Fréttablaðið - 23.01.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 23.01.2006, Blaðsíða 10
10 23. janúar 2006 MÁNUDAGUR STÓRIÐJA Íbúar í Fjarðabyggð eru afar jákvæðir í garð Alcoa Fjarða- áls, sem nú reisir stærstu álverk- smiðju landsins á Reyðarfirði. Yfir níutíu af hverjum hundrað einstaklingum, sem spurðir voru í Fjarðabyggð í desember síðastliðn- um, sögðust vera frekar eða mjög jákvæðir í garð stórfyrirtækisins. Í Gallupkönnuninni, sem gerð var fyrir Alcoa Fjarðaál í seinni- hluta desember, voru liðlega eitt þúsund Austfirðingar spurðir. Þótt mikill meirihluti þeirra sé jákvæður í garð fyrirtækisins kemur fram nokkur munur á við- horfum eftir búsetu. Þannig eru um sjötíu af hverjum hundrað íbúum á Egilsstöðum mjög eða frekar jákvæðir í garð Alcoa Fjarðaáls eða nokkru færri en í Fjarðabyggð. Spurt var einnig hvort fólk teldi að gott gæti orðið að vinna hjá Alcoa Fjarðaáli. Nær allir íbúar Fjarðabyggðar töldu að gott eða frekar gott yrði að vinna hjá fyr- irtækinu eða 94 af hverjum 100 íbúum. Hlutfallið er nokkru lægra utan Fjarðabyggðar. Um áttatíu prósent íbúa á Fljótsdalshéraði töldu að gott eða frekar gott yrði að vinna hjá Alcoa Fjarðaáli. Í könnun sem IMG Gallup gerði síðastliðið haust á öllu landinu kom fram að um 58 prósent landsmanna voru mjög eða frekar jákvæðir í garð Alcoa Fjarðaáls. Í Reykjavík- urkjördæmi voru um 27 prósent mjög eða frekar neikvæðir í garð fyrirtækisins en þar reyndist and- staðan einna mest. Samkvæmt niðurstöðum nýju könnunarinnar eru íbúar á Aust- urlandi jákvæðari gagnvart Alcoa Fjarðaáli nú en fyrir ári síðan og nýtur fyrirtækið meira trausts nú en þá. Konum á Austurlandi þykir afar fýsilegt að vinna hjá Alcoa Fjarða- áli. Nær allar, eða 98,5 prósent þeirra sem svara í könnuninni, telja að það gæti orðið mjög eða frekar gott að vinna hjá fyrirtæk- inu, en liðlega 90 prósent karla. Úrtak IMG Gallup var 1.135 íbúar á Austurlandi á aldrinu 16 til 75 ára. Tveir af hverjum þremur svöruðu spurningunum í könnun- inni. johannh@frettabladid.is FRAMKVÆMDIR VIÐ ÁLVERIÐ Í REYÐARFIRÐI Konur á Austurlandi vilja jafnvel enn frekar en karlar fá vinnu hjá Alcoa Fjarðaáli. Konur vilja vinna í álveri Ný könnun leiðir í ljós að Alcoa Fjarðaál nýtur meira trausts meðal Austfirðinga en áður. SAMGÖNGUR Fyrir tilstuðlan Þór- halls Halldórssonar, deildarstjóra hjá Strætó, komst John Magnus Wright, andlega fatlaður fjórtán ára strákur, í fermingarfræðslu eftir að hafa verið meinað að taka strætisvagn. Sökum þess að John er ekki orðinn sextán ára fær hann ekki örorkukort frá Tryggingastofnun heldur ummönnunarkort og dugði það ekki til að fá afgreidda stræt- ómiða á þeim afsláttarfargjöldum sem gilda eiga um öryrkja þegar hann þurfti á að halda. Lét hann móður sína vita að hann sæti því fastur á Hlemmi. Móðir hans hringdi í Strætó bs. þar sem fyrir svörum varð Þórhallur Halldórs- son deildarstjóri sem gerði sér lítið fyrir þegar hann heyrði af vandræðum Johns og sótti hann á einkabíl á Hlemm og skutlaði honum upp í Breiðholt. Elín Magnúsdóttir, móðir Johns Magnus, sagði að þessi liðveisla Þórhalls væri aðdáun- arverð og til eftirbreytni. „Ég er honum afar þakklát og vildi koma því á framfæri þar sem ýmislegt miður hefur verið sagt um Strætó undanfarin misseri.“ - aöe LÁN Í ÓLÁNI Vagnstjóri Strætó vildi ekki selja John Magnus farmiða á öryrkjagjaldi. Móðir hans segir framkomu deildarstjóra Strætó til mikils sóma. Fötluðum pilti á leið í fermingarfræðslu meinað að taka strætó: Starfsmaður skutlaði stráknum DÓMSMÁL Meiðyrðamál Bubba Morthens gegn 365 prentmiðlum og Garðari Úlfarssyni, fyrrver- andi ritstjóra Hér og nú, var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag en Bubbi segir sjálfur að ofbeldi gegn sér og sinni fjöl- skyldu í skjóli ritfrelsis, verði ekki liðið. „Ég lít á málið með þeim augum að um ofbeldi hafi verið að ræða, en ekki bara meiðyrði,“ sagði Bubbi í gær. Garðar Örn Úlfarsson, fyrrum ritstjóri Hér og nú, telur Bubba ekki hafa neitt til síns máls. „Ég er handviss um það að við vinnum þetta mál en við munum færa rök fyrir okkar sjónarmiðum þegar þar að kemur í dómssal.“ Bubbi Morthens fer fram á 20 milljónir í skaðabætur. Aðalmeðferð mun fara fram þann 10. mars að loknu milliþing- haldi. - mh Mál Bubba Morthens gegn Hér og nú og 365 prentmiðlum: Lítur á málið sem of- beldi en ekki meiðyrði BUBBI MORTHENS Segir grein blaðsins hafa verið ofbeldi gegn sér og fjöl- skyldu sinni. KÓPAVOGUR Samfylkingin í Kópa- vogi hefur boðað til fundar um stöðu mála á svæði hestamannafé- lagsins Gusts og niðurstöðu launa- ráðstefnu sveitarfélaga. Ítrekað hefur verið falast eftir húsunum og landinu sem þeim fylgir og háar fjárhæðir boðnar og er starfsemi félagsins í upp- námi vegna þess. Fundurinn er öllum opinn og verður haldinn í kvöld í Hamra- borg 11 klukkan 20.30. - sh Samfylkingin í Kópavogi: Fundað um stöðu Gusts SADDAM SELDUR Götusali í Írak selur geisladiska með myndbandsupptökum af fyrrverandi forseta landsins, Saddam Hussein, á útimarkaði. AP/REUTERS AIX-EN-PROVINCE, AP Maður, sem talinn er hafa ætlað að sprengja skattstofu í Aix-en-Province í Frakklandi í gær, lést þegar sprengja sem hann bar innan- klæða sprakk tuttugu mínútum á undan áætlun vegna galla í kveikibúnaði. Lík mannsins fannst nærri skattstofunni en sprengingin olli litlum skemmdum á bygging- unni. Ekki liggur fyrir hvers vegna manninum var svo uppsigað við skattstofuna en lögreglan í Aix- en Province hefur handtekið vin hans sem grunaður er um að eiga aðild að málinu. ■ Franskur sprengjumaður lést: Misheppnuð sjálfsmorðsárás GARÐAR ÖRN ÚLFARSSON Kveðst handviss um að Hér og nú vinni málið fyrir dómi. MALARNÁM Fyrirhuguð efnistaka úr Ingólfsfjalli mun hafa mikil og neikvæð varanleg áhrif á ásýnd og nánasta umhverfi samkvæmt frummatsskýrslu sem gerð hefur verið. Þetta kemur fram í skýrslu sem unnin var af Fossvélum og er samkvæmt henni engum vafa undirorpið að Ingólfsfjall mun taka sýnilegum breytingum frá því sem nú er gangi allar hug- myndir eftir. Þannig mun fjalls- brúnin breytast á kafla og lækka um 80 metra. Jafnframt verða sjáanleg ummerki í klettabelti fjallsins. Þó er bent á að framkvæmdin muni ekki hafa ýkja alvarlegar afleiðingar hvað mengun varðar og áhrif á dýralíf og gróðurfar- verða minniháttar ef nokkur. Jákvætt þykir að með efn- istöku úr Ingólfsfjalli minnka vegalengdir eftir efni til muna og kostnaður sveitarfélaga minnkar auk þess sem öll umferð flutningatækja á vegum verður minni. - aöe MIKIL SJÓNMENGUN Frummatsskýrsla sýnir að malarnám úr Ingólfsfjalli mun hafa frek- ari áhrif á ásýnd þess en þegar er orðið. Efnistaka úr Ingólfsfjalli þykir hafa neikvæð áhrif: Lækkar um 80 metra Sundurskotin lík Lögreglan í Bagdad fann sundurskotin lík 23 manna á sunnudag. Mönnunum hafði verið rænt norður af borginni í vikunni en þeir voru á leið heim eftir að þeim hafði verið neitað um inngöngu í þjálfunarbúðir írösku lögreglunnar. ÍRAK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.