Fréttablaðið - 14.01.2006, Síða 4

Fréttablaðið - 14.01.2006, Síða 4
4 14. janúar 2006 LAUGARDAGUR Skeifan 4 S. 588 1818 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 13.01.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 61,08 61,38 Sterlingspund 107,91 108,43 Evra 73,64 74,06 Dönsk króna 9,872 9,93 Norsk króna 9,12 9,174 Sænsk króna 7,916 7,962 Japanskt jen 0,5331 0,5363 SDR 88,49 89,01 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 103,3046 WASHINGTON, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti hafnaði í gær tillögu þýska kanslarans Angelu Merkel um að loka fangabúðun- um í bandarísku herstöðinni við Guantanamo-flóa á Kúbu. En á blaðamannafundi í Hvíta húsinu eftir viðræður þeirra þar í gær stóðu þau saman um að hvetja til þess að öryggisráð SÞ grípi inn í ef Íranar hætta ekki við að hefja aftur vinnu við kjarnorkuáætlun sína í trássi við samkomulag á vegum Alþjóðakjarnorkumála- stofnunarinnar. Þetta er fyrsta heimsókn Merkel vestur um haf eftir að hún tók við embætti í nóvember. Hún og gestgjafinn voru staðráðin í að sýna að samskipti landanna tveggja væru komin í samt lag eftir stjórnarskiptin í Berlín, en stirt hafði verið á milli Bush og Gerhards Schröder, fyrrverandi kanslara, vegna ágreinings um Íraksstríðið. Á blaðamannafundinum hafn- aði Bush tillögu Merkel um lokun Gua nta na mo -fa ngabúða n na . Hann sagði búðirnar „nauðsyn- legan þátt í landvörnum banda- rísku þjóðarinnar“. Þær yrðu starfræktar eins lengi og „stríð- ið gegn hryðjuverkum“ stendur yfir. - aa TENGSLIN BÆTT Angela Merkel og George W. Bush á blaðamannafundinum í Hvíta húsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Merkel Þýskalandskanslari og Bush Bandaríkjaforseti hittust í Washington: Ósammála um Guantanamo IÐNAÐUR „Hækkunin á raforku til iðnfyrirtækja hefur ekkert með innleiðingu samkeppninnar eða tilskipunar frá Evrópusamband- inu að gera heldur notuðu orku- fyrirtækin tækifærið á sama tíma og breytingin tók gildi og breyttu hjá sér gjaldskránni,“ segir Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra. Þannig svarar hún gagnrýni manna frá Samtökum iðnaðarins og iðnfyrirtækja um að breyting- ar á raforkulögum hafi leitt til aukins raforkukostnaðar iðnfyr- irtækja sem leiðir svo til hækk- aðs verðs til neytenda. Va l g e r ð u r segir að við g j a l d s k r á r - b r e y t i n g u n a hafi orkufyrir- tækin fellt út sérstaka taxta sem buðust fyrirtækjunum en kominn hafi verið tími til að breyta því fyrirkomulagi. „Ég gerði mér alltaf grein fyrir því að orkufyrirtæk- in myndu skýla sér á bak við breytingu raf- orkulaga í sam- bandi við ákveðna tiltekt sem þeir hafi þurft að gera,“ segir hún. Guðmundur Þóroddsson, for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, vísar þessum rökum Valgerðar á bug. „Við vorum alltaf á móti þessum nýju raforkulögum og vissum að breytingarnar myndu þýða hækkun á raforkuverði,“ segir hann. „Þau fólu það meðal annars í sér að við yrðum að afnema þessa taxta þar sem ekki var lengur heimilt að niðurgreiða verð og ekki mátti mismuna kaupendum með því að bjóða einum betra verð í dreifingu en öðrum. Hinsvegar er það rétt hjá Valgerði að þetta var orðið úrelt fyrirkomulag og það var kominn tími til að leggja það niður,“ segir hann. Hann segir enn fremur að raforkuverð sé því fyrst nú á raunvirði til þessara fyrirtækja. „Við erum með starfsemi í þremur öðrum löndum og nú er svo komið að í öllum þeim, og þar á meðal í Makedóníu þar sem raforka er framleidd með frek- ar frumlegum hætti, er rafork- an ódýrari en hér á landi,“ segir Sigurður Bragi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Plastprents. „Svo erum við að borga um það bil tíu sinnum meira fyrir kíló- vattstundina en stóriðjan þannig að annaðhvort erum við að nið- urgreiða raforkuna fyrir álverin í landinu eða orkufyrirtækin eru svona illa rekin,“ segir hann. „Það er alveg nægur flótti iðnfyrir- tækja úr landi; raforkuseljendur þurfa ekkert að flýta fyrir þeirri þróun,“ segir hann að lokum. Guðmundur segir að Orkuveit- an verðleggi rafmagn frá eigin virkjunum svipað á almennan markað og til stóriðju. jse@frettabladid.is Ráðherra vísar ábyrgðinni alfarið á raforkusalana Iðnaðarráðherra segir breytingar á raforkulögum ekki hafa leitt til hækkunar heldur hafi orkufyrirtækin skákað í skjóli þeirra. Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur vísar rökum ráðherra á bug. Nýju lögin hafi leitt til hækkunar. Framkvæmdastjóri Plastprents segir raforkuverð ódýrara í Makedóníu en hér á landi. VALGERÐUR SVERR- ISDÓTTIR HÚS ORKUVEITU REYKJAVÍKUR Iðnaðarráðherra og forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur greinir á um það hvort breytingar á raforkulögum hafi leitt til aukins raforkukostnaðar iðnfyrirtækja og hækkana á raforku til neytenda í kjölfarið. Forstjórinn heldur því fram að svo sé en ráðherra vísar því á bug. GUÐMUNDUR ÞÓR- ODDSSON UNDIRSKRIFTIR Borgar Þór Einars- son, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, afhenti í gær Páli Baldvin Baldvinssyni, nýjum ritstjóra DV, undirskriftir 32.044 Íslendinga sem skoruðu á blaða- menn og ritstjórn DV að endur- skoða ritstjórnarstefnu sína. Borgar Þór segir undirskrift- irnar hafa orðið mun fleiri en hann bjóst við í upphafi. „Okkar hlutverk, í ritstjórn Deiglunnar, var að skapa farveg fyrir þá fjöl- mörgu Íslendinga sem vildu koma skilaboðum sínum til ritstjórnar DV áleiðis. Þetta var augljóslega eitthvað sem brann á fólki í sam- félaginu.“ - mh 32.044 mótmæltu: Undirskriftir afhentar DV BORGAR ÞÓR EINARSSON Borgar sést hér með undirskriftirnar á rauðum pappír. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL 27 ára gamall maður hefur verið dæmdur í 30 daga fangelsi, haldi hann ekki skilorð í tvö ár, fyrir sölu og neyslu á fíkni- efnum. Maðurinn var handtekinn með tæplega hundrað grömm af hassi í bifreið sinni. Við húsleit hjá honum í Hafnarfirði fundust tæp- lega tvö grömm aukalega. Dómara í Héraðsdómi Reykja- ness þótti rétt að skilorðsbinda dóminn þar sem maðurinn hafði ekki brotið af sér áður og þar sem hann játaði brot sín skýlaust. Hann greiðir verjanda sínum tæplega 44 þúsund krónur í þókn- un. - gag Seldi og notaði fíkniefni: Fær skilorðs- bundinn dóm DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- ness hefur dæmt 25 ára konu í fimm mánaða fangelsi fyrir að smygla hálfu grammi af hassi inn á Litla-Hraun. Fangaflutningamenn fundu hassið við leit á henni. Hún var einnig dæmd fyrir margvís- legt hnupl en frá árinu 2003 hefur hún hlotið sjö fangelsisdóma, aðal- lega fyrir þjófnaði. - gag Kona dæmd í fangelsi: Smyglaði hassi inn á Hraunið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.