Fréttablaðið - 23.01.2006, Side 21
MÁNUDAGUR 23. janúar 2006
RÁÐ frá Rakel
RAKEL ÁRNADÓTTIR SKRIFAR UM ELDHÚSMÁL
Eru málin í lagi í eldhúsinu?
Til eru staðalmál fyrir eldhús sem
eiga að henta nútímafólki. Rétt
vinnuhæð er talin mjög mikilvæg
því of há vinnuhæð veldur þreytu
í öxlum og hálsi, en of lág bak-
verkjum. Flestir kannast við lágu
innréttingarnar sem komu fyrst á
markaðinn þar sem þurfti kíki til
að horfa niður á eldhúsbekkinn.
Margir kannast við brandarann úr
sjúkraskýrslum þar sem segir; „sjúk-
lingur er karlmaður sem kvartar yfir
bakverkjum, einkum ef hann vaskar
upp í sumarbústað“. Það þarf nefni-
lega ekki að vera að þetta sé afsök-
un hjá manninum, heldur getur
verið að í bústaðnum sé gömul
innrétting sem er ekki af réttri hæð.
Fyrstu innréttingarnar voru hannað-
ar út frá meðalhæð kvenna, en hún
var nokkrum sentimetrum lægri þá
en í dag. Eða kannski var maðurinn
bara of hávaxinn til að vinna við
borð með nútímastaðli.
Í dag er stöðluð vinnuborðs-
hæð í eldhúsi 90 cm fyrir standandi
manneskju. Þetta er hæð sem pass-
ar 85% N-Evrópubúa. Hins vegar er
þetta of lág vinnuhæð fyrir karl-
menn sem þvo upp í höndunum.
Hæð á eldavél skiptir ekki eins
miklu máli og hæð á vaski, því fólk
vinnur meira við vask en eldavél,
segja sérfræðingar. 5 cm hækkun
myndi þó laða fleiri karlmenn að
uppvaskinu, en gera margar konur
fráhverfa því. Karlmaður sem er 190
cm eða hærri þyrfti vinnuhæðina
100 cm. Þannig að ennþá hentar
vinnuhæðin fleiri konum en körl-
um. Til að halda húsfriðinn má nátt-
úrulega fá sér uppþvottavél. Það er
þó góðs viti að aukinn skilningur
framleiðenda hefur orðið til þess að
hægt er að panta innréttingar sem
henta hverjum og einum. Ef bæði
hjónin eru hávaxin er hægt að fá
innréttingu með neðriskápum í 95-
100 cm hæð.
Til viðmiðunar skal þess getið
að dýpt vinnuborða og neðri skápa
á að vera 60 cm samkvæmt staðli.
Dýpt efriskápa er nokkuð breytileg
en má aldrei vera meiri en 37 cm.
Sökkulhæð á að vera á bilinu 15-17
cm og sökkuldýpt 50 cm. Bil milli
neðri og efri skápa er oftast 45-55
cm og athafnarými fyrir framan
eldavél, vask og skápa má ekki vera
minni en 110 cm svo að komist
verði hjá óþægindum og jafnvel
slysum.