Fréttablaðið - 30.01.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.01.2006, Blaðsíða 6
6 30. janúar 2006 MÁNUDAGUR SKIPULAGSMÁL „Afstaða mín er alveg skýr, ég vil að flugvöllur- inn fari úr Vatnsmýrinni og að innanlandsfluginu verði fundinn nýr staður í Reykjavík eða næsta nágrenni en ekki í Keflavík,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Félagsmenn Samtaka um betri byggð hafa skorað á borgarstjórn- arflokk og frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins að koma fram með skýra og einarða afstöðu í Vatns- mýrarmálinu. Þeir segja að Vil- hjálmur hafi sagst vilja flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni en svo bætt því við að borgaryfirvöld yrðu að vinna málið í samvinnu við sam- gönguyfirvöld ríkisins sem hefðu yfirstjórn og ábyrgð á þessum málum og ættu 40 prósent af land- inu í Vatnsmýri. Segja félagsmenn samtakanna að þar hafi Vilhjálmur slævt fyrirheitið og því næst gefið samgönguyfirvöldum sjálfdæmi í málinu. „Þetta er byggt á misskilningi,“ svarar Vilhjálmur. „Samgöng- uyfirvöld bera ábyrgð á rekstri flugvallarins og ábyrgð á kostnaði byggingar nýs flugvallar og einnig á ríkið 40 prósent af landinu svo við hljótum að vinna þessi mál í sam- vinnu við þau. Hins vegar er það alveg skýrt að skipulagsvaldið er í höndum borgarinnar.“ Hann segir ekki hægt að nefna ákveðið ár sem flugvöllurinn ætti að vera farinn en hann kysi þó að það yrði innan tíu ára. - jse Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson um Vatnsmýrina: Flugvöllurinn fari burt innan tíu ára GEÐHEILBRIGÐI Það er þörf fyrir græðandi mannleg samskipti og það verður að rjúfa vítahring- inn sem geðsjúkir lifa í með fjöl- breyttum úrræðum og fjármagni. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli dr. Páls Biering, geðhjúkr- unarfræðings, þegar hann ásamt meðhöfundum sínum, Guðbjörgu Daníelsdóttur og Arndísi Jónsdótt- ur, kynntu niðurstöðu rannsóknar á þjónustuþörfum geðsjúkra og reynslu þeirra af geðheilbrigðis- þjónustu á Íslandi, sem unnin var á vegum Rauða kross Íslands og Geðhjálpar. Dr. Páll lagði á það þunga áherslu að geðsjúkir væri sá hópur í samfélaginu sem minnst má sín. Mikill meirihluti þátttakenda í rannsókninni, eða 80,3 prósent, hafði minna en 150.000 krónur í tekjur á mánuði og tekjur margra ná ekki 100.000 þúsund krónum á mánuði. Sterk tengsl voru á milli menntunar og tekna en 10,1 pró- sent höfðu ekki lokið grunnskóla- menntun og aðeins 11,7 prósent höfðu háskólamenntun. Það ein- kennir líka félagslegar aðstæður geðsjúkra að einungis þriðjungur var giftur eða í sambúð. Rannsóknin leiddi í ljós að félagsleg einangrun geðsjúkra er mikil og þeir mæta víða fordómum. Þeir sem búa einir standa þó verr í þessu tilliti en sá hópur sem var giftur eða í sambúð. Einangrunin og fordómarnir bitna líka frekar á þeim sem hafa minnstu tekjurn- ar og þeim sem búa á höfuðborg- arsvæðinu. Hugsanleg skýring á minni einangrun á landsbyggð- inni er að nánd fólks er þar meiri. Sama gildir um fordóma. Rannsóknin var unnin til þess að afla þekkingar sem styðjast má við til að bæta þjónustuna við geðsjúka og aðstandendur þeirra. Einnig var ætlunin að afla upplýs- inga sem hið opinbera og fagaðilar gætu haft til hliðsjónar við stefnu- mótun og setningu markmiða. „Hér er um það að ræða að stilla saman strengi og að þeir sem glíma við vandamálið sem og fag- fólk vinni saman. Við sjáum mörg úrræði um allt samfélagið, en þau eru hist og her, eylönd sem þarf að tengja saman til að snúa málum til betri vegar,“ sagði Sveinn Magnús- son, framkvæmdastjóri Geðhjálp- ar, og kallar til allra sem að þessu máli koma um samstillt átak til úrbóta. svavar@frettabladid.is Geðsjúkir fastir í vítahring Brýnt er að rjúfa félagslega einangrun, uppræta fordóma og bæta menntun og efnahag geðsjúkra á Íslandi. Þetta er meðal þess kemur fram í rannsókn á þjónustuþörfum geðsjúkra. SVEINN MAGNÚSSON Framkvæmdastjóri Geðhjálpar kallar á samstillt átak til úrbóta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GEÐHJÁLP Margir geðsjúkir einstaklingar eru hjálparþurfi. Stærstur hluti geðsjúkra hefur minna en 150.000 krónur í mánaðartekjur og einungis þriðjungur er giftur eða í sambúð. NORDIC PHOTO/GETTY IMAGES VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Vilhjálmur segir stefnu sína og Sjálfstæðisflokksins skýra í Vatnsmýrarmálinu en það verði hins vegar að vinna það með samgönguyfir- völdum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKOÐANAKÖNNUN Niðurstöður nýrr- ar skoðanakönnunar um fylgi flokk- anna sýna að Sjálfstæðisflokkurinn hefur 44,7 prósenta fylgi og er það mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með á kjörtímabilinu. Spurt var hvað menn myndu kjósa ef gengið væri til kosinga á morgun. Sama könnun sýndi að Sam- fylkingin fengi 23,6 prósenta fylgi, Vinstrihreyfingin - grænt Framboð 18,1 prósent, Framsókn- arflokkurinn 9,6 prósent og Frjáls- lyndi flokkurinn fengi 3,2 prósenta fylgi. Könnunin var gerð af Félagsvís- indastofnun fyrir Morgunblaðið og fór fram dagana 18. til 25. janúar. Svarhlutfall var 70,6 prósent. - jóa Fylgi Sjálfstæðisflokks: Ekki meira á kjörtímabilinu KJÖRKASSINN Var rétt að svipta Ólaf Geir Jóns- syni titlinum Herra Ísland? Já 62,3% Nei 37,7% SPURNING DAGSINS Í DAG? Kaust þú í undankeppni Eurov- ision á laugardag? Segðu skoðun þína á Vísir.is SVEITASTJÓRNARMÁL „Þetta aum- ingja fólk á bágt,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópa- vogi um ásakanir bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar þess efnis að meirihluti Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks í bæjarstjórn fari með blekkingar og rangfærslur í bæklingi sem dreift var í öll hús í bænum í síðustu viku. Bæklingurinn var í nafni bæj- arstjórnar Kópavogs og hafði yfirskriftina Skattar lækka í Kópavogi. Sem dæmi nefna bæj- arfulltrúar Samfylkingarinnar að það sé ekki rétt að fasteignagjöld hafi lækkað í Kópavogi eins og haldið er fram í bæklingnum. „Við erum einfaldlega að útskýra fyrir bæjarbúum hvern- ig fasteignaskattar eru lækkaðir. Það er della að halda því fram að fasteignagjöld hafi ekki lækk- að. Þetta fólk þarf einfaldlega að læra að reikna,“ segir Gunnar. -bs Saka Gunnar um blekkingar: Fólkið á bágt GUNNAR I. BIRGISSON Vísar ásökunum minnihlutans til föðurhúsanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ GVA ÍTALÍA, AP Var Jesús Kristur til? Ítalskur dómstóll mun í dag, mánu- dag, úrskurða hvort 76 ára gamall ítalskur prestur þurfi að mæta fyrir rétt fyrir að halda því fram að Jesús hafi verið til. Luigi Cascioli, gamall skóla- bróðir prestsins og svarinn guð- leysingi, segir kaþólsku kirkjuna hafa blekkt fólk í 2.000 ár með sög- unni um Jesú, og hefur hann kært séra Enrico Righi fyrir að styðja þá blekkingu. Cascioli kærði Righi árið 2002 eftir að presturinn skrifaði í frétta- bréf sóknarinnar að Jesús hafi verið til og hafi verið sonur hjón- anna Maríu og Jóseps. Cascioli heldur því fram að Righi hafi brotið tvenn ítölsk lög - hann hafi blekkt fólk í sviksamlegum tilgangi og hagnast á því að gefa öðrum aðila rangt nafn. Jafnframt segir hann kaþólsku kirkjuna hafa grætt fé á blekkingunni. Cascioli sjálfur hefur ekki mikla trú á framgangi málsins í hinu kaþólska heimalandi sínu, en seg- ist hins vegar vera að fylgja þeim lagalegum skrefum sem honum ber svo hann geti kært kirkjuna fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. - smk Deilumál ítalsks prests og skólabróður hans: Réttur sker úr um tilveru Jesú JESÚS KRISTUR Málverk af Jesú. Ítalski guðleysinginn Luigi Cascioli segir talsmenn kaþólsku kirkjunnar ljúga að fólki þegar þeir halda því fram að Jesús hafi verið til. Vöruflutningabíll brann Eldur varð laus í vöruflutningabíl á bænum Svínavatni í Árnessýslu um miðjan dag í gær og skemmdist hann mikið. Lögregla og slökkvilið komu fljótt á vettvang og gekk slökkvistarf vel. Engin slys urðu á fólki en talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni. LÖGREGLUFRÉTT Stefán vann Skeljungsmótið Stef- án Kristjánsson sigraði á Skeljungsmót- inu í skák sem haldið var á skákþingi Reykjavíkur um helgina. Stefán hlaut átta vinninga af níu mögulegum en í öðru sæti varð Bragi Þorfinnsson úr Taflfélagi Reykjavíkur með sjö og hálfan vinning. SKÁK TÍFLIS, AP Jarðgas frá Rússlandi tók aftur að berast til Georgíu í gær eftir að viðgerð lauk á stærstu gasleiðslunni þangað. Leiðslan rofnaði vikuna áður í sprengingu sem ekki hefur enn verið upplýst hvernig atvikaðist. Gasskorturinn og rofnar raf- línur af völdum vetraróveðurs hafa valdið mikilli orkukreppu í landinu. Forsætisráðherrann Zurab Nogaideli endurtók í gær ásakanir í garð Rússa um að þeir hefðu vísvitandi farið sér hægt í að gera við gasleiðsluna. Georg- íustjórn samdi í millitíðinni við Írana um að kaup á neyðarbirgð- um af gasi. ■ Orkukreppan í Georgíu: Rússneskt gas berst á ný
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.