Fréttablaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 14. janúar 2006 45
Hin smáa en knáa leikkona Rachel
Bilson hefur vakið nokkra athygli
fyrir leik í þáttunum The O.C. en í
þáttunum er lögð töluverð áhersla
á flott föt. Rachel er einnig ein
af þeim sem á hrós skilið fyrir
klæðaburð utan þáttanna.
Hún klæðir sig í örlítið gamal-
dags stíl dagsdaglega og verslar
mikið á mörkuðum og í búðum
sem selja notaðar flíkur. Hún
notar einnig mikið gallabuxur og
hlýraboli sem hún notar perlufest-
ar við.
Þegar hún mætir á rauða dreg-
ilinn er hún hins vegar oft í falleg-
um kjólum frá hönnuðum eins og
Stellu McCartn-
ey eða Marc
Jacobs og oftar
en ekki skartar
hún tösku frá
Chanel. Hún
leggur einnig
mikla áherslu
á skóna og er
ekki feimin við
að ganga í fal-
legum skóm í
áberandi litum.
Í tilefni af frambo›i og opnun kosningaskrifstofu Ármanns Kr. Ólafssonar efna
stu›ningsmenn hans til hófs í dag, laugardag frá kl. 17-19 a› Bæjarlind 4.
Stu›ningsmenn
allir velkomnir!
www.armannkr.is
Kosningaskrifstofa Bæjarlind 4 - Símar: 586 9090 og 899 9490.
Opi› frá kl. 16.00 virka daga og frá kl. 13.00 um helgina.
ÁRÆ‹I OG UMHYGGJA
ÁRMANN KR. ÓLAFSSON
Forseti bæjarstjórnar Kópavogs
Sty›jum framtí›armann til forystu
LITRÍKIR SKÓR Hún er hrifin af skó í sterk-
um litum og oftar en ekki eru þeir opnir í
tána, svakalega smart.
Litla stúlkan í O.C.
GÓÐ LITASAMSETNING Rachel er ófeimin
við að raða saman ólíkum litum og fá
skemmtilega útkomu.
SVART Liturinn
hefur sjaldan verið
vinsælli og Rachel
kann á hann.
MARC JACOBS
Eins og persónan
sem Rachel
leikur í þáttunum
er hún afar hrifin
af Marc Jacobs
og er hér mætt
við opnun nýrrar
Marc Jacobs-
búðar.
SÆTUR Hvítur blúndukjóll við svartar
sokkabuxur.
Tískuvikan í Rio De Janeiro stend-
ur nú sem hæst og hafa brasilísk-
ir hönnuðir farið á kostum þar
sem þeir sýndu hönnun sína fyrir
haust og vetur þessa árs. Nýjasta
línan frá Drosofilia skar sig að
vissu leyti úr þar sem hönnuðirn-
ir notuðu nánast aðeins svartan
og hvítan lit í flíkurnar. Annars
hafa ráðandi litir á tískuvikunni
í Brasilíu verið brúnn, fölbleikur,
appelsínugulur, grænn og fleiri
hlýir litir.
Fötin í línu Drosofilia voru
þó síður en svo venjuleg eða
leiðinleg þótt lítið hafi verið um
liti. Þarna mátti sjá ýmis konar
tímabilaáhrif og þar á meðal frá
sjötta áratugnum, þeim sjöunda
og níunda. Breið gervileðurbelti
yfir sætan fiftískjól með stóru
pilsi úr mörgum lögum mátti
meðal annars sjá á tískupallinum.
Einnig skörtuðu sumir kjólarnir
afar fallegum svörtum og hvítum
blómamunstrum en flestar fyrir-
sæturnar voru í svörtum sokka-
buxum við. Uppreimaðir og örlítið
tuskulegir leðurskórnir voru svo
fullkomið mótvægi við glæsilega
kjólana og komu í veg fyrir að
glamúrinn yrði yfirdrifinn.
Tískan í Rio
GERVI LEÐUR
Belti utan um
mittið minnir á
sjötta áratuginn.
SIXTÍS Sætur
kjóll með
blómamunstri.