Fréttablaðið - 30.01.2006, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 30.01.2006, Blaðsíða 60
 30. janúar 2006 MÁNUDAGUR24 menning@frettabladid.is ! 3. feb. 4. feb. 10. feb. 11. feb. Mind Camp eftir Jón Atla Jónasson 2. feb. 5. feb. Ef eftir Valgeir Skagfjörð/ Einar Má Guðmundsson Vestmanneyjar: 21. feb kl. 9 uppselt kl. 11 uppselt kl. 13 uppselt Námsmenn og Vörðufélagar fá miðann á Mind Camp á 1000 kr. í boði Landsbankans Sýnt á NASA við Austurvöll Föstudagur 27 . janúar - Örfá sæti Laugardagur 28 . janúar - Örfá sæti Fimmtudagur 2 . febrúar - Örfá sæti Föstudagur 3 . febrúar - Laus sæti Laugardagur 4 . febrúar - Laus sæti Fimmtudagur 9 . febrúar - Laus sæti Húsið opnar kl. 20:00 - Sýningar hefjast kl. 20:30 Miðasala í verslunum Skífunnar, www.midi.is og í síma: 575 1550 ��������������������������������� ��������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� �������������������������� ���������������������������������������� ��������������������������������� �������������� ���������������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������ ������������ �������������� �� ����������� �������� ��������������������������������������������� ���������������������������������������������������������������� ������������������������������������������� ��������� Kl. 17.15 Magnús H. Jóhannsson, líffræðing- ur hjá Landgræðslu ríkisins, flytur fræðsluerindi um jarðvegseyðingu á Grænlandi og landgræðslurann- sóknir. Erindið er haldið í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, á vegum Hins íslenska nátt- úrufræðafélags. > Ekki missa af ... ... tónleikum í Salnum í Kópavogi annað kvöld þar sem þau Sólrún Bragadóttir sópran, Thomas Lander bariton og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari flytja lög og aríur sem sænska sópransöngkonan Jenny Lind flutti gjarnan. Tónleikarnir eru helgaðir Jenny Lind og danska ævintýra- skáldinu H.C.Andersen, sem var heillaður af henni. ... djasstríótónleikum í Þjóðleik- hús kjallaranum á miðvikudags- kvöldið þar sem þau Helga Laufey Finnbogadóttir píanóleikari, Guðjón Steinar Þorláksson bassaleikari og Birgir Baldurs- son trommuleikari flytja meðal annars lög eftir John Coltrane, Luiz Bonfia, Michel Legrand, Jón Múla og Megas. Gunnhildur Halla Guð- mundsdóttir og Julien Riem ætla að flytja tónlist eftir fjögur tónskáld, sem öll áttu sér merkilega sögu. Lík- lega hefur ekkert verkanna verið flutt áður hér á landi. „Fyrir okkur er þetta ekki eins og að setjast niður til að spila Brahms, sem allir þekkja og spurningin er bara hvort flutningurinn tekst vel eða illa. Þetta er tónlist sem við viljum virkilega koma á framfæri vegna þess að hún er svo stórkost- leg,“ segir Gunnhildur Halla Guð- mundsdóttir sellóleikari. Hún ætlar ásamt Julien Riem píanóleikara að flytja sellóverk eftir Leo Ornstein, Joachim Stuts- chewsky, Paul Ben-Haim og Felix Mendelssohn á tónleikum í Hafn- arborg, menningar- og listamið- stöð Hafnarfjarðar. Tónskáldin fjögur eru öll Gyð- ingar sem þurftu á einn eða annan hátt að líða fyrir þann bakgrunn sinn. Mendelsohn var uppi á fyrri hluta nítjándu aldar, en hinir þrír voru allir fæddir á síðasta áratug nítjándu aldar. Stutschewsky og Ben-Haim lifðu fram á níunda ára- tug síðustu aldar en Leo Ornstein var hundrað og tíu ára gamall þegar hann lést árið 2002. „Það er svo mikil saga á bak við þessa tónlist. Ornstein, til dæmis, var á undan sinni samtíð og var gífurlega frægur á milli 1911 og 1930, var álitinn standa jafnfætis Schönberg og Stravinsky. Hann skrifaði til dæmis píanóverk árið 1913 sem heitir Suicide on an Airplane. En hann átti það til að skrifa ljóðræn og hefðbundin verk og þá sagði fólk að broddurinn væri farinn úr honum.“ Tónleikarnir í Hafnarborg hefjast klukkan 20 í kvöld. ■ JULIAN RIEM PÍANÓLEIKARI OG GUNNHILDUR HALLA GUÐMUNDSDÓTTIR SELLÓLEIKARI Þau leggja hug og hjarta í flutning á tónlist fjögurra gyðinga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fjórir gegn straumnum Á miðvikudagskvöldið verða tónleikar á Nasa við Austurvöll þar sem Samúel Jón Samúelsson, Sammi í Jagúar, stjórnar Stórsveit Reykjavíkur. Á tónleikun- um verður frumflutt tónlist sem Samúel hefur samið sérstaklega fyrir Stórsveitina og útsett. Samúel hlaut á síðasta ári starfslaun úr Tón- skáldasjóði Menntamálaráðuneytisins til að vinna að efnisskrá nýrrar tónlistar fyrir Stórsveit Reykjavíkur, en þetta er í fyrsta skipti sem Samúel stjórnar Stórsveit Reykjavíkur eingöngu með eigið efni. Samúel hefur áður stjórnað Stórsveit Reykjavík- ur við ýmis tækifæri, meðal annars í Idol-stjörnuleit og á árlegum jólatónleikum sveitarinnar. Þess má geta að Stórsveit Reykjavíkur hlaut nýlega íslensku tónlistar verðlaunin sem djassflytjandi ársins. Samúel hefur verið meðlimur í hljómsveitinni Jagúar frá 1998, bæði sem söngvari og básúnuleik- ari, og jafnframt er hann einn helsti útsetjari og laga- smiður hljómsveitarinnar. Hann hefur einnig starfað með fjölmörgum öðrum hljómsveitum og verið afkastamikill útsetjari í margvíslegri tónlist. Fyrsta sólóplatan hans, Lego land, hafði að geyma frumsamda tónlist sem hann útsetti fyrir sautján manna hljómsveit. Sú hljómsveit kom fram á Jazzhátíð Reykjavíkur árið 2000 undir stjórn Samúels. Sammi stjórnar Stórsveit 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.