Fréttablaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
60 02 .V .B
s
met sy S
AE
KI
re tn I
©
Opið 10:00 - 20:00 virka daga | Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | www.IKEA.is
ÚTSALA
27 desember - 22 janúar
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
���������
���������������
Mér finnst oft gaman að lesa svokölluð götublöð eða gula
pressu eða síðdegisblöð eða hvað
sem þau kallast, svona blöð eins
og til dæmis The Sun, News of the
World, Ekstrabladet og New York
Post. Þetta eru svona blöð sem
nota stór orð og stórar fyrirsagn-
ir, alltaf eins og heimurinn sé að
farast. Allt að verða vitlaust, þið
vitið. Stórstjörnur skipta um hár-
greiðslu og það er komið á forsíðu.
Hvað var hann að spá? Maður bítur
hund. Blindur maður fær sjónina.
Maður í Skotlandi fær fimm réttar
í lottóinu og kaupir sér sundlaug.
Fótboltamaður klúðrar víti. Kall-
aður öllum illum nöfnum.
MÉR finnst svona blöð geta verið
mjög fyndin. Þegar best lætur
endurspegla þau hliðar á mann-
lífinu sem önnur, alvörugefnari
blöð, láta hjá líða að sinna. Það
er gaman að lesa sögur af fólki,
sögur sem varða ekki endilega
þjóðarhag eða þjóðaröryggi og
eru merkilegar einungis fyrir þær
sakir að þær varða undarleg hlut-
skipti einhvers eða áhugaverða og
óvænta röð atburða í hversdagslífi
almennings. Hispursleysi þeirra í
efnistökum getur líka virkað eins
og ferskur vindur í annars daufa
umræðu. Stundum getur verið fínt
að menn fái það óþvegið, til dæmis
fyrir að klúðra víti, í stað þess að
tiplað sé á tánum í kringum málin
signt og heilagt með tómum leið-
indum.
SVONA blöð eiga ekki að vera
meinlaus. Beinskeytt framsetn-
ing þeirra getur oft skilað góðum
árangri og hefur margsinnis orðið
til þess að stjórnmálamenn og
áhrifamenn í viðskiptalífi hafa
neyðst til að svara fyrir alls kyns
misgjörðir sem þeir hefðu jafnvel
komist upp með, óáreittir, ef götu-
blaðanna hefði ekki notið við. Daily
Mirror í Bretlandi hefur til dæmis
verið staðfast í gagnrýni sinni á
þátttöku Breta í Íraksstríðinu og
margoft komið ráðamönnum þar
réttilega í bobba.
ÞETTA þýðir þó ekki það að ein-
ungis götublöð geti flett ofan af
málum og að þeirra sé sannleik-
urinn á meðan hin, „virðulegu“
blöðin fáist við eitthvað allt annað.
Stærstu skandalarnir eru eftir sem
áður, sýnist mér í fljótu bragði,
afhjúpaðir með vandlegri yfir-
legu blaðamanna á blöðum eins
og Washington Post og New York
Times. Watergate-hneykslið var
dæmi um það. Hér á landi sýnist
mér að bæði Mogginn og Frétta-
blaðið hafi átt góða spretti í að
afhjúpa mál, nú síðast bréfaskipti
áhrifamanna út af Baugsmálinu.
Götublöð eiga ekki sannleikann.
ÉG vona að hér á landi takist að
festa í sessi góða og hressilega
gula pressu. Mér finnst DV oft
hafa verið á réttri leið, en líklega
er þetta vandasamt verk. Dáld-
ið eins og að drekka vín. Það er
mjög oft gaman, en stundum fær
maður sér of mikið í glas og gerir
skandal. Og ef það gerist of oft, þá
verður maður að hætta að drekka.
Ég vona að hinum nýju ritstjórum
gangi vel á þessari refilstigu, því
án góðs DV held ég að fjölmiðla-
umhverfið yrði talsvert fátækara.
Götublöð