Fréttablaðið - 30.01.2006, Síða 66

Fréttablaðið - 30.01.2006, Síða 66
30 30. janúar 2006 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Einstakt enskunámskeið ����������������������������������������� ��������������������������� • Fjarnám með 27 1/2 tíma enskunámskeiði á cd diskum • Slökunardiskur með jákvæðri staðfestingu með tónlist frá Friðriki Karlssyni • Vinnubók með enska og íslenska textanum • Taska undir diskana • Áheyrnarpróf í lok náms Mörg stéttarfélög, fræðslusjóðir og fyrirtæki styrkja þetta námskeið Allar uppl‡singar www.pareto.is eða í símum 540-8400 eða 820-3799 Það sást á íslenska liðinu í gær að leikurinn skipti engu máli á meðan Ungverjar spiluðu upp á stoltið og spiluðu vel. En miðað við að leikurinn tapaðist fannst mér of miklu kostað og ég hefði viljað fá betri nýtingu úr þeim þáttum sem eiga eftir að skipta máli þegar fram í sækir. Besta dæmið um þetta er Guðjón Valur Sigurðsson, sem lék engan veginn vel en samt er hann inni lungann úr leiknum. Ég hefði viljað sjá hann hvíldan og leyfa öðrum að fá tækifæri. Og ég spyr mig eftir þessa síðustu tvo leiki hvort fyr- irliðabandið fari honum eitthvað illa því frammistaða hans í fyrsta leiknum og næstu tveimur er eins og svart og hvítt. Mér fannst það orðið ljóst snemma í síðari hálfleik að við myndum tapa leiknum og þess vegna hefði mátt dreifa spilinu á fleiri menn. Markvarslan var því miður slök og fyrst hann lét Eradze byrja, líklega til þess að láta hann fá leik eftir meiðslin, hefði ég viljað sjá hann klára leikinn einnig. Ég hefði líka alltaf látið Hreiðar á bekkinn því gildi leiksins var lítið og því óþarfi að láta Birki Ívar, sem hafði staðið sig vel í fyrstu leikjunum, kynn- ast því. Mér finnst Viggó nýta leikhléin illa þriðja leikinn í röð . Til dæmis tekur hann leikhlé þegar þrjár sekúndur eru eftir af fyrri hálfleik þegar hann hefði klárlega átt að gera það þegar við vorum 13-11 undir. Mér finnst leikhléin á mótinu vera tekin á röngum augnablikum. Það voru þrír leikmenn sem skáru sig úr í leiknum. Snorri hélt dampi og spilaði gríðarlega vel enn einu sinni. Það er löngu kominn tími til að minnast á þátt Alexanders í þessu liði. Hann er kannski ekki að skora neitt mikið en hann spilar frábæra vörn og er yfirleitt fyrstur til baka, þrátt fyrir að vera hornarmaður. Þá var línan mjög góð í leiknum og Róbert nýtti færin sín afskaplega vel. Annars held ég að svona tap muni engin áhrif hafa á liðið. Nú er allri pressu aflétt, liðið er komið með góða stöðu í milliriðli sem þegar er frábær árangur. Framhaldið ætti að vera skemmt- un ein og leikmenn eiga að geta notið sín í þeim þremur leikjum sem bíða í milliriðlinum. Hefði viljað nýta leikinn betur ÍÞRÓTTALJÓS ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ Í HANDBOLTA Á EM Í SVISS GEIR SVEINSSON SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS HANDBOLTI „Það var hálfgert slen í mönnum. Ég hef spilað marga svona leiki og það er rosalega erfitt að rífa sig upp fyrir svona leiki,“ sagði nýliðinn Sigurður Eggertsson sem sagðist ekkert hafa verið stressaður fyrir leik- inn í gær. „Nei, alls ekki. Ég var svolítið tæpur eftir fyrstu þrjú klikkin en svo var ég orðinn góður,“ sagði Sigurður og glotti. “ - hbg Sigurður Eggertsson: Erfitt að rífa sig upp HANDBOLTI „Ástæðan fyrir svona tapi er að innst inni vita menn að leikurinn skiptir ekki máli. Menn reyna að rífa sig upp stoltsins vegna en maður sá það strax að þetta myndi ekki ganga. Það er eðli- legt og ég hefði gert slíkt hið sama hefði ég spilað,“ sagði fyrirliðinn Ólafur Stefánsson sem hvíldi aftur í gær en hann spilar á þriðjudag. „Ég spila á þriðjudag og það var snilld að fá að hvíla aftur núna því ég er ekki orðinn góður. Ég fann fyrir þessu á æfingunni í morgun og þetta verður vont í svona tvær vikur en það er engin hætta á ferð- um. Ég verð sprautaður og mæti hress á þriðjudag.“ - hbg Ólafur Stefánsson: Ég spila á þriðjudaginn > Guðjón hefur áhuga Guðjón Þórðarson, stjóri Notts County á Englandi, sagði við Fréttablaðið í gær að Leicester hafi ekki formlega haft sam- band við sig, en fjölmiðlar í Englandi hafa verið duglegir við að orða hann við starfið á síðustu dögum. Guðjón segir þó að ef það gerðist myndi hann skoða tilboðið vel. „Leicester er stór klúbbur með frábærar aðstæður og bara það að ég sé til skoðunar hjá þeim sýnir hversu vel ég er metinn hérna á Englandi,“ sagði Guðjón og áhuginn á stjórastöð- unni leyndi sér ekki. TENNIS Roger Federer sýndi það og sannaði enn einu sinni að hann er besti tenniskappi heims þegar hann bar sigurorð á Opna ástr- alska mótinu í tennis sem lauk um helgina. Federer vann hinn tví- tuga Kýpurbúa Marcos Baghdatis í fjórum settum eftir að hafa tapað því fyrsta 5-7 en unnið þrjú næstu sett 7-5, 6-0 og 6-2. Þetta er sjöundi sigur Federer á stórmóti á ferlinum en hann vann einnig Opna bandaríska mótið sem og Wimbledon-mótið í ár og er fyrsti maðurinn til að vera hand- hafi allra þriggja titlanna frá því Pete Sampras afrekaði það fyrir rúmum áratug. Federer brast í grát þegar hann tók við sigurverð- laununum af Rod Laver en hann er sá sem síðast vann öll fjögur stór- slemmumótin á einu ári. - hþh Roger Federer: Gjörsamlega ósigrandi HANDBOLTI Hún var furðuleg stemningin í Stadthalle í Sursee þegar leikurinn hófst. Liðin tvö höfðu ekki að neinu að keppa og áttu greinilega erfitt með að kom- ast í stemningu fyrir leikinn. Ofan á það bættist við að áhorfendur voru hálfvankaðir enda engin stemning á leik sem engu máli skiptir. Fyrri hálfleikur var í raun hryllilegur handboltaleikur af hálfu beggja liða. Leikmenn voru andlausir með öllu, ekkert tal heyrðist í herbúðum liðanna og leikurinn var mjög hægur og ein- kenndist af mistökum og klaufa- skap. Sá sem mest líf var í heitir Viggó Sigurðsson en hann vildi sigra leikinn og honum ofbauð greinilega frammistaðan því um miðjan hálfleikinn fór hann að láta vel í sér heyra í þeirri von að vekja sína menn en því miður gekk það ekki eftir. Ungverjar voru alltaf skrefi á undan og þeir leiddu með tveim mörkum í leikhléi, 14-16. Íslenska liðið byrjaði síðari hálfleikinn skelfilega, skoraði fyrsta mark hálfleiksins en síðan tóku Ung- verjar völdin og skoruðu fjögur mörk í röð, 15-20. Þetta bil náði íslenska liðið aldrei að brúa enda var varnarleikurinn hreint út sagt skelfilegur og markvarslan því engin. Svo var einfaldlega engin stemning. Það er erfitt að gagnrýna liðið þar sem leikurinn skipti engu máli. Það var greinilega mikið spennufall í gangi eftir hasarinn í fyrstu tveim leikjunum og strák- arnir þar að auki augljóslega farn- ir að hugsa of mikið um framhald- ið. Í ljósi þess hefði maður viljað sjá leikmenn eins og Snorra Stein, Alexander, Arnór og Guðjón Val hvíla meira en þeir gerðu en mikið álag hefur verið á þeim og örugg- lega smá þreyta farin að gera vart við sig. Vonandi kemur sú ákvörð- un Viggós að láta þá spila svona mikið í dag ekki í bakið á honum. Snorri átti fínan leik og skor- aði tíu mörk í annað sinn í mót- inu. Hann er spila hreint ótrúlega vel og það er stór plús hversu vel hann nýtir vítin en það hefur oft verið liðinu dýrt hversu mörgum vítum það hefur klúðrað. Það var einnig jákvætt að Róbert skyldi spila mikið og skora mörk því hann þurfti á því að halda að hitna aðeins. Að sama skapi er það nokk- uð áhyggjuefni að Einar Hólm- geirsson hefur ekki verið að finna sig. Hann er engu að síður óragur við að skjóta og vonandi að lukkan fari að ganga í lið með honum. Spennufall í Sursee Íslenska landsliðið var með hugann við milliriðilinn í St. Gallen þegar það mætti Ungverjum í gær. Liðið lék því illa og tapið var verðskuldað, 31-35, en það breytir engu um framhaldið. VIPPA Alexander Petersson var einn besti leikmaður Íslands í gær og sést hér vippa yfir markvörð Ungverja í einu hraðaupp- hlaupa íslenska liðsins. Á litlu myndinni sjást leikmenn liðsins ganga hnípnir af velli í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/BÖDDI EM Í HANDBOLTA HENRY BIRGIR GUNNARSSON skrifar frá Sursee í Sviss. henry@frettabladid.is Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari vildi vinna leikinn gegn Ungverjum þótt hann hafi ekki skipt neinu máli og því til staðfestingar stillti hann upp sínu sterkasta liði í byrjun. Hann var því örlítið ósáttur við niðurstöðuna í leikn- um. „Við vorum búnir að ræða það á fundi að fara frá þessum riðli með stæl og sigri og því var hugarfar leikmanna nokkur vonbrigði. Þeir voru komnir með hugann í milliriðilinn og það er erfitt að hvetja liðið þegar staðan er þannig,“ sagði Viggó. En hverjir voru jákvæðu punktarnir ef einhverjir? „Við vorum þó að berjast við að reyna að komast inn í leikinn. Vorum samt alltaf á eftir þeim og ég sé ekki neitt stórkostlega jákvætt.“ Það kom mörgum á óvart að Viggó skyldi ekki hvíla lykilmenn sem hafa verið undir miklu álagi á mótinu. „Við vildum vinna en svo fann ég að Snorri, Arnór og Guðjón voru þreyttir og þá byrjaði ég að skipta mönnum af bekkn- um. Heimir og Sigurður stóðu sig mjög vel og við verðum fljótir að gleyma þessum leik en alvaran tekur bráðlega við á ný,“ sagði Viggó. En hvernig leggst milliriðillinn í hann? „Króatar eru stigi á eftir okkur og við byrjum væntanlega á þeim þannig að þetta verður stórleikur. Ef við förum með sigur af hólmi í þeim leik verðum við í góðum málum. Rússarnir eru alltaf sterkir á stórmótum og komu á óvart gegn Króötum enda með tiltölulega nýjan mannskap en það er hægt að vinna þá. Norðmenn verða hættulegir enda búnir að spila mikið við þá. Það verður blóðugur bardagi um öll stigin í milliriðlinum. Svo verður fínt að skipta um umhverfi því við höfum verið nokkuð einangraðir hér í þessum smábæ. Þessi leikur mun ekki sitja í mönnum og við mætum klárir til leiks með Ólaf Stefánsson á þriðjudaginn.“ LANDSLIÐSÞJÁLFARINN VIGGÓ SIGURÐSSON: VILDUM VINNA RIÐILINN MEÐ STÆL Voru með hugann við milliriðilinn Snorri markahæstur Snorri Steinn Guðjónsson er marka- hæstur allra á Evrópumótinu í Sviss. Hann hefur skorað 29 mörk í leikjunum þremur en næstur á eftir honum er Slóveninn Siarhei Rutenka. Guðjón Valur Sigurðsson kemur næstur Íslendinga með 13 mörk. SIGURÐUR EGGERTSSON Átti ágæta inn- komu í leikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR STARFSMAÐUR SECURITAS DRAKK BJÓR Á SPORTROKKI OG ÓK Á BROTT Vitni sá hann aka á brott Öryggisvörður í vondum málum eftir bjórdrykkju DV2x10-lesið 29.1.2006 21:36 Page 1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.