Fréttablaðið - 23.01.2006, Side 20
23. janúar 2006 MÁNUDAGUR4
RÝMINGARSALA
Gegnheilar flísar frá kr. 1.090.- m
Smellt plastparket frá kr. 790.- m
Verðdæmi:
2
2
Skútuvogi 6 Sími 568 6755 www.alfaborg.is� �
25% afsláttur af
Nordsjö málningu
Flísaafgangar frá
kr. 600 m2
Þúsundir fermetra af flísum
á lækkuðu verði
Einhver merkasti arkitekt sög-
unnar er án efa Svisslending-
urinn Le Corbusier. Áhrif hans
á módernisma og uppbyggingu
borga eru gífurleg og víða eru
þau auðsjáanleg. Húsgögn sem
hann hannaði eru löngu orðin
sígild.
Le Corbusier hét í raun Charles-
Edouard Jeanneret og fæddist í
bænum Le Chaux-de-Fonds í sviss-
neska hluta Júralfjalla árið 1887.
Er hann hóf nám við listháskóla
byrjaði hann strax að kynna sér
hinar ýmsu stefnur og hafði þá sér-
stakan áhuga á því sem var nýtt og
ferskt.
Arkitektúr Le Corbusier er erf-
itt að lýsa í örfáum orðum. Það sem
var kannski helst byltingarkennt
við hugmyndir hans var heildar-
skipulag sem hann lagði mikla
áherslu á. Hann var einn af þeim
fyrstu sem sá fyrir byltingu bílsins
og vildi byggja borgir með miklu
rými, bæði fyrir bílaumferð og
umfram allt með svæði fyrir úti-
veru. Corbusier vildi byggja háhýsi
á stultum eða burðarbitum þannig
að nýta mætti svæðið undir þeim.
Hann vildi ekki að borgir yrðu
skítugur og of iðnvæddar heldur
ættu þær vera rúmar og aðlaðandi.
Höfuðborg Brasilíu, Brasilía, var
byggð frá grunni um miðja síðustu
öld og voru hugmyndir Le Corbusi-
ers hafðar að leiðarljósi við skipu-
lag hennar. Í þeirri borg birtist
einnig sú hugmynd Corbusiers að
allar byggingar ættu að vera hvítar
samkvæmt lögum.
Fáir eða jafnvel enginn hönn-
uður eða arkitekt hefur haft jafn
mikil áhrif á módernisma sem var
allsráðandi á seinasta fjórðungi á
öldinni sem leið. Hugmyndir hans
um hönnum sem bætti lífskilyrði
var byltingarkennd auk þess sem
þær hugmyndir komust vel til
skila. Enn ein rósin í hnappagat Le
Corbusier var glæsileg hönnun.
Le Corbusier er enn þann dag
í dag einhver almerkasti arki-
tekt sögunnar og er auk þess einn
þekktasti einstaklingur sem Sviss
hefur alið þó að Frakkar hafi
ítrekað reynt að eigna sér hann.
Einn áhrifamesti
arkitekt 20. aldarinnar
Húsgagnahönnun Le Corbusier var ekki
síður merkileg og er þessi legustóll án efa
hans þekktasta verk á því sviði.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Chapel of Notre Dame du Haut, kirkja sem sýnir vel módernískan stíl Le Corbusier. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Fjölbýlishús í Marseilles sem í eru meðal annars 337 íbúðir, verslanir, skóli á þakinu,
hlaupabraut og útileikhús. NORDICPHOTOS/AFP
Frá húsi hæstaréttar í Punjab-fylki á Indlandi sem ber margs konar einkenni hönnunar Le
Corbusier. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Svisslendingurinn Le Corbusier hugsaði
mikið um heildarskipulag og vildi bæta
almenn lífsskilyrði með hönnun sinni.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES