Tíminn - 17.03.1977, Page 2
2
Fimmtudagur 17. marz 1977
Spretta
ágæ t
án
kalks
JB-Rvik. Undanfarin tvö ár hef-
ur áburöarkalk veriö ófáanlegt
hér álandi. Til aö athuga hverju
þetta sætti haföi Timinn sam-
band viö Sementsverksmiöju
rikisins á Akranesi, en þar var
kalkiö framleitt á sinum tima.
Sagöi Guömundur Guömunds-
son, sem þar varö fyrirsvörum,
aö þegar framleiösla á áburöar-
kalki var hafin, var taliö aö
markaöur væri fyrir fleiri
þúsund tonn af þvi i landinu. En
þegar til kom, virtist ahugi á þvi
aö nota áburöarkalk á tún
hverfandi, og þegar framleiöslu
var hætt, var saian aöeins i
kringum sjö hundruö tonn. Mest
af þvi var notaö I fóöurvörur og
svo steinsteypu.
Þaö haföi einnig áhrif á þessa
ákvörðun, að sá Utbúnaður, sem
Sementsverksmiðjan notaöi viö
kalkframleiðsluna var mjög
dýr. Þurfti að taka sömu tækin i
tilraunavinnslu á perlusteini en
þannig var talið að þau nýttust
betur.
Hélt Guðmundur, aö Aburðar-
verksmiðjan hefði yfirtekið
kalkframleiösluna eöa fram-
leiddi annan áburð I staðinn, og
þá komiö sér upp ödýrari tækj-
um.
Hjá Rannsóknastofnun land-
búnaðarins fékk Timinn þær
upplýsingar, að það skapaöi
engin stórvandræði, þótt tún
væru ekki kalkborin. Kalktil-
raunir hefðu verið gerðar i
áratugi viöa um land og hvergi
komiö fram að grasleysi stafaði
af kalkskorti. Mesti vaxtarauki,
sem komiö hefði i ljós meö kölk-
un væri 10%, en hins vegar gæti
spretta verið ágæt þótt ekki
væri kalkaö. Sums staöar verð-
ur að telja nokkurn ávinning af
þvi að kalka, og á það einkum
viö um þar sem mýrarjaröveg-
ur er og litið áfok. Þá getur
kölkun verið til bóta fyrir hey-
gæðin. Margirhafa þótztsjá, að
ekki sé kalhætta þar sem kalkað
erog telja, að á kalárunum hafi
þau tún eöa túnskákir varizt
betur, er voru kalkbornar. Hins
vegar eru engar mælingar til
þessu til staöfestingar.
Prests-
efnin
mótmæla
óhróðri
A SUNNUDAGINN fara fram
prestskosningar I Hafnar-
fjaröarprestakalli og hinu
nýja Vföistaöaprestakaili, og
eru umsækjendur þrir, tveir I
Hafnarfjaröarprestakalli og
einn I Vföistaöaprestakalli.
A þriðjudaginn var boriö I
hús i Hafnarfiröi opið bréf,
sem i eru brigzl um umsækj-
endurna, og þeim færðar til
ávirðingar viö fyrri störf.
1 gær sendu umsækjendurn-
ir Timanum svolátandi yfir-
lýsingu:
„Viö hörmum mjög opið
bréf, sem I dag hefur verið
boriö I hús I Hafnarfirði, svo
og allar sögusagnir af sama
toga. Viö mótmælum harö-
lega að prestskosningar skuli
notaðar með þessum hætti, og
hvetjum alla til aö sýna
drengskap og sanngirni, hver
sem hlut á aö máli”.
Orösending þessi er dagsett
15. marz og undirrituð af Auði
Eir Vilhjálmsdóttur, Gunn-
þóri Ingasyni og Siguröi Guð-
mundssyni.
„Æskilegt að
Friðrik yrði
forseti FIDE”
— segir Ingi R. Jóhannsson
Gsal-Reykjavik — Ég tel aö þaö
myndi vera ákaflega æskilegt
ef Friörik gæti tekiö þetta starf
aö sér, sagöi Ingi R. Jóhannsson
skákmaöur er Timinn innti
hann eftir þvl hvert álit hans
væri á boöi dr. Max Euwe þess
efnis aö Friörik ólafsson tæki aö
sér forsetastarf alþjóöaskák-
sambandsins.
Ingi kvaðst að visu ekki
þekkja skilyrði þau, sem af for-
seta væri krafizt, en frá sinum
bæjardyrum séð teldi hann
Friðrik ákjósanlegan i starfiö.
— Það yrði ekki bara heppilegt,
sagði Ingi fyrir Islenzka skák-
menn að Friörik yröi forseti
FIDE, heldur einnig fyrir þjóð-
ina iheild. í FIDE eru sennilega
upp undir hundrað þjóöir og ís-
land yrði skákmiðstöö heimsins.
Ingi kvaðst ekki vita hvort
þetta myndi hafa I för meö sér
einhver fjárútlát fyrir islenzka
rikið, en dró i efa aö þau væru
mikil, þvi þátttökugjald i sam-
tökunum myndi eflaust standa
undir útgjöldum aö mestu leyti.
— En ég tel afar mikilvægt
sagöi Ingi aö skrifstofa FIDE
flytjist hingaö til lands meö
Friðrik og ekkert annað kemur
til greina. En auðvitað er þetta
erfiö ákvörðun fyrir Friðrik og i
hans sporum myndi ég skoða
þetta mjög vel.
Timinn innti Inga eftir þvi,
hvort hann teldi ekki FIDE vera
að syngja sitt siðasta, og kvað
hann nei við þvi. — Ég held að
það verði alltaf alþjóöasamtök
sagði hann. Þaö er að visu mikið
um pólitik og ströggl en ég held
að deilurnar innan FIDE hljóti
að leysast með timanum.
„Friðrik get-
ur ekki hafn-
að boði Euwe”
segir Guðmundur Sigurjónsson
Gsal-Reykjavik — Þetta er
mjög mikill heiöur fyrir Friörik
aö fá þetta boö og að minum
dómi getur hann varla hafnað
þvi.Þetta er eittaf þeim boöum,
sem ekki er hægt aö hafna,
sagöi Guðmundur Sigurjónsson
stórmeistari er Timinn leitaöi
álits hans á boöi dr. Euwe til
Friöriks.
— Svona starfi, sagöi Guð-
mundur, fylgja náttúrulega
ýmsir óskostir, eins og t.d. að
þurfa að standa i pólitik og
þrasi, en það eru einnig ljósar
hliðar á starfinu. Friðrik hefur
mjög ákveönar skoðanir um
það, hvað gera þurfi i skákmál-
um og við það aö taka þetta
starf að sér, fær hann tækifæri
til þess að gera hugmyndir
sinar að einhverju leyti aö veru-
leika.
Við inntum Guömund eftir
þvl, hvort hann-teldi aö hægt
væri að bjarga FIDE út úr þeim
ógöngum, sem samtökin væru
komin i, og kvaðst hann telja að
það væri hægt. — Vissulega er
FIDE I vanda, og einmitt þess
vegna verða samtökin að finna
mann, sem allir geta sætt sig
viö. Það eru ósamstilltir hópar
innan FIDE, i Evrópu t.d. tveir
— austur og vestur — ennfrem-
ur eru Suður-Amerikuþjóðimar
nokkuð sér á báti og Afrikuþjóö-
imar einnig, svo eitthvað sé
nefnt. Þaö er þvi vel hugsanlegt
að með þvl aö fá mann I forseta-
starfið frá jafn litlu landi og Is-
landi, að þjóðirnar innan sam-
takanna geti frekar sætt sig viö
sllkan mann en einhvern annan.
Hart barizt
í Kópavogi
Gsal-Reykjavik — Skákþing
Kópavogs stendur nú yfir og mun
aö öllum Hkindum Ijúka um miöja
næstu viku. Atta menn unnu sér
sæti I úrslitakeppninni, Jörundur
Þóröarson, Sævar Bjarnason,
Björn Sigurjónsson, Ingimar
Halidórsson, Erlingur Þorsteins-
son, Þröstur Bergmann, Jóhann
Hjartarson og óli Valdimarsson.
Lokið er fjórum umferöum I úr-
slitakeppninni og er Ingimar
Halldórsson efstur meö 2 og hálf-
an vinning og biðskák.
I B-úrslitum er Arni Arnason
efstur að þremur umferðum
loknum með 2 og hálfan vinning.
Stutt gaman
hjá Kortsnoj
— því Petrosjan náði að hefna
í gær
Gsal-Reykjavik — Eftir f jögur til-
tölulega litlaus jafntefli stór-
meistaranna og fjandmannanna
Kortsnojs og Petrosjans er nú
heldur betur aö færast fjör I ein-
vlgi þeirra. Kortsnoj sigraöi I 5.
einvlgisskákinni I fyrradag —og I
gær stjórnaöi Petrosjan hvita liö-
inu tilöruggs sigurs. Enn eru þeir
þvi jafnir aö vinningum, og for-
ysta Kortsnojs var skammvinn.
Skákin I gær var mjög
skemmtileg og fjörug, þótt svo
byrjunin væri samkvæmt kokka-
bókum. En hér kemur vinnings-
skák Petrosjans:
Hvltt: Petrosjan svart: Korts-
noj
1. d4 Rf6
2. Rf3 d5
3. c4 e6
4. Rc3 c5
5. cxd5 Rxd5
6. e4 Rxc3
7. bxc3 cxd4
8. cxd4 Bb4+
9. Bd2 Bxd2
Jafn-
tefli
— hjá Mecking
og Poluga-
jevski
Gsal-Reykjavik — Meck-
ing ogPolugajevskisömdu um
jafntefliI7. einvigisskák sinni,
sem tefld var i Luzern I Sviss I
gær, eftir 40 leiki. Poluga-
jevski hefur enn einn vinning i
forskot eftir sigur i 2. umferö-
inni, en eins og hér heima
hafa allar skákirnar aö
undanförnu endað meö jafn-
tefli.
8. einvígisskák Meckings og
Polugajevskis veröur tefld á
föstudag.
10. Dxd2 0-0
11. Bc4 Rc6
12. 0-0 b6
13. Hfel Bb7
14. Hadl Re7
15. d5 exd5
16. exd5 Rf5
17. Re5 Rd6
18. Rc6 Bxc6
19. Dxc6 Rc4
20. Df4 Rd6
21. Hxd6 Dc7
22. g3 h6
23. De5 Hac8
24. Dd5 Kh7
25. He4 Kg8
26. Kg2 a6
27. h b5
28. g4 Kh7
29. He2 Kh8
30. g5 h5
31. Hd2 Hfe8
32. Df3 g6
33. H2d5 Hf8
34. Hf6 De7
35. Hcd7 De8
36. Hxg6 De5
37. Kortsnoj gaf
Enn jafn-
tefli hjá
Friðrik
Gsal-Reykjavlk — Friörik
Ólafsson sem nú teflir á af-
mælismóti þýzka skáksam-
bandsins, heldur áfram aö
gera jafntefli. 1 gær tefldi
Friörik viö Furman, þjálfara
heimsmeistarans Karpovs —
og lyktaöi skákinni meö jafn-
tefli I 21 leik.
Mótið, sem haldið er I Bad
Luterberg, er eitt sterkasta
skákmótið sem haldiö hefur
veriö aö undanförnu, eða af
styrkleikagráðu 12 og eru
þátttakendur 16 að tölu, þar af
13 stórmeistarar. Friðrik
Ólafsson er enn i hópi efstu
manna, en Karpov heims-
meistari er i efsta sætinu.
Larsen hefur
betri stöðu
— í biðskák
Gsal-Reykjavlk — Larsen rétti
aöeins úr kútnum i gær, þegar
hann og Portisch leiddu saman
hesta s.ina i Rotterdam I 7. um-
ferö. Skákin fór I biö, en Larsen
hefur vinningsmöguleika, sem
Staðan
Reykjavik:
Spassky — Hort 4 1/2-3
1/2 (8 umferðum lokið. 9
umferð tefld i dag)
Luzern:
Polugajevski — Meck-
ing 4-3 (7 umferðum lok-
ið)
II Giocco:
Kortsnoj — Petrosjan 3-
3 (6 umferðum lokið
Rotterdam:
Portisch— Larsen 4-2 og
biðskák (6 umferðum
lokið)
hann veröur aö nýta vel ef hann
ætlar sér sigur i einvlginu. Svo-
sem kunnugt er, hefur Portisch
hlotiö fjóra vinninga til þessa,
Larsen aöeins tvo.
Fjallað veröur um skákina
nánar á morgun, þegar úrslit
liggja fyrir, en þá verður bið-
skákin tefld.
Smyslov
til Akur-
eyrar
Næstkomandi laugardag mun
Smyslov fyrrum heimsmeistari
og núverandi aöstoöarmaöur
Spasskys heimsækja Akureyri og
tefla þar fjöltefli viö heimamenn
á um 30 boröum. Teflt veröur I
Félagsborg, starf smannasal
Sambandsverksmiöjanna og
hefst fjöltefliö klukkan 13.
Smyslov tefldi nýlega við
bankamenn og var teflt á 34 borð-
um. Smyslov tapaöi tveimur
skákum, fyrir Guöjóni Sigurös-
syni og Leifi Jósteinssyni, gerði
fjórtán jafntefli og sigraöi I átján
skákum.
Dr. Alster aöstoöarmaður
Horts tefldi nýverið við leigubif-
reiðastjóra hjáBSR og vann hann
9 skákir af 11, tvær enduöu með
jafntefli.