Fréttablaðið - 23.01.2006, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 23.01.2006, Blaðsíða 56
 23. janúar 2006 MÁNUDAGUR40 Lítið er af lausum bygginga- lóðum á Akureyri en óvenju mörgum var úthlutað á síðasta ári. Lóðir liggja ekki á lausu á Akur- eyri eins og er en þó telst ekki vera skortur á þeim. Í desember voru tilbúnar lóðir fyrir um 630 íbúðir sem ekki var byrjað að smíða en þeim hafði verið úthlutað til bygg- ingafyrirtækja og einstaklinga. Unnið er að deiliskipulagi tveggja nýrra íbúðareita í Naustahverfi og er áformað að úthluta lóðum undir 30 einbýlishús í öðrum þeirra á þessu ári og um mitt ár verða væntanlega auglýstar nokkrar atvinnulóðir í Krossaneshaga, sem verða byggingahæfar síðar á árinu. Einnig er deiliskipulag nýs athafnasvæðis nyrst í bænum í vinnslu, næst Lónsá og þjóðvegi. Á síðasta ári var úthlutað lóðum fyrir um 660 íbúðir á Akureyri sem er um ferfalt með- altal næstu fjögurra ára á undan. Svipaða sögu er að segja af lóðum fyrir atvinnuhúsnæði. Af www. akureyri.is. Lóðir ekki á lausu Margir vilja byggja á Akureyri. Á árunum 1956 til 1966 var Árbæjarskóli starfræktur í samkomuhúsi á Árbæjar- blettinum þar sem kennt var í þremur deildum. Haustið 1967 hóf skólinn göngu sína í nýju húsi með 421 nemanda. Þá fjölgaði nemendum hratt og náði nem- endafjöldi hámarki á fimm ára afmæli skólans en þá voru nemendur 1.081 talsins. Í ár eru nemendur hins vegar rúmlega 800 en jafnvægi hefur verið á nemendatölu skólans frá 1986. Um 400 nemendur eru á hvoru skólastigi fyrir sig en skólinn er einsetinn. Skólinn er safnskóli á unglingastigi sem felur í sér að við upphaf áttunda bekkjar koma nemendur Ártúnsskóla og Selásskóla til náms í Árbæjar- skóla. Frá árinu 1997 til ársins 2003 fóru fram miklar umbætur á húsi skólans þar sem meðal annars var smíðuð ný viðbygging við skólann. Arkitektinn að henni var Ingimundur Sveinsson. Skólastjóri Árbæjarskóla er Þorsteinn Sæberg. ,,Það er nokkuð ljóst, það væri tréhús inni í einhverjum skógi,“ segir Ellen Kristj- ánsdóttir aðspurð um uppáhaldshúsið. ,,Það væri bara æðislegt tréhús, helst með hesti líka. Eins og Lína Langsokkur og húsið hennar.“ Ellen segir ekki skipta máli að það sé friður í kringum hana en það verði að vera tré. ,,Húsið má þess vegna vera inni í stórborg en það verða að vera há og falleg tré svo það sé alveg umkringt.“ Húsið er gamaldags með súlum og Ellen segir það vera eins og maður sjái í amerísku bíómyndunum. ,,Ætli þetta séu ekki einhverjar leifar í mér síðan ég bjó í Ameríku. Í San Fransisco eru byggð svona gömul hús, frá því um 1920. Það er svo rómantískt að vera í tréhúsi.“ Blaðamaður spyr hvort eitthvað annað eigi að fylgja húsinu en hestur. ,,Á undan honum kemur náttúrlega fjöl- skyldan mín. Inni í húsinu á að vera sem minnst, bara þægileg húsgögn og góðar bækur. Gluggarnir stórir og útsýnið fal- legt.“ Garðurinn við húsið væri stór og fallegur með alls konar trjám. ,,Ég myndi samt helst ekki vilja gera neitt sjálf í honum. Ég væri með garðyrkjumann,“ segir Ellen að lokum. DRAUMAHÚSIÐ ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR Rómantísk tréhús Ellen dreymir um tréhús umkringt trjám. FRÉTTABLAÐIÐ / HARI ÁRBÆJARSKÓLI SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU* *þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins. 300 250 200 150 100 50 0 FJÖLDI 30/12- 5/1 108 2/12- 8/12 141 9/12- 15/12 136 16/12- 22/12 185 23/12- 29/12 104 6/1- 12/1 88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.