Fréttablaðið - 30.01.2006, Page 8
8 30. janúar 2006 MÁNUDAGUR
EIGUM ALLTAF
Bílaþing Heklu er rétti staðurinn til að finna góðan notaðan Volkswagen
*M
ið
að
v
ið
2
0%
in
n
bo
rg
un
Laugavegi Laugavegi LaugavegiLaugavegi
KletthálsKlettháls Klettháls Klettháls
VW Golf Highline 4x4 beinsk.
skráður 05/03 ek. 51.000
verð áður 1.730.000 kr. verð 1.350.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 21.678 kr. í 60 mán.*
VW Passat stw 1,6 beinsk.
skráður 06/03 ek. 70.000
verð áður 1.640.000 kr. verð 1.440.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 23.115 kr. í 60 mán.*
VW Passat 1,6 beinsk.
skráður 11/02 ek. 67.000
verð áður 1.440.000 kr. verð 1.290.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 20.716 kr. í 60 mán.*
VW Golf Highline 1,6 sjálfsk.
skráður 07/03 ek. 49.000
verð 1.560.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 25.034 kr. í 60 mán.*
VW Passat 4x4 1,8
skráður 05/00 ek. 135.000
verð áður 1.090.000 kr. verð 890.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 23.280 kr. í 36 mán.*
VW Golf 4x4 2,0
skráður 01/04 ek. 45.000
verð áður 1.690.000 kr. verð 1.400.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 19.262 kr. í 72 mán.*
VW Golf Highline 1,6
skráður 10/03 ek. 40.000
verð áður 1.720.000 kr. verð 1.350.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 21.678 kr. í 60 mán.*
VW Bjalla 1,6
skráður 11/01 ek. 82.000
verð áður 1.290.000 kr. verð 1.100.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 22.585 kr. í 48 mán.*
SKIPULAGSMÁL Borgarfulltrúar
Reykjavíkurlistans saka borgar-
fulltrúa um að viðhafa hentistefnu
í málinu um uppbyggingu við Aust-
urhöfn þar sem tónlistar- og ráð-
stefnuhús mun rísa. Þetta kemur
fram í bókun borgarfulltrúanna á
borgarráðsfundi á fimmtudag.
Þar lýstu fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins yfir verulegum efa-
semdum um staðsetningu bensín-
stöðvar sem reisa á við Hringbraut
í stað þeirrar sem víkja mun
af Austurbakkanum. Fulltrú-
ar Reykjavíkurlistans svara því
svo til að sömu borgarfulltrúar
og lýstu yfir þessum efasemdum
hefðu báðir samþykkt samning við
Ker hf. þar sem þessi staðsetning
bensínstöðvarinnar er tilgreind.
Það eina sem breyst hefur síðan
þá, segir í bókun borgarfulltrúa
Reykjavíkurlistans, er að umfang
stöðvarinnar hefur minnkað og
tímatakmörk eru sett á starfsemi
hennar.
„Samningurinn í heild sinni
var samþykktur, en hann inni-
hélt fleiri atriði en staðsetningu
stöðvarinnar. Í framhaldi af því
koma fram alvarlegar athuga-
semdir frá Landsspítalanum og
upp frá því eru okkar athugsemdir
runnar. Einnig þykir okkur ekki
mikið prýði af bensínstöð þarna
við Hringbrautina. En við lýstum
því yfir að ef borgin og spítalinn
kæmust að samkomulagi mynd-
um við ekki leggjast gegn þessari
staðsetningu,“ segir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðis-
manna. - jse
Borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans um uppbyggingu við Austurhöfn:
Saka sjálfstæðismenn um hentistefnu
FRÁ RÁÐHÚSINU Bókanir gengu á víxl þegar rætt var um nýja bensínstöð við Hringbraut og
sökuðu borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans sjálfstæðismenn um að viðhafa hentistefnu í því
máli. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
VEISTU SVARIÐ
1Hver varð í efsta sæti í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík?
2Hver mun leiða lista Vinstri grænna á Akureyri?
3Hvaða tveir frambjóðendur nota systkini sín til að stjórna kosninga-
baráttu fyrir prófkjör?
SVÖR Á BLS. 34
Tveir teknir ölvaðir Lögreglan í
Kópavogi stöðvaði tvo ökumenn vegna
ölvunaraksturs aðfaranótt sunnudags.
Báðir verða þeir væntanlega sviptir
ökuréttindum.
Hraðakstur heldur áfram Lögregl-
an í Stykkishólmi stöðvar enn ökumenn
vegna hraðaksturs. Á föstudag voru
fjórtán teknir fyrir að aka of hratt og sex
bættust við um helgina. Tveir ökumenn
mældust á 132 kílómetra hraða.
Missti fjórar tennur Maður um tví-
tugt missti fjórar tennur þegar hann var
kýldur í andlitið í miðborg Reykjavíkur
aðfaranótt sunnudags. Að sögn lögreglu
er ekki vitað hver lagði til mannsins
eða hver upptök slagsmálanna voru. Þá
voru fjórir teknir fyrir ölvunarakstur. Fyrir
utan minni háttar ryskingar í miðbæn-
um segir lögreglan nóttina hafa verið
rólega.
Þorrablótin fara vel fram Rólegt
var að gera á flestum lögreglustöðvum
um helgina. Fjölmenn þorrablót fóru
fram víða um land og að sögn lögreglu
var hegðun gesta í flestum tilfellum til
fyrirmyndar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ATVINNUMÁL Nú þegar rúmt ár er
liðið síðan Haraldur Böðvars-
son & co. sameinaðist Granda í
Reykjavík hafa tapast 55 til 65
störf. Landvinnslan hefur tapað 45
starfsmönnum auk þess sem átta
sjómenn hafa misst vinnuna. Hér
eru ekki taldir ellefu skipverjar á
Víkingi AK 100 sem fengu nýlega
uppsagnarbréf en skipinu verður
líklega lagt fljótlega.
Þetta segir
V i l h j á l m u r
Birgisson, for-
maður verka-
l ý ð s f é l a g s
Akraness, og
það er þungt í
honum hljóðið.
Vilhjálmur vill
meina að þessi
þróun sé ekki aðeins áfall fyrir
þá sem hafa misst vinnuna heldur
megi ekki gleyma að fólk á Akra-
nesi tengist fyrirtækinu sterkum
tilfinningaböndum. Vart sé hægt
að finna mann á Akranesi sem
ekki hefur unnið hjá fyrirtækinu
á einhverjum tímapunkti og þess
vegna svíði öllum undan því að sjá
hvernig málin hafa þróast. Vissu-
lega má segja að hluti þessa sam-
dráttar hér á Akranesi sé vegna
minni afla og hagræðingar innan
fyrirtækisins en það skýrir ekki
allan þennan samdrátt.
„Það sem ég vil sjá er sann-
girni á milli þeirra starfstöðva
sem eru í eigu HB Granda.“ Er
það mat Vilhjálms að fólk á Akra-
nesi hafi verið niðurlægt í þessari
sameiningu. -shá
FRÁ AKRANESI Fólk á Akranesi hefur almennt miklar áhyggjur af þróun atvinnumála.
Á sjöunda tug starfa hafa tapast á Akranesi ári eftir samieningu HB og Granda:
Skagamenn niðurlægðir
SKÓLAMÁL Íslenskir háskólanemar
eru að jafnaði á svipuðum aldri og
háskólanemar á hinum Norður-
löndunum þegar þeir ljúka grunn-
námi á háskólastigi.
Jón Torfi Jónasson, prófess-
or í uppeldis- og kennslufræðum
við Háskóla Íslands, hefur borið
saman skólakerfi Danmerkur,
Íslands og Svíþjóðar vegna vinnu
við styttingu námstíma til stúd-
entsprófs. „Ef miðað er við stúd-
entsprófið ljúka íslenskir nemend-
ur því að jafnaði einu ári seinna
en jafnaldrar þeirra í nágranna-
löndum okkar. Þegar kemur að
háskólastiginu er hins vegar ljóst
að íslenskir nemar eru að ljúka
námi á svipuðum aldri og nemar
í löndunum í kringum okkur. Það
er því mikilvægt að horfa ekki
bara á framhaldsskólann heldur
á skólakerfið frá grunnskóla til
háskóla.“ - mh
Prófessor í kennslufræðum:
Óþarfi að flýta
stúdentsnámi
VILHJÁLMUR
BIRGISSON