Fréttablaðið - 14.01.2006, Page 30

Fréttablaðið - 14.01.2006, Page 30
[ ] Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Sópurinn getur komið sér vel á morgnana þegar bíllinn er á kafi í snjó. Það er fljótlegast að sópa snjóinn bara af bílnum og lítil hætta á því að lakkið rispist. Renault Modus er hvort tveggja í senn, smábíll og fjölnota bíll. Við hönnun hans er áhersla lögð á gott innanrými og marg- breytilega notkunarmöguleika. Aksturseiginleikar bílsins eru einnig ljómandi góðir. Nýjasti meðlimur Renault-fjöl- skyldunnar heitir Modus. Hann er jafnframt minnsti meðlimurinn. Samt sem áður er þetta fjölnota bíll sem þýðir að innanrýmið í honum er bæði mikið og býður upp á marg- háttaða notkunarmöguleika. Rými í fram- og aftursætum er gott og vel fer um bæði bílstjóra og farþega. Setið er hátt í bílnum sem, ásamt stórum gluggum, gerir að verkum að útsýni bílstjóra er afar gott. Vinnuaðstaða bílstjóra er góð með góðu aðgengi að stjórntækjum. Mælaborðið er reyndar miðjusett sem er örlítið önugt fyrir óvana en venst vel. Bíllinn er afar vel búinn geymslu- rýmum sem er haganlega og ekki síður frumlega fyrir komið. Bíllinn sem reynsluekið var er með 1,6 lítra vél, sjálfskiptur með beinskiptivali. Hann reyndist ágætlega snarpur á lengri sprett- um og vitanlega afar lipur í borg- arakstrinum. Í Comfort-útgáfunni er hið svokallaða Triptic-sæta- kerfi eftirtektarvert. Það lýsir sér þannig að aftursætið er á sleða þannig að hægt er að renna því aftur til að auka fótarými og fram ef ekki er þörf fyrir svo mikið rými fyrir fætur en meiri þörf fyrir pláss í skotti. Auk þess getur það bæði verið tveggja manna og þriggja manna. Í þriggja manna stillingunni er það slétt en með því að fella miðjusætið inn í bakið og renna hinum tveimur saman, sem er einföld og auðveld aðgerð, er aft- ursætið orðið rúmgott og þægilegt tveggja manna sæti. Eins og aðrir bílar af Renault gerð hefur Modusinn skorað hátt í árekstrarprófinu Euro NCAP og er með fullt hús stiga, eða fimm stjörnur, sá eini í sínum stærðar- flokki. Þetta er vitanlega gríðar- legur kostur við bíl sem ekki síst hentar barnafjölskyldum. Í Renault Modus kemur saman smábíll og fjölnota bíll. Bíllinn býður vitanlega ekki upp á sömu möguleika og stærri fjölnota bílar þótt innanrýmið sé stórt miðað við smæð bílsins. Á móti kemur að Modusinn er mun liprari í allri umferð en stærri fjölnota bíll og hefur ekkert af þeim geimskipsein- kennum sem þá vilja einkenna. steinunn@frettabladid.is Öruggur og skemmtilegur fjölnota franskur smábíll Renault Modus er nokkuð laglegur að utan þótt vissulega sé hann kubbslegur eins og aðrir fjölnotabílar. Að innan er bíllinn flottur og nútímalegur, enda Frakkar þekktir af öðru en að búa til gamaldags bíla. Einnig er mælaborðið miðjusett eins og nú er talsvert í tísku. Skottið er vissulega ekki stórt en þó ágæt- lega rúmgott miðað við stærð bílsins. Að sjálfsögðu má svo auka farangursrými með því að leggja niður aftursæti. Farangurslúgu má opna í tvennu lagi í Dynamic. Geymslurýmum er komið fyrir af mikilli hugvitssemi. Útlitið svíkur ekki hjá hönnuðum Renault eins og sjá má. Litli spegillinn fyrir ofan baksýnisspegilinn er til að hægt sé að fylgjast með börnun- um í aftursætinu. RENAULT MODUS 1.2 Acces 75 hö kr.1.490.000 1,2 Comfort 75 hö kr.1.590.000 1,4 Comfort 100 hö kr.1.650.000 1,5 Dísel 85 hö kr.1.790.000 1,6 Comfort sjsk. 115 hö kr.1.850.000 1,6 Dynamic Lux sjsk. 115 hö kr.1.990.000 REYNSLUAKSTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.