Fréttablaðið - 23.01.2006, Page 67
MÁNUDAGUR 23. janúar 2006 27
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JANÚAR
20 21 22 23 24 25 26
Mánudagur
■ ■ LEIKIR
19.00 ÍS fær Breiðablik í heim-
sókn í Iceland-Express-deild kvenna
í körfubolta.
20.00 Skallagrímur og Keflavík
mætast í kvennaflokki í bikarkeppni
KKÍ og Lýsingar.
■ ■ SJÓNVARP
16.00 Ensku mörkin á Rúv.
Svipmyndir úr leikjum helgarinnar úr
ensku úrvalsdeildinni.
18.30 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Leikur Seattle Seahawks og Carolina
Panthers.
20.30 Ítölsku mörkin á Sýn.
21.00 Ensku mörkin á Sýn. Sýnt
verður úr leikjum ensku 1. deildar-
innar.
21.30 Spænsku mörkin á Sýn.
TENNIS Andy Roddick var sleginn
út á Opna ástralska mótinu í tenn-
is en hann tapaði í fjórum sett-
um fyrir lítt þekktum Kýpurbúa,
Marcos Baghdatis. Kýpverjinn
lék við hvern sinn fingur og vann
Roddick sem er í öðru sæti heims-
listans í tennis en Baghdatis er
aðeins tvítugur að aldri.
„Þetta er besti leikur sem ég hef
spilað,“ sagði Baghdatis eftir sig-
urinn. „Ég er algjörlega í mínum
eigin heimi og þar næ ég að spila
minn besta tennis. Stuðningur
áhorfenda hjálpaði líka mikið og
ég gæti ekki verið ánægðari með
leikinn minn,“ sagði Kýpurbúinn
knái í sjöunda himni eftir viður-
eignina. - hþh
Óvænt tíðindi á Opna ástralska:
Roddick úr leik
í ÁstralíuBikarkeppni KKÍ:
KR-KEFLAVÍK 74-98
Stig KR: Fannar Ólafsson 19, Omari Westley 18,
Pálmi Sigurgeirsson 16, Steinar Kaldal 12, Brynj-
ar Þór Björnsson 9, Niels Dungal 4, Skarphéðinn
Ingason 2.
Stig Keflavíkur: A.J Moye 25, Magnús Þór Gunn-
arsson 23, Arnar Jónsson 20, Sverrir Þór Sverrisson
9, Halldór Halldórsson 8, Guðjón Skúlason 5.
SNÆFELL-NJARÐVÍK 94-98
Stig Snæfells: Nate Brown 29, Magni Hafsteins-
son 23, Igor Beljanski 20, Jón Ólafur Jónsson 16.
Stig Njarðvíkur: Jeb Ivey 39, Egill Jónasson 15,
Brenton Birmingham 15, Friðrik Stefánsson 14.
SKALLAGRÍMUR-ÞÓR 93-81
Stig Skallagríms: Joe Stravinski 33, George Byrd
21, Dimitar Karadsovzki 16, Pétur Már Sigurðsson
13.
Stig Þórs: Mark Woodhause 19, Mario Miles 15, Jón
Orri Kristjánsson 14, Helgi Freyr Margeirsson 11.
DHL-deild kvenna:
STJARNAN-FH 25-21
Mörk Stjörnunnar: Sólveig Lára Kærnested 6, Jóna
Margrét Ragnarsdóttir 5/2, Hind Hannesdóttir 4,
Rakel Dögg Bragadóttir 3/3, Kristín Clausen 3,
Harpa Sif Eyjólfsdóttir 3, Elizabet Kowal, 1.
Varin skot: Jelena Jovanovic 22.
Mörk FH: Ásdís Sigurðardóttir 6, Maja Grön-
bæk 6/2, Þóra B. Helgadóttir 3, Guðrún Drífa
Hólmgeirsdóttir 2, Arna Gunnarsdóttir 2/1, Eva
Albrechtsen 1, Sigrún Gilsdóttir 1.
Varin skot: Jolanta Slapikiene 5, Laima Milia-
skaite 8.
VALUR-GRÓTTA 29-18
VÍKINGUR-KA/ÞÓR 24-19
STAÐAN
HAUKAR 10 9 0 1 313-251 18
ÍBV 11 8 1 2 303-254 17
STJARNAN 11 8 1 2 289-247 17
Enska úrvalsdeildin:
CHELSEA- CHARLTON 1-1
1-0 Eiður Smári Guðjohnsen (19.), 1-1 Marcus
Bent (59.).
MAN. UTD. -LIVERPOOL 1-0
1-0 Rio Ferdinand (90.).
STAÐA EFSTU LIÐA
CHELSEA 23 20 2 1 49-12 62
MAN UTD 23 14 6 3 42-20 48
LIVERPOOL 21 13 5 3 29-12 44
TOTTENHAM 23 11 8 4 31-19 41
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Leikur Stjörnunnar
og FH í Ásgarði var nokkuð jafn
framan af fyrri hálfleik og var
staðan 7-5, Stjörnunni í vil þegar
korter var liðið af leiknum. Leik-
urinn var nokkuð harður og kom
það svolítið niður á gæðum hand-
boltans. Staðan í hálfleik var 11-
10, Stjörnunni í vil.
Stjörnustúlkur komu gríðarlega
sterkar inn í seinni hálfleik og
komust í 16-11 á fyrstu tíu mín-
útum leiksins. Þar skipti mestu
góð vörn og frábær markvarsla
Jelenu Jovanovic. Eftir þetta
var ekki spurning hvar sigurinn
myndi enda og unnu Stjörnustúlk-
ur sannfærandi sigur 25-21.
Aðalsteinn Eyjólfsson var að
vonum ánægður með sína leik-
menn eftir leikinn. „Það var frá-
bært að sjá stelpurnar hér í kvöld.
Þær tóku sig verulega á eftir tvo
slaka leiki og ég er hæstánægð-
ur með þær. Við spiluðum góða
vörn og markvarslan var einnig
frábær. Mér fannst við vera mun
betri allan seinni hálfleikinn og
að mínu mati verðskulduðum við
þennan sigur.“ - toh
Baráttuglaðar Stjörnustúlkur innbyrtu góðan sigur á liði FH 25-21:
Vörnin skilaði Stjörnunni góðum sigri
FÓTBOLTI Leikurinn á Old Traff-
ord var kaflaskiptur en lánleysi
Liverpool-manna var algjört.
Miðjuhnoð og barátta einkenndi
fyrri hálfleikinn en sá síðari var
öllu líflegri. Ferdinand bjargaði
á línu og Djibril Cisse skaut yfir
fyrir opnu marki á meðan Wayne
Rooney sýndi skemmtilega takta í
sóknarleik United sem var stirð-
ur á löngum köflum. Allt leit út
fyrir markalaust jafntefli áður en
Ferdinand stangaði aukaspyrnu
Ryan Giggs í markið á lokasek-
úndum leiksins og tryggði United
öll stigin.
Hetjan Ferdinand var með
fæturna á jörðinni eftir leikinn
og sagði lið Man. Utd. ekki ætla
að ofmetnast með þessum sigri.
„Það eina sem við getum gert er
að vinna okkar leiki og vona að
önnur lið misstígi sig. Það ætti að
skila okkur ágætri stöðu þegar
tímabilið er á enda,“ sagði Ferd-
inand.
Ryan Giggs, sem átti snilldar-
legu aukaspyrnuna sem gaf mark
Ferdinand, sagði leikinn í gær
hafa verið kennslubókardæmi um
að það mætti aldrei gefast upp.
„Það er alltaf gaman að spila á
móti Liverpool en ennþá skemmti-
legra að vinna þá. Við lögðum
okkur allir fram eins og við gátum
og það skilaði okkur góðum úrslit-
um,“ sagði Giggs.
Rafael Benítez, stjóri Liver-
pool, taldi úrslitin hafa verið
ósanngjörn. „Það er ekki hægt
að vera annað en vonsvikinn með
þessa niðurstöðu. Við stjórnuðum
leiknum og stóðum okkur vel í að
halda boltanum og spila skyndi-
sóknir en töpuðum á marki eftir
aukaspyrnu á síðustu mínútunni
sem er augljóslega mjög dapurt.
Við fengum færi til að vinna leik-
inn en við þurfum að klára færin
sem við sköpum til að vinna,“
sagði sársvekktur Benítez eftir
leikinn. - hþh
Ferdinand afgreiddi Liverpool
Rio Ferdinand skoraði eina markið á Old Trafford í stórslag helgarinnar í enska
boltanum. Manchester United er því fjórum sigum á undan Liverpool.
SIGURMARKIÐ Rio Ferdinand sést hér stanga boltann glæsilega inn í mark Liverpool á
síðustu mínútu leiksins í gær. Jose Reina var með fingurna í boltanum en skallinn var
einfaldlega of fastur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY