Fréttablaðið - 30.01.2006, Síða 2
2 30. janúar 2006 MÁNUDAGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
LÖGREGLUMÁL Kalla þurfti á aðstoð
lögreglunnar á Egilsstöðum þegar
tveir farþegar í leigubíl neituðu að
greiða fargjaldið. Mennirnir eru
báðir af erlendu bergi brotnir og
starfa á Kárahnjúkum við virkjun-
arframkvæmdir.
Leigubílstjórinn ók þeim þaðan
í Fljótsdal en farþegarnir harð-
neituðu að greiða fargjald upp á
tæplega tíu þúsund krónur þegar
á leiðarenda var komið, en þeim
mun hafa blöskrað hin íslenska
verðlagning. Bílstjórinn óskaði
eftir aðstoð lögreglu við innheimt-
una og greiddu mennirnir skuldina
þegar hún mætti á staðinn. -bs
Leigubílstjóri þurfti lögreglu:
Borguðu ekki
fargjaldið
NIÐURSTÖÐUR Í PRÓFKJÖRI FRAMSÓKNARMANNA Í REYKJAVÍK
1. sæti 1.-2. sæti 1.-3. sæti 1.-4. sæti 1.-5. sæti 1.-6. sæti
Björn Ingi Hrafnsson 1794 1960 2082 2150 2209 2319
Anna Kristinsdóttir 816 1308 1628 1827 1964 2114
Óskar Bergsson 976 1281 1488 1638 1802 1960
Marsibil J. Sæmundardóttir 17 798 1302 1818 2156 2428
Ásrún Kristjánsdóttir 69 416 1107 1632 2097 2457
Elsa Ófeigsdóttir 2 85 307 705 1538 2336
Gerður Hauksdóttir 6 365 667 1226 1608 2055
Gestur Kr. Gestsson 24 905 1155 1340 1643 1853
Gestur Guðjónsson 12 122 781 1145 1456 1803
Hjörtur Gíslason 4 125 308 594 1055 1598
Brynjar Fransson 12 98 370 852 1131 1468
PRÓFKJÖR „Ég byrjaði kosninga-
baráttu mína fyrir hálfum mán-
uði en náði þúsund atkvæðum í
fyrsta sætið á móti 800 hundruð
atkvæðum Önnu Kristinsdóttur.
Það er gríðarlega góður árangur,“
segir Óskar Bergssson um úrslit
prófkjörs Framsóknarflokksins í
Reykjavík. „Fólkið mitt vann vel á
kjördag og ég er því þakklátur.“
Óskar, sem bauð sig fram
í fyrsta sætið en hafnaði í því
þriðja, komst ekki á blað fyrr en
þegar tölur voru lesnar upp í fjórða
sinn. „Það voru allt aðrar tölur
sem komu upp úr utankjörfund-
aratkvæðagreiðslunni en þeirri
almennu. Ég kann ekki að skýra
það.“ Óskar kveðst ekki hafa gert
það upp við sig hvort hann tekur
sæti á lista framsóknarmanna
fyrir borgarstjórnarkosningar.
„Frambjóðendur og kjörstjórn
eiga eftir að setjast niður saman
og þá kemur það í ljós.“
„Ég lagði ekki krónu í kosninga-
baráttuna, en ég túlka þetta þannig
að fólki hafi almennt hugnast mín
áherslumál,“ segir Ásrún Kristj-
ánsdóttir sem sóttist eftir 2. til
4. sæti en varð í því fimmta. Hún
uppskar hins vegar flest atkvæði
allra frambjóðenda.
Ekki náðist í Önnu Kristins-
dóttur borgarfulltrúa því hún hélt
utan strax eftir prófkjörið. -bs
Óskar Bergsson frambjóðandi um prófkjör Framsóknarflokks í Reykjavík:
Ekki viss hvort hann verður á listanum
SPURNING DAGSINS
Björn, er björninn unninn?
„Já, þessi björn að minnsta kosti.“
Björn Ingi Hrafnsson hreppti fyrsta sætið í
prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík á
laugardag.
ÍSRAEL, AP Ríkisstjórnaleiðtogar
Þýskalands og Ísraels voru sam-
mála um það í gær að ekki kæmi
til greina að taka upp tengsl við
palestínska stjórn sem Hamas-liðar
stýrðu.
Úrslit palestínsku þingkosning-
anna voru meðal þess sem efst var
á baugi í viðræðum Angelu Merk-
el, kanslara Þýskalands, við Ehud
Olmert, starfandi forsætisráðherra
Ísraels, á fyrsta degi opinberrar
heimsóknar kanslarans til Ísraels.
Eftir viðræður við ísraelska ráða-
menn heldur Merkel til Vestur-
bakkans í dag og hittir þar palest-
ínska stjórnmálaleiðtoga, en ekki
þó fulltrúa Hamas. ■
Merkel kanslari í Ísrael:
Tala ekki við
Hamas-stjórn
OLMERT OG MERKEL Vel fór á með leið-
togunum í Jerúsalem í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FEGURÐASAMKEPPNI Ólafur Geir
Jónsson, sem fyrir helgi var sviptur
titlinum Herra
Ísland 2005,
segist harma
ákvörðun eig-
enda keppninn-
ar.
„Ég lít svo á
að ég hafi ekki
skaðað ímynd
Herra Íslands,“
segir Ólafur
Geir í yfirlýs-
ingu sem hann
sendi frá sér
í gær. Ólafur
segist eingöngu
hafa verið að
sinna vinnu sinni sem þáttastjórn-
andi SplashTV og spyr af hverju
honum hafi ekki verið greint frá því
í upphafi keppninnar að þáttur hans
ætti ekki samleið með titlinum.
Forsvarsmenn keppninnar telja
Ólaf Geir ekki hafa staðið undir
þeim væntingum að vera fyrir
mynd fyrir ungt fólk í landinu. - jóa
Herra Ísland sviptur titlinum:
Harmar
ákvörðunina
SVIPTUR TITLINUM
Ólafur Geir Jónsson
telur sig ekki hafa
skaðað ímynd Herra
Íslands.
DANMÖRK Neytendur í sífellt fleiri
löndum Miðausturlanda sniðganga
nú danskar vörur eftir að yfir-
völd í Sádí Arabíu mæltu til þess
við neytendur. Með þessu vilja
yfirvöld setja þrýsting á dönsku
ríkisstjórnina um að bregðast við
birtingu á teikningum af Múhameð
spámanni í Jótlandspóstinum síð-
astliðið haust.
Haft er eftir forsvarsmönnum
nokkurra fyrirtækja í Jótlands-
póstinum í gær að sala á vörum
þeirra hafi næstum stöðvast í Sádí
Arabíu um helgina og minnkað
töluvert í nágrannaríkjum.
Um helgina brutust út mótmæli
í Írak og Palestínu vegna teikning-
anna og var danski fáninn brennd-
ur í tvennum mótmælum á Vest-
urbakkanum. Þá hafa stjórnvöld í
Líbíu fylgt fordæmi Sádí Araba og
kallað sendiherra sinn í Danmörku
heim. Á fréttavef Politiken segir að
tvenn bandalög múslimaríkja muni
taka málið fyrir á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna innan skamms.
Danir eru uggandi yfir þess-
ari þróun og vilja sumir skella
skuldinni á ritstjórn Jótlands-
póstins. Sendiherra Dana í Sádí
Arabíu gagnrýndi blaðið í viðtali
við bandaríska sjónvarpsstöð um
helgina og sagði birtinguna bera
vott um dómgreindarskort. Þessi
ummæli féllu í grýttan jarðveg
meðal forsvarsmanna meirihluta-
flokkanna í Danmörku.
Ritstjóri Jótlandspóstsins sendi
um helgina bréf á arabísku til helstu
dagblaða í Sádí Arabíu. Í bréfinu
segir hann að teikningarnar hafi
verið birtar sem hluti af umfjöllun
blaðsins um málfrelsi í landinu. Nú
sé hinsvegar litið á þær sem ögrun
við múslima í Danmörku og ann-
ars staðar í heiminum. Hann seg-
ist harma þá túlkun enda hafi það
aldrei verið tilgangurinn að gera
lítið úr trú múslima.
kristjans@frettabladid.is
Beita Dani þrýstingi
og brenndu fánann
Reiði vegna birtingar danska blaðsins Jótlandspóstsins á teikningum af
Múhameð spámanni í haust sem leið breiðist nú út í múslimalöndum. Neytend-
ur í Sádi-Arabíu og víðar sniðganga danskar vörur. Danski fáninn brenndur.
FÁNINN BRENNDUR Danski fáninn var brenndur í mótmælum á Vesturbakkanum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VÍSINDI Vísindasiðanefnd vinnur
nú að því að afla gagna um nefúða-
rannsóknir Lyfjaþróunar hf. sem nú
eru til rannsóknar hjá nefndinni en
hún kom saman á laugardag til þess
að fara yfir málefni nefndarinnar.
Að sögn Ólafar Ýrar Atladóttur,
framkvæmdastjóra Vísindasiða-
nefndar, var ekki rætt sérstaklega
um nefúðarannsóknirnar á fundin-
um þar sem öflun gagna um málið
er ekki lokið ennþá. „Nefndin hefur
ekki enn rætt sérstaklega um þær
rannsóknir sem nú eru til skoðunar
og það verður ekki gert fyrr en öll
gögn hafa borist til nefndarinnar.“
Þorsteinn Loftsson, deildar-
forseti lyfjafræðideildar Háskóla
Íslands, segir málið hafa þegar
verið rætt við Sveinbjörn Gizur-
arson, prófessor við deildina, en
hann var framkvæmdastjóri Lyfja-
þróunar hf. á þeim tíma sem rann-
sóknir á nefúða við bólusetningu,
sem nú eru til skoðunar hjá Vís-
indasiðanefnd, fóru fram.
„Við ræddum við Sveinbjörn
um þetta mál og hann neitar því að
rannsóknirnar hafi á einhvern hátt
verið óeðlilegar. Starfsmenn deild-
arinnar trúa því að sjálfsögðu, þar
til annað kemur í ljós,“ segir Þor-
steinn. - mh
Nefúðarannsóknir Lyfjaþróunar hf. enn til rannsóknar hjá Vísindasiðanefnd:
Eru að afla frekari gagna
ÞORSTEINN LOFTSSON Þor-
steinn segir Sveinbjörn Gizurar-
son njóta fulls traust lyfjafræði-
deildar Háskóla Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL