktar henni og börnunum. Bls. 38–39 barna móðir syrgir eiginmann ogsaknar barnanna GABRÍELA FRIÐRIKSDÓTTIR BLÆS Á KJAFTA- SÖGURNAR Jaroslava Davíðsson Konan á bak við súlu- kónginn Geira á Goldfinger ? #Verk=FRE- FOL;#Utgd=14.01.2006;#Nr= £248701;#Blm/Set=FE;#= d45120106_fjolskylda_0.jpg D44120106 Árni Jón G Árni Guðmundsson verður jarðaður í dag Eiginkonan og börnin sex syrgja en fjölskyldan sundraðist í kjölfar veikinda hans helgar augl - lesið 13.1.2006 20:35 Page 3 DV og frétta- flutningur þess var mál málan na í vikunni og tilkynntu rit- stjórarnir, Jónas Kristjánsson og Mikael Torfa- son, afsögn sína í gær. Sá fyrrnefndi er maður vikunn- ar. J ó n a s Kristjánsson er fæddur í R e y k j a v í k hinn 5. febrú- ar árið 1940, sonur Kristj- áns Jónasson- ar læknis og Önnu Péturs- dóttur bókara. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1959 og BA- prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1966. Jónas er kvæntur Krist- ínu Halldórs- dóttur, sem áður sat á þingi fyrir Kvennalistann og var fram- k væmdastjór i Vinstri grænna. Saman eiga þau fjögur börn. A f s k i p t i Jónasar af blaða- mennsku hófust snemma; árin 1961 til 1964 var hann blaðamaður og fréttastjóri á Tímanum, hann var fréttastjóri Vísis frá 1964 til 1966 þegar hann tók við ritstjórn blaðsins. Því starfi gegndi hann til 1975 þegar hann söðlaði um til að ritstýra Dagblaðinu. Árið 1981 voru blöðin sameinuð í Dagblaðið-Vísi og hélt Jónas um stjórnartaumana allar götur til 2002. Þá tók hann við rit- stjórn Fréttablaðsins en var ekki endurráðinn eftir að það skipti um eigendur sama ár. Ritstýrði hann þá hestamannatímaritinu Eiðfaxa þar til hann var ráðinn ritstjóri DV í fyrra. Auk blaðamennskunnar hefur Jónas skrifað fjölmörg rit og greinar sem oftar en ekki lúta að áhugamálum hans; hann er elskur að hestum og hefur gefið út mörg rit á sviði hrossaræktar. Hann er víðförull matgæðingur og hefur skrifað um merkar heimsborgir, matarmenningu og veitingahús. Landbúnaðarmál eru honum einnig hugleikin og hann hefur beitt sér mjög gegn landbúnað- arstefnu íslenskra stjórnvalda í leiðurum og á öðrum vettvangi. Engum dylst að áhrif Jónasar á íslenska fjölmiðlun eru mikil. Hann er víðlesinn í fjölmiðla- fræðum, hefur ávallt fylgst vel með því sem tíðkast erlendis og oft verið í fararbroddi við að inn- leiða nýjungar hér á landi. Hann hleypti nýju lífi í Vísi á sínum tíma sem hafði verið gengið illa um skeið. Lengst af stýrði hann blaðinu í sátt við eigendurna, sem voru kaupsýslumenn úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins. Jónas hefur hins vegar aldrei verið hrif- inn af þjónkun við valdhafa og hætti eigendunum að lítast á blik- una eftir því sem gagnrýnistónn blaðsins í garð stjórnvalda hækk- aði. Jónas gafst upp að lokum og fékk sig lausan ásamt Sveini Eyjólfssyni, framkvæmdastjóra Vísis, og stofnuðu þeir Dagblaðið sem þeir lýstu yfir að skyldi vera óháð öllum stjórnmálaflokkum, þvert á það sem aður tíðkaðist hér á landi. Jónas sinn- ir starfi sínu af lífi og sál og er meðal annars haft eftir honum að það fari ekki saman að rit- stýra dagblaði og eiga vini. Jónas þykir harður húsbóndi en sanngjarn; hann fær sínu framgengt og leyfir engum að komast upp með múður. Hann hélt sér gjarn- an í fjarlægð frá starfsfólki sínu og hafði ekki samskipti við það nema á fund- um, sem voru þó býsna tíðir. Hann er sagð- ur gera miklar faglegar kröfur til blaðamanna sinna sem leggi að sama skapi hart að sér við að standa undir þeim. Hann líður engum að setja sig á háan hest gagnvart sér og hikar ekki við að lækka í þeim rostann. Fræg er sú setning sem Jónas telur að eigi að vera til grundvallar í blaðamennsku: Hver, hvað, hvar, hvenær, hvernig, hvers vegna, hvað svo. Hann er líka höfundur hugtaksins „krana- blaðamennska“, sem þýðir gagn- rýnislaus fréttamennska þar sem blaðamaður skrúfar frá viðmæl- andanum eins og krana. Á slíkri blaðamennsku segist hann hafa ímugust. Margir töldu að ritstjórnarfer- ill Jónasar á dagblaði væri allur þegar hann hætti á Fréttablað- inu en í fyrra var hann ráðinn í stað Illuga Jökulssonar við hlið Mikaels Torfasonar sem ritstjóri DV. Að sögn hefur stjórnunarstíll Jónasar mýkst eftir að hann hóf aftur störf þar. Stefna blaðsins er vissulega óvægnari og í öðrum anda en áður, svo ekki sé minnst á umdeildari, en Jónas hefur notið trausts blaðamanna sinna enda varið þá af krafti í erfiðum málum. Nú hefur Jónas látið af störf- um á DV og enn á ný spá fáir því að hann muni ritstýra dagblaði aftur. MAÐUR VIKUNNAR Markaði djúp spor í íslenska blaðamennsku JÓNAS KRISTJÁNSSON FYRRVERANDI RITSTJÓRI REYKINGAR ERU EKKI GRENNANDI Reykingar eru alls enginn megrunarkúr og sígarettan versti einkaþjálfari sem völ er á. Ertu að misskilja eitthvað?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.