Tíminn - 17.03.1977, Page 11

Tíminn - 17.03.1977, Page 11
Fimmtudagur 17. marz 1977 ri tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Heigason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Augiýsingastjóri: Steingrímur Gislason.Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306: Skrifstofur I Aöai- stræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — auglýsingá- ' simi 19523.. Verö i lausasölu kr. 60.00. Askriftargjald kr. 1.100.00 á mánuöi. Blaöaprenth.f.. Málgagn framsóknar- stefnunnar í dag eru liðin 60 ár siðan Timinn hóf göngu sina. í tilefni af þvi er eðlilegt að horft sé til baka og minnzt sérstaklega þeirra manna, sem höfðu forustu um útgáfu Timans og mörkuðu stefnu hans. Hér var um hóp manna að ræða, sem voru vaxnir upp i ungmennafélögunum, kaupfélög- unum og búnaðarsamtökunum. Gamla flokka- kerfið, sem markaðist af pólitisku sjálfstæðis- baráttunni við Dani, var að leysast upp og þörfin orðin brýn fyrir nýja flokkaskiptingu. Það var sjónarmið þess áhugamannaliðs, sem stóð að stofnun Timans, að hér þyrfti að risa upp þjóð- legur umbótaflokkur, er byggði stefnu sina á hugsjónum samvinnu og einstaklingsfrelsi. Timinn var stofnaður til að vera málgagn sliks flokks. 1 fyrstu forystugrein Timans er þetta rakið i stuttu máli, en höfundur hennar mun hafa verið Jónas Jónsson frá Hriflu, sem var aðalforustu- maður að stofnun blaðsins. í greininni segir á þessa leið: „Erlendis hefur reynslan orðið sú i flestum þingræðislöndum, að þjóðirnar skiptast i tvo höfuðflokka, framsóknarmenn og ihaldsmenn. Að visu gætir allajafna nokkurrar uudirskipting- ar, en þó marka þessir tveir skoðanahættir aðál- linur. Og svo þarf einnig að verða hér á landi, ef stjórnarform það, sem þjóðin býr við, á að verða sæmilega hagstætt landsfólkinu. Þetta blað mun eftir föngum beitast fyrir heil- brigðri framfarastefnu i landsmálunum. Þar þarf að gæta samræmis, hvorki hlynna um of að einum atvinnuveginum á kostnað annars, né hefja einn bæ eða eitt hérað á kostnað annarra landshluta, þvi að takmarkið er framför alls landsins og allrar þjóðarinnar.” Hér er mörkuð sú höfuðstefna, sem Timinn hefur leitazt við að fylgja fram á þennan dag. Barátta hans hefur verið fólgin i þvi að vinna að framför alls landsins og allrar þjóðarinnar. Stundum kann sumum hafa þótt, að barátta hans fyrir viðhaldi og eflingu hinna dreifðu byggða hafi ekki verið i þessum anda. Það er misskiln- ingur. Það er hagur allra landsmanna, að blóm- leg byggð haldist i landinu öllu. Svo sigild er byggðastefnan, sem hafin var hérlendis með stofnun Timans, að nú er lögð meiri áherzla á hana viða um lönd en flest annað. Það er gleði- legur árangur af starfi Timans og annarra aðila, sem hafa beitt sér fyrir byggðastefnunni, að siðustu árin hefur dregið úr óeðlilegum fólks- flutningum til aðalþéttbýlis og fólki fjölgað meira á stöðum utan þess en um langt árabil áður. ísland er vissulega orðið betra land en það var fyrir 60 árum. Þvi valda ræktunin, vegabætum- ar, hafnarbæturnar, bættur skipastóll og marg- vislegur iðnaður, að ógleymdri nýtingu vatnsork- unnar. íslenzkt þjóðfélag er stórum betra þjóðfé- lag en það var fyrir 60 árum, stéttamunur minni, jöfnuður meiri og samvinna hefur þróazt á mörgum sviðum. En þrátt fyrir þetta, er þó margt óunnið til að gera landið og þjóðfélagið betra. Oft má lika segja, að einstök framför kalli á margar aðrar. Þvi hefur framsóknarstefnan alltaf mikið verk að vinna. Þvi biða Timans enn mikil verkefni i þágu lands og þjóðar. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Haukar snúast Warnke Peir telja hann of samningsfúsan SIÐASTLIÐINN fimmtudag lauk haröri deilu, sem búin var aö standa vikum saman I öldungadeild Bandarikja- þings, fyrst i utanrikismála- nefnd og varnarmálanefnd deildarinnar og siöan i deild- inni sjálfri. Þessi deila stóö um, hvort deildin ætti aö sam- þykkja tilnefningu Carters forseta á Paul C. Warnke sem forstööumanni þeirrar stofn- unar, sem fjallar um afvopn- unarmál, og jafnframt sem aöalsamningamanni Banda- rikjanna i viöræöumviö Sov- étrikinum takmörkun kjam- orkuvopna. I utanrikismála- nefndinni hlaut tilnefningin á Warnke i bæöi þessi embætti nær einróma stuöning, en hins vegar hlaut Warnke mikinn mótbyr i varnarmálanefnd- inni. Einkum mætti þaö and- spyrnu, aö hann yröi aöal- samningamaöur Bandarlkj- anna I viöræöunum viö Sovét- rikin. Carter forseti studdi Warnke mjög eindregiö og lagöi mikiö kapp á, aö hann fengi a.m.k. tvo þriöju hluta atkvæöa, þegar atkvæða- greiösla færi fram i deildinni og lágu til þess ástæöur, sem siöar verður vikiö aö. Orslit atkvæðagreíöslunnar, sem fór fram siöastl. fimmtudag, uröu þau, að tilnefningin á Warnke istööu yfirmanns afvopnunar- stofnunarinnar var samþykkt meö 70 atkvæðum gegn 29. Þetta mátti teljast sæmileg niöurstaöa, en hiö sama verö- ur ekki sagt um hina atkvæöa- greiðsluna,sem sneristum til- nefninguna á honum sem aðalsamningamanni Banda- rikjanna i áöurnefndum viö- ræðum viö Sovétrikin. Sú til- nefning var samþykkt meö 58 gegn 40 atkvæöum og vantaöi þvi mikiö á, aö hann fengi tvo þriöju hluta atkvæða. Úrslit þess eru ekki aöeins talin ósig- ur fyrir Warnke, heldur engu siöur fyrir Carter, sem beitti sér mjög eindregiö Warnke til stuönings. ÞAÐ RÉÐI mestu um þessa niðurstööu, aö tveir áhrifa- miklir demókratar i öldunga- deildinni beittu sér harkalega gegn Wamke eða þeir Henry Jackson frá Washingtonriki og Moynihan frá New York. Astæöan var sú aö Warnke hefur um nokkurt skeiö haldiö fram skoöun, sem ekki fellur i Paul Culliton Warnke geö haukunum svonefndu, sem tortryggja alla samninga viö Sovétrikin, en leggja I staöinn kapp á sem mestan vigbúnaö. Markmiö þeirra er, aö Bandarikin veröi alltaf mun hernaöarlega sterkari en Sovétrikin. Warnke hefur i ræöum og timaritsgreinum haldiöþvifram, aö aöalatriöiö sé ekki aö stefna aö algerum yfirburöum, heldur nægum styrk til aö geta mætt árásum og endurgoldið þær. Stefna haukanna mun aöeins leiöa til þess, aö Sovétrikin reyni einn- ig aö ná yfirburöum og þannig auki þetta vigbúnaðarkapp- hlaupiö. Warnke hefur m.a. gengiö svo langt að halda þvi fram, aö Bandarikin ættu aö fara sér hægt i framleiðslu nýrra vopnategunda og sjá hvort sltkt fordæmi gæti ekki orðiö til þess, aö Rússar geröu slikt hiö sama. Vegna þessara skoðana Warnke snerust haukarnir gegn honum sem aöalsamningamanni Banda- Henry Jackson rikjanna. Þeir lögöu allt kapp á, aö hann fengi ekki tvo þriöju hluta atkvæöanna I öld- ungadeildinni, en þaö er þaö atkvæðamagn, sem þarf til aö fullgilda væntanlega afvopn- unarsamninga viö Sovétrikin ef til kemur. Meö þessu töldu þeir sig veita bæöi Warnke og Carter viövörun um aö halda fast á málum viö Rússa. Afstaöa Jacksons leiddi til þess, aö 12 demókratar greiddu atkvæöi gegn Warnke ogréði þaö úrslitum. Meö hon- um greiddu atkvæöi 48 demó- kratar og 10 repúblikaar, en á móti 28 repúblikanar og 12 demókratar. Tveir demókrat- ar voru fjarverandi. ÞÓTT útnefning Warnke sætti slikri andstöðu, viöur- kenna allir mikla hæfileika hans, enda haföi oft veriö gizkað á, aö hann yröi annaö hvort utanrikisráöherra eða varnarmálaráðherra I stjórn Carters. Warnke er nýlega oröinn 57 ára. Hann haföi lokiö laganámi viö Yale College, þegar hann var skráöur i her- inn og var hann i sjóhernum um fjögurra ára skeió. Hann hélt siðan áfram laganámi viö Columbiaháskólann. Aö laga- námi loknu varö hann starfs- maöur hjá þekktri lögfræöi- skrifstofu i New York og voru þeirDean Acheson samstarfs- menn þar um alllangt skeiö eöa eftir að Acheson lét af ráö- herrastörfum. Ariö 1966 fékk McNamara hann tilaö ganga i þjónustu varnarmálaráöu- neytisins og var hann aö- stoöarvarnarmálaráöherra á árunum 1967-1969. Hann vann sér þar gott orö, en hers- höföingjunum likaöi þó oft ekki skoöanir hans. Hann var I hópi þeirra fyrstu, sem lýstu sig andviga loftárásum á Noröur-VIetnam. Eftir aö hann lét af ráöherraembætt- inu, þegar Nixon varö forseti, stofnaði hann lögfræöiskrif- stofu meö Clark Clifford, sem var varnarmálaráöherra siö- ustu stjórnarár Johnson, og hefur hún unniö sér mikiö álit. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.