Fréttablaðið - 23.01.2006, Side 8

Fréttablaðið - 23.01.2006, Side 8
8 23. janúar 2006 MÁNUDAGUR Númer eitt í notuðum bílum Audi A6 1,8 T sjálfsk. árg. 03 ek. 74.000 verð 2.750.000 kr. MMC Outlander 2,4 sjálfsk. árg. 04 ek. 32.000 verð 2.290.000 kr. MMC Pajero Sport 2,5 D. beinsk. árg. 05 ek. 8.500 verð 3.370.000 kr. Skoda Octavia 2,0 beinsk. árg. 04 ek. 30.000 verð 1.690.000 kr. VW Passat 4Motion beinsk. árg. 03 ek. 63.000 verð 1.890.000 kr. MMC Pajero GLX 3,2 D. sjálfsk. árg. 04 ek. 53.000 verð 3.690.000 kr. MMC Pajero GLS 3,5 sjálfsk. árg. 04 ek. 10.500 verð 4.690.000 kr. VW Bora Highline 1,6 sjálfsk. árg. 03 ek. 25.000 verð 1.590.000 kr. Nokkrir góðir á Laugaveginum! Laugavegi 174 sími 590 5000 Kletthálsi 11 sími 590 5040 www.bilathing.is Opið mánudaga til föstudaga 10–18 • Laugardaga 12–16 VEISTU SVARIÐ 1 Hvað hét forseti Kosovo sem lést á laugardag? 2 Hver náði fjórða sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi? 3 Hvernig fór landsleikur Íslands og Frakklands í handknattleik? SVÖR Á BLS. 30 MENNING Fjögur lög eru komin áfram í undankeppni Söngva- keppni Sjónvarpsins en sigur- lag keppninnar verður framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í maí. Lögin sem komust áfram eru: Strengjadans eftir Davíð Þ. Olgeirsson, Stundin – staðurinn eftir Ómar Ragnarsson, Það sem verður eftir Hallgrím Óskars- son og Þér við hlið eftir Trausta Bjarnason. Undankeppnin heldur áfram næstu tvo laugardaga og úrslita- keppnin fer fram 18. febrúar. - bþs Söngvakeppni Sjónvarpsins: Fjögur lög áfram SÖNGVAKEPPNIN Kynnar voru Brynhildur Guðjónsdóttir og Garðar Thor Cortes. SAMEININGARMÁL Íbúar fjögurra sveitarfélaga á Norðurlandi, Raufarhafnarhrepps, Öxarfjarðar- hrepps, Kelduneshrepps og Húsa- víkurbæjar, samþykktu í kosn- ingu um helgina að sameina skuli sveitarfélögin í eitt sveitarfélag. Reinhard Reynisson, bæjar- stjóri Húsavíkurbæjar, er sann- færður um að sameining sveitar- félaganna fjögurra muni reynast gæfuspor til framtíðar. „Þetta er ánægjulegur áfangi og niður- staðan í kosningunni sýnir skýr- an vilja íbúa á svæðinu til þess að sameina sveitarfélögin. Það er alveg ljóst að með þessari samein- ingu mun slagkrafturinn á svæð- inu, á öllum mögulegum sviðum, aukast til muna. Við höfum verið að reka saman umsvifamikla þjón- ustu í gegnum héraðsnefndina en þetta mun hjálpa okkur við að gera stjórnsýsluna á svæðinu öllu skilvirkari. Þetta er mikilvægt skref í áttina að því að sameina sveitarfélögin enn frekar hér á Norðurlandi.“ Kosningin í Öxarfjarðarhreppi var fyrirfram talin tvísýnust en í kosningunum í haust munaði aðeins sex atkvæðum á því að sam- einingartillaga yrði felld í hreppn- um. Rúnar Þórarinsson, oddviti í Öxarfjarðarhreppi, segir niður- stöðuna í kosningunum nú sýna að hugarfar fólks til sameiningar sé að breytast en 96 samþykktu nú sameininguna en 77 voru á móti. „Niðurstaðan að þessu sinni var nú betri en ég þorði að vona. Ég er sannfærður um að þjón- ustan í Öxarfjarðarhreppi mun ekki skerðast. Þvert á móti er ég sannfærður um þjónustan í hér- aðinu sé byggð á traustari grunni í stærra og öflugra sameinuðu sveitarfélagi.“ - mh Forsvarsmenn sveitarfélaga fagna sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Norðurlandi eystra: Sameining öllum íbúum til hagsbóta DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri var á föstudag dæmdur í 2 mán- aða fangelsi fyrir að hafa rúm 300 grömm af hassi í fórum sínum en lögreglan gerði húsleit á heimili hans í Garðabæ og fann þar fíkni- efnin. Að auki var maðurinn sak- felldur fyrir að hafa eyðilagt umferðarljós á Hafnarfjarðar- vegi í desember í fyrra og stolið verkjalyfjum og sjúkragögnum, ásamt öðrum manni, úr báti við smábátahöfnina í Hafnarfirði. Maðurinn fékk tólf mánaða fangelsisdóm en fullnustu tíu mán- aða af refsingunni var frestað. - mh Fíkniefnasali dæmdur: Fékk tveggja ára fangelsisvist SKEMMTANIR „Við stóðum nú ekki að þessu sjálfir en þetta var flutt hér yfir götuna á annan skemmti- stað og haldið þar undir nafninu „Blátt kvöld“, segir Jósep Þor- björnsson, rekstaraðili Traffic í Keflavík. Staðurinn auglýsti fyrr í vik- unni sérstakt „Klámkvöld“ sem halda átti í gærkvöld en af því varð ekki vegna mótmæla íbúa í bænum auk þess sem lögregla aft- urkallaði skemmtanaleyfi staðar- ins nýlega. Það var í staðinn haldið hinu megin við götuna frá Traffic á skemmtistaðnum Hápunktinum undir nafninu „Blátt kvöld“ og gekk að óskum. Þar komu fram fáklæddar dansmeyjar og boðið var upp á önnur atriði sem sér- staklega voru fyrir karlmenn en kvöld sem þessi hafa reglulega verið haldin á Traffic án vand- ræða að sögn Jóseps. Þrátt fyrir að ekkert skemmt- analeyfi væri fyrir hendi var opið á Traffic í gærkvöld og taldi rekst- araðilinn að leyfið fengist aftur eftir helgi enda ekkert ólöglegt í gangi og engin lög verið brotin. - aöe TRAFFIC Í KEFLAVÍK Klámkvöldið breyttist í Blátt kvöld og var haldið gegnt skemmti- staðnum Traffic þar sem skemmtanaleyfi Traffic var afturkallað af lögreglu.VÍKURFRÉTTIR „Klámkvöldi“ á skemmtistaðnum Traffic aflýst: Skiptu klámi út fyrir blátt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.