Fréttablaðið - 23.01.2006, Page 66

Fréttablaðið - 23.01.2006, Page 66
26 23. janúar 2006 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Arnar beint í byrjunarliðið Arnar Þór Viðarsson spilaði allan leikinn fyrir Twente sem tapaði 3-2 fyrir Ajax í hollensku úrvalsdeildinni í gær. Arnar gekk til liðs við félagið frá Lokeren í vikunni en mistök hans urðu til þess að Ajax jafnaði á lokamínútunum áður en liðið hirti öll stigin. Teitur Þórðarson, þjálfari KR, er hægt og bítandi að innleiða atvinnumennskuna í íslenska fótboltann. Hann tók upp á því að láta leikmenn sína æfa átta sinnum í viku, bæði morgna og kvölds en þetta fyrirkomulag leggst vel í leikmenn liðsins. Teiti finnst einnig mikilvægt að menn séu snyrtilegir til fara og því fá allir leikmenn eins jakkaföt til að klæðast þegar þeir eru á vegum liðsins. „Það getur vel verið að það sem við erum að gera sé nýtt hérna en þegar leikmenn eru á vegum liðsins þá er mikilvægt að þeir geri það á virðingar- verðan hátt,“ sagði Teitur við Fréttablað- ið í gær. „Það er til að mynda verið að fara út til Spánar í æfingaferð í næsta mánuði og mér finnst mikilvægt að liðið líti vel út. Þetta þekkist vel hjá öllum liðum ytra, sama hversu stór þau eru. Mér finnst það mikilvægt að þegar liðið er að ferðast saman þá líti það eins út og menn séu ekki að þvælast um í götóttum gallabuxum og slíkum fötum sem eru í tísku í dag. Í vissum tilfellum munu leikmenn verða skyldugir til að klæðast fötunum en ekki alltaf. Við erum ekki bara með jakkafötin heldur eru leikmenn líka með æfingagalla sem við notum mikið.“ Auk þess að æfa á morgnanna og láta leikmenn fá jakkaföt hefur hann sett strangt bann á farsímanotkun innan búningsherbergisins. „Það er stranglega bannað að vera með síma í búnings- klefanum. Þegar leikmenn koma þangað eiga þeir að einbeita sér að því sem þeir eru að fara að gera, hvort sem það er æfing eða leikur. Það er mjög truflandi og óviðeigandi að símar séu að hringja í tíma og ótíma. Menn eru ekki svo mikilvægir að þeir geti ekki lagt símann til hliðar þegar þeir eru á æfingu og einbeitt sér að verkefninu,“ sagði Teitur að lokum. TEITUR ÞÓRÐARSON, ÞJÁLFARI KR, ER AÐ INNLEIÐA ATVINNUMENNSKUNA Á ÍSLANDI: Allir leikmenn KR fá jakkaföt > Jóhann Birnir á heimleið? Jóhann Birnir Guðmundsson er á leið- inni frá Örgryte í Svíþjóð og gæti snúið heim til Íslands. Jóhann sagði við Frétta- blaðið í gær að ef ekkert erlent lið sýndi honum áhuga fljótlega væri líklegast að hann kæmi heim og spilaði hér næsta sumar. Hans gamla félag Keflavík hefur mikinn áhuga á því að fá hann til sín auk þess sem Íslandsmeistar- ar FH hafa hug á að krækja í Jóhann. FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen var á skotskónum fyrir Chelsea en hann gerði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Charlton. Hermann Hreiðarsson gat ekkert gert í því þegar Eiður Smári potaði boltan- um yfir línuna af stuttu færi og tók þar með forystuna fyrir Eng- landsmeistarana. Marcus Bent jafnaði fyrir Charlton í síðari hálfleik í sínum fyrsta leik fyrir félagið og liðin sættust því á skiptan hlut. - hþh Chelsea og Charlton skildu jöfn: Eiður skoraði FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyj- ólfsson, leikmaður ÍA, er á góðum batavegi eftir aðgerð sem hann gekkst undir í byrjun desember. Sigurður sleit krossband á æfingu hjá Skagamönnum í september en stefnir ótrauður á að spila næsta sumar. „Ég hjóla og lyfti mikið og svo má ég byrja að skokka í næsta mánuði,“ sagði Sigurður Ragnar í gær. „Aðgerðin gekk mjög vel og allt hefur gengið að óskum hjá mér auk þess sem ég er í mjög góðum höndum. Ég stefni á að ná að spila næsta sumar og það hjálp- ar mér mikið að hafa markmið í endurhæfingunni. Það er þó ljóst að ég byrja ekki að æfa fyrr en ég hef náð mér alveg. Það er talað um að menn geti æft sex mánuðum eftir þessi meiðsli og sá tími er í byrjun júní hjá mér. Ég næ því vonandi nokkrum leikjum í sumar.“ - hþh Sigurður Ragnar Eyjólfsson: Stefni á að spila næsta sumar EIÐUR SMÁRI Þótti besti maður vallarins í í leikknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY KÖRFUBOLTI Keflvíkingar unnu öruggan sigur á KR í átta liða úrslitum bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í gær en lokatölur urðu 74-98 fyrir gestina. Leikurinn var bráðfjörugur og skemmtilegur en nokkurs fautaskapar gætti inn á milli og til að mynda var Omari Westley sendur í sturtu fyrir að gefa einum Keflvíkingnum oln- bogaskot. „Það er vægt til orða tekið að segja að þetta hafi ekki verið okkar dagur. Þetta snerist um það hvor leikstíllinn hefði betur og í kvöld unnu þeir og þegar Kefl- víkingar fá að spila eins og þeir vilja er ávallt við ramman reip að draga,“ sagði Herbert Guðmunds- son, þjálfari KR, eftir leikinn. „Þeir gerðu það sem þeir vildu og við leyfðum þeim það, þegar það gerist verður þetta bara útkoman. Mínir menn gáfust ekki upp en það var bara ekki nóg, ekki gegn toppliði eins og Keflavík,“ sagði Herbert. „Ég er mjög ánægður með sig- urinn. Margir spáðu okkur tapi í þessum leik enda höfum við verið að spila illa að undanförnu en við lékum vel og áttum sigurinn skil- inn,“ sagði Sigurður Ingimund- arson, þjálfari Keflvíkinga, eftir leikinn en þetta er hverju orði sannara þar sem lærisveinar hans voru fremri á öllum sviðum körfu- boltans í gær. „KR-ingar börðust vel og þeirra möguleiki fólst í því að hleypa leiknum í einhverja vitl- eysu en við vorum einbeittir og tókum ekki þátt í henni.“ hjalti@frettabladid.is KR auðveld bráð fyrir Keflavík Keflvíkingar eru komnir áfram í bikarkeppninni í körfubolta eftir öruggan sigur á KR, 74-98, þar sem A.J. Moye var besti maður vallarins. AJ MOEY Bandaríkjamaðurinn fór á kostum í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.