Tíminn - 05.04.1977, Side 2
2
Þriðjudagur 5. aprll 1977
Halldór Ólafsson.
Nýr úti-
bússtjóri í
Garðabæ
Bankaráö Búnaöarbanka tslands
hefur ráöiö Halldór ólafsson,
deildarstjóra veröbréfadeildar
bankans, útibússtjóra viö útibú
bankans I Garöabæ, þar eö Svav-
ar Jóhannsson, sem gegnt hefur
starfi útibússtjóra frá stofnun úti-
búsins 3. september s.l„ hefur aö
ósk bankastjórnar tekiö aö sér aö
gegna starfi skipulagsstjóra
bankans.
Hinn nýi útibússtjóri, Halldór
Ólafsson, er fæddur 6. marz 1928.
varö stúdent frá Menntaskólan-
um f Reykjavik áriö 1950. Hann
hóf starf í Búnaöarbanka Islands
þann 6. október 1953 og hefur ver-
iö deildarstjóri veröbréfadeildar
bankans frá árinu 1965.
Starfsemi útibúsins hefur geng-
iö mjög vel á þessum fyrstu 7
mánuöum. Aukning innlána og
útlána hefur veriö nokkuö jöfn
allan tfmann, svo og fjölgun viö-
skiptamanna. Innlán nema nú um
70 milljónum króna og hafa þau
aukizt fyrstu 3 mánuöi þessa árs
um tæp 60% miöaö viö síöustu
áramót.
Léleg
veiði
á Skjálf-
anda
gébé Reykjavik — Afli báta
héöan hefur veriö sæmilegur
aö undanförnu. Þetta eru allt
smábátar og hafa fengiö um 2-
3 tonn i róöri, og fiskurinn er
yfirleitt góöur. Hins vegar
hefur grásleppukörlum ekki
gengiö eins vel, en grásleppu-
veiöin hófst þann 20. fyrra
mánaöar, sagöi Þormóöur
Jónsson, fréttaritari Timans á
Húsavik á mánudag.
Sex bátar eru geröir út á
grásleppu frá Flatey á Skjálf-
anda á þessari vertiö og
hefur þeim öllum gengiö
fremur illa þaö sem af er.
Síma-
komin út
Sfmaskráin 1977 veröur afhent
til simnotenda frá og meö þriöju-
deginum 12 april n.k. og
gengur hún i gildi sunnudaginn 1.
maí 1977. Sjá nánar auglýsingu
um afhendingu simaskrárinnar i
dagblööunum næstu daga.
Upplag sfmaskrárinnar er um
94 þúsund eintök. Brot skrárinnar
er óbreytt frá 1976. Blaösiöutal
bókarinnar hefir aukizt um 32
blaösiöur.
Athygli skal vakin á skrá yfir
númer neyöar- og öryggíssima,
sem birt er á forsföu kápunnar
innanveröri, einnig á baksiöu.
Símaskrána er þegar fariö aö
senda út um land til dreifingar.
legu landsins og þróunar i hern-
aðartækni.
Aö lokum lagöi forseti þing-
mannasamtakanna áherzlu á, aö
mjög margir þekktir stjórnmála-
menn heföu tekið þátt I störfum
þessara samtaka. Nefndi hann
sem dæmi Wilson, fyrrverandi
forsætisráöherra Breta.
Þá mun helmingurinn af ráö-
herrum I núverandi rikisstjórn
Islands hafa tekiö þátt í störfum
samtakanna.
Matthias Matthiesen fjármála-
ráöherra var forseti samtakanna
1967-1968 og hann ávarpaöi fund
fastanefndarinnar I gær.
á fundi
Um helgina sföustu var fundur
fastanefndar þingmannasamtaka
Noröur-Atlantshafsbandalagsins
haldinn I Reykjavfk. t tilefni af
fundinum átti Timinn viötal viö
formann nefndarinnar, Geoffrey
de Freitas, sem er brezkur verka-
mannaflokksþingmaöur.
De Freitas, sem jafnframt er
formaöur brezku þingmanna-
nefndarinnar sagöi, aö þing-
mannasamtökin heföu veriö
stofnuö áriö 1955 og varö Island
þegar aöili. Þingmenn frá 15
aðildarlöndum NATO eru I sendi-
nefndunum og viöfangsefniö er aö
ræöa málefni Noröur-Atlants-
hafsbandalagsins og stööu og
öryggismál Noröur-Atlantshafs-
ins og allar götur suöur til
Balkanskaga.
A hverju hausti er haldin ráö-
stefna og taka þátt i henni 172
þingmenn frá NATO-löndunum.
Flestir eru frá Bandarikjunum
eba 36. Siöan fer fjöldinn eftir
stærö þjóöanna, en fæstir eru frá
íslandi og Luxemburg, 3 frá
hvoru landi. Siöan mega fulltrúar
hafa varamenn ef þeir óska.
Siöan eru nokkrar nefndir, sem
ráöstefnan setur niöur, sem fjall-
ar um sérsviö, svo sem stjórn-
málanefnd, hermálanefnd,
viöskiptanefnd, visinda- og tækni-
nefnd, og nefnd sem fjallar um
fræöslumál, menntamál og
upplýsingar.
Næsti fundur þingmannasam-
takannaferfram i Paris i septem-
ber og stendur yfir i nokkra daga.
De Freitas lagöi mikla áherzlu
á, aö hernaöarleg þýö-
ing Islands heföi aukizt mjög á
siöari tlmum, einfaldlega vegna
i Reykjavík
Fastanefnd A-bandalagsins
Frá fundi þingmannasambands Atlantshafsbandalagsins
Timamynd: Róbert.
Þessi Timamynd Gunnars sýnir sildarlöndun á siöustu vertiö.
^ _________________________________________________________
gébé Reykjavik — Aö loknum
langvarandi fundahöldum aö
undanförnu hefur sjávarútvegs-
ráöuneytiö, aö tillögu Haf-
rannsóknastofnunarinnar,
ákveöiö aö leyfa veiöar á
tuttugu og fimm þúsund lestum
af sild á hausti komanda. A
siöustu sildarvertiö var heildar-
kvótinn fimmtán þúsund lestir.
Jafnframt var ákveöiö, aö
hringnótabátar fái aö veiöa á
timabilinu 20. september til 20.
nóvember, en reknetabátarnir
fái aö veiöa á timabilinu 20.
ágúst til 20. nóvember 1977.
Skipting heildaraflamagns milli
hringnótabáta annars vegar og
reknetabáta hins vegar, hefur
ekki veriö ákveöin.
Veiöar meö reknetum veröa
nú gerðar leyfisbundnar, og
veiöar meö hringnót veröa
einnig háöar sérstökum leyfum
ráöuneytisins, eins og veriö
hefur siöan sildveiöar i hringnót
hófust aftur hér viö land haustiö
1975. Veröa veiðileyfin háö ýms-
um skilyrðum um framkvæmd
veiðanna og um meöferö afla.
Viö úthlutun leyfa til hring-
nótaveiöa gilda eftirfarandi
reglur: 1. Þeir bátar, sem ekki
fengu leyfi til hringnótaveiöa
1975 eöa 1976, sitja I fyrirrúmi
um leyfi á næstu vertið. (Um
þetta atriði mun nokkur ágrein-
ingur hafa skapazt á umræðu-
fundum, en fulltrúar Lands-
sambands isl. útvegsmanna
voru sammála þessari stefnu.)
2. Bátar 105 rúmlestir og minni
og 350 rúmlestir og stærri fá
ekki hringnótaleyfi.
3. Bátar þeir, sem leyfi fá til
humarveiöa á næstu vertið, fá
ekkileyfi til hringnótaveiða. 4.
Enginn bátur fær leyfi til bæöi
rekneta- og hringnótaveiöa á
sama ári.
Búast má viö, að allir bátar
geti fengiö leyfi til rekneta-
veiöa, enda berist eigi slikur
fjöldi umsókna að takmarka
verði úthlutun þeirra, en ráöu-
neytiö áskilur sér rétt til þess.
Aö lokum segir I tilkynningu
sjávarútvegsráðuneytisins um
mál þetta, að umsóknarfrestur
um leyfi til sildveiöa i hringnót
og reknet sé til 1. mai, og veröa
umsóknir, sem berast eftir þann
tima ekki teknar til greina.
Að sögn Jóns L. Arnalds,
ráöuneytisstjóra i sjávarút-
vegsráöuneytinu, þá mun
ákvöröun um skiptingu á heild-
araflamagni milli hringnóta-
báta og reknetabáta verða tek-
in fljótlega. Einnig er aö vænta
ákvaröana um humarveiöina á
næstu vertiö, en aö sögn Jóns er
beðiö eftir tillögum fiskifræö-
inga um þaö mál.
Sildveiðar:
Leyft að veiða
25 þús. lestir
á næstu vertíð