Fréttablaðið - 23.01.2006, Side 57

Fréttablaðið - 23.01.2006, Side 57
MÁNUDAGUR 23. janúar 2006 Fáir myndu neita því að húsið, eða réttara sagt „blokkin“, við Vest- urgötu 52 til 54 í Reykjavík er áberandi lýti á gamla Vesturbæn- um og kemst í flokk með mestu skipulagsmistökum í borginni; er þó af ýmsu að taka. Ástæðan er auðvitað sú að blokkin gnæfir yfir nærliggjandi hús og hverfi sem að jafnaði samanstendur af tvílyftum timburhúsum með þriggja hæða steinhúsum á stöku stað, allt með tilheyrandi áhrifum fyrir útsýni, birtu og vindstrengi. Samt er blokkin við Vesturgötu ekki nema fimm hæðir! Um þessar mundir vinna borg- aryfirvöld að nýju skipulagi á því svæði í gamla Vesturbænum sem venjulega er kennt við slippinn og Mýrargötu. Fyrir reit sem kenndur er við Ellingsen og stendur vestast á Mýrargötu liggur fyrir samþykkt deiliskipulag um 7 hæða blokk. Fyrir reit fyrir vestan Héðins- húsið (Loftkastalann) liggur fyrir deiliskipulagstillaga um 8 hæða blokk. Fyrir svæðið í heild liggur fyrir rammaskipulagstillaga, þar sem gert er ráð fyrir því að bygg- ingar verði almennt 5-7 hæðir með þeirri einu undantekningu að við Nýlendugötu á byggðin að vera (aðeins) allt að 5 hæðum. Samkvæmt tillögum borgaryf- irvalda eiga við sjóinn að rísa 6 hæða byggingar sem munu vænt- anlega taka af allt útsýni til sjávar og loka gamla bæinn inni. Sumum kann e.t.v. að finnast það skoplegt að yfirlýst markmið með þessu rammaskipulagi er „lág byggð, 3 til 5 hæðir, uppleyst að hluta, opin í senn á móti sólarátt og að sjó.“ Íbúum í hverfinu er þó tæplega hlátur í hug. Hvernig dettur einhverjum í hug að leggja fram tillögur um 5 til 7 hæða byggð í gamla Vesturbæn- um þegar að vítin til að varast eru svo borðliggjandi? Dagur B. Egg- ertsson, formaður skipulags- og byggingarnefndar, hefur á fundum með íbúum vakið athygli á því að landið halli í átt sjávar og því hljóti allir að sjá að það sé í góðu lagi að byggingar hækki eftir því sem landið lækki. Með þessum rökum væri auðvitað hægt að miða hæð byggðar á Mýrargötu-Slippsvæð- inu við Landakotsspítala og byggja þar með 80 hæða skýjakljúfa með fram sjónum. Og e.t.v. er það þetta sem byggingaryfirvöld hefðu helst hafa viljað gera, ef þau hefðu ein verið í ráðum. Einhvers konar virð- ing fyrir byggðinni sem fyrir er, virðist a.m.k. algerlega hafa vikið fyrir eftirsókn í hámarksbygging- armagn á hvern mögulegan byggj- anlegan fermetra, auðvitað með tilheyrandi vandamálum fyrir dagvistun, skólakerfi, umferð og bílastæði. Stefnum við hraðbyri að enn einu skipulagsslysinu í Reykjavík? Höfundur er íbúi við Bakkastíg í Reykjavík. (Enn) Önnur skipulags- mistök í Reykjavík? VESTURGATA 52-54 Blokkin (fyrir miðju) er aðeins fimm hæðir, en gnæfir þó yfir nærliggj- andi byggð sem samanstendur að mestu af tvílyftum timburhúsum. UMRÆÐAN SKIPULAGSMÁL SKÚLI MAGNÚSSON Sumum kann e.t.v. að finnast það skoplegt að yfirlýst mark- mið með þessu rammaskipu- lagi er „lág byggð, 3 til 5 hæðir, uppleyst að hluta, opin í senn á móti sólarátt og að sjó.“ Íbúum í hverfinu er þó tæplega hlátur í hug. NFS ER Á VISIR.IS NFS ER Á VISIR.IS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.