Tíminn - 28.04.1977, Blaðsíða 3
Kimmtudagur 28. april 1977
3
á borpallinn til aö reyna aö minnka sprengjuhættuna, siöan olluiekinn
í norska blaðinu Arbeirbladet,
er þvf haldiö fram, að tæknilegur
galli hafi verið orsök þess, að ó-
stöðvandi olfuflóö hófst á borpall-
inum Bravó á Ekofisk-svæðinu á
föstudagskvöldiö. Ventillinn, sem
átti að losna og stööva oliu-
strauminn, virkaði ekki þegar á
reyndi. Þegar þrýstingurinn frá
leiðslunum verður of mikill, á
þessi ventill að koma 1 veg fyrir
að olían streymi ilr leiöslunum.
Fyrir utan þetta, hafa einnig mis-
tök mannanna, sem við þetta
verk unnu, hjálpað til aö svona
fór, segir I Arbeiderbladet. Lög-
reglan mun vera komin i máliö,
og það er hún, sem mun sjá um
nánari rannsókn á orsökum þessa
hörmulega slyss.
eum Co., og varaforseti fyrir-
tækisins sagði nýlega I viötali við
Aftenposten, að fyrirtækið væri
aðeins tryggt innan mjög þröngra
marka gegn slysi sem þessu.
Fjárhagslegt tjón fyrirtækisins
vegna oliuflóðsins, hefur ekki
verið reiknað út enn, en þegar
reiknað er með að 4 þús. tonn af
oliu flæða f sjóinn á degi hverjum,
er andvirði þeirrar olíu um átta
milljónir ísl. kr. Þessi uppheð er
þó aðeins hluti af þvf, sem fyrir-
tækið kemur til með aö þurfa aö
greiða í samanburði við allan
þann kostnað, sem fyrirtækiö hef-
ur af slysinu sjálfu, þ.e. tilraun-
unum til aö reyna að loka fyrir
olfulekann, o.fl. Olfufyrirtækið er
skuldbundiö til að gera aílt til
þess að stööva lekann.
Fjölnir með
bílahappdrætti
Undanfarnar vikur hefur Li-
onsklúbburinn Fjölnir f Reykja-
vik verið meö bilhappdrætti i
gangi til eflingar styrktarsjóði
klúbbsins. Vinningur er hin nýja
bifreið frá Mazda umboöinu
„Mazda 323”, sem vakið hefur
mikla athygli. Nú fer i hönd loka-
átak I sölu happdrættismiöanna
þar sem dráttur fer fram 3. mai
nk. Sala miðanna hefur gengið
vel, en hún fer fram úr happ-
drættisbifreiðinni sem staðsett er
I göngugötu Austurstrætis, Hjart-
arbúð, Suðurlandsbraut 10,
Úlfarsfelli, Hagamel 67, Arnar-
kjöri Garðabæ, Gleraugnahúsinu,
Templarasundi 3 og Hamarsbúð
v/Tryggvagötu. Félagar hafa
gengið dyggilega fram við sölu
miðanna auk þess sem þeir hafa
fengið til liös við sig hina harö-
duglegu sölukonu Lilju Bjarna-
dóttur, en hún hefur, ásamt þvi að
stjórna sölunni úr happdrættisbif-
reiðinni verið fþreytandi viö aö
heimsækja einstaklinga og fyrir-
tæki. Verð miðanna er kr. 300 og
drætti verður ekki frestað. Agóði
af happdrættinu rennur til styrkt-
arsjóðs klúbbsins, sem hefur haft
að meginmarkmiði undanfarin ár
að styrkja Vistheimilið aö Víöinesi
og fjölfötluö börn.
Fiskrækt hafin
í Markarfljóti
Veiöarfæra-
skúr eyði-
lagðist i eldi
JB-Rvfk. Um klukkan fjögur f
fyrrinótt var slökkviliðiö i Kefla-
vik kvatt að Hafnargötu, en þar
haföi eldur komið upp i veiöar-
færaskúr, sem stendur sjávar-
megin við götuna. Skúrinn er i
eigu Keflavfkur h.f. og er þetta
einn af þremur veiöarfæraskúr-
um fyrirtækisins.
Að sögn Kristjáns Péturssonar
hjá Keflavik h.f. voru það leigu-
bátar hjá þeim sem geymdu
veiöarfæri sin i skúrnum, en þar
sem ekkivar vitaðhvemikiövar I
geymslu þegar eldsvoöinn varö,
erekki unnt að meta tjónið að svo
stöddu. Þó sagði Kristján að ljóst
væri aö um talsvert tjón væri að
ræöa þvf aö skúrinn og allt sem I
honum var gjöreyðilagöist. Elds-
upptök voru ókunn.
Bygginga-
þjónustan
aðalmálið
í BYRJUN marz var haldinn
aðalfundur Ar-kitektafélags ts-
iands, fráfarandi stjórn, sem var
skipuð þeim Hrafnkeli Thorlacius
formanni, Jóni Björnssyni gjald-
kera og Albinu Thordarson ritara
ásamt Gcirharði Þorsteinssyni
meðstjórnanda gaf skýrslu sfna,
reikningar voru lagðir fram og
samþykktir.
1 stjórn voru kosnir Hilmar
Ólafsson formaður, Jón Björns-
son gjaldkeri, Sigurþór Aöal-
steinsson ritari og Hrafnkell
Thorlacius meðstjórnandi.
Meginmál fundarins voru ann-
ars vegar staða byggingaþjón-
ustu Arkitektafélagsins og aukiö
hlutverk hennar i byggingarum-
svifum landsmanna og hins vegar
sú veigamikla lagabreyting að
heimila stofnun tveggja deilda
innan Arkitektafélagsins, deildar
launþega og deildar^ sjálfstætt
starfandi arkitekta.
gébé Reykjavfk — Veiöifélag
Markarfljóts hélt nýlega aðalfund
sinn, en þar urðu mikiar umræður
um framtlöarstarf félagsins.
Urðu menn sammála um að leita
tilboða i veiöi og ræktun, og var
gert ráð fyrir að stangaveiði yrði
stunduð á svæðinu eftir þvf sem
ástæður leyfa. A siðasta ári var
sleppt nokkru magni laxaseiða I
svæðið, þ.e. Markarfljót og fisk-
gengar ár og læki sem I það faila
og mun keppt að þvi að halda
þessu starfi áfram.
Félagssvæði Veiöifélags Mark-
arfljóts, tekur til fljótsins sjálfs
og allra fiskgengra áa og lækja,
sem I það falla, en um fimmtiu
jaröir eiga land að svæðinu. A
umræddum aöalfundi félagsins
kom fram áhugi manna fyrir þvi,
aö öll veiöifélög f sýslunni mynd-
uðu með sér samband er beitti sér
fyrir sameiginlegum fram-
kvæmdum á sviöi fiskræktar I
þágu félaganna.
Aldrei fyrr hefur slys á borð viö
þetta, komiö fyrir Phillips Petrol-
rlem Brundtland, sagöi I viötali I vikunni,
byrjaöi, heföi verið sá erfiöasti I Hfi slnu
ast hún milli Stafangri og Oslóar til
■ af öllum þeim aðgerðum, sem gerðar eru
ri.*
Sýslunefnd A.-Hún. um Blönduvirkjun
BLÖNDUVmKJUN NAUÐSYN
RAPORKUMARKAÐINUM
— meirihluti stjórnar Búnaðarsambands A.-Hún.
einnig samþykkur virkjun Blöndu
Sffellt eru að berast sam-
þykktir um virkjunarmál á
Norðurlandi vestra, enda liggja
nú fyrir alþingi frumvarp til
laga um virkjun Blöndu og til-
laga til þingsálvktunar um
virkjun Héraðsvatna við
Villinganes. Svohljóðandi sam-
þykkt var gerð i sýslunefnd
Austur-Húna vatnssýslu með
samhljóöa atkvæðum 9 sýslu-
nefndarmanna. Einn nefndar-
manna var andvigur en einn sat
hjá.
„Sýslunefnd A. Húnavatns-
sýslu hefur gert á undanförnum
árum nokkrar samþykktir um
Blönduvirkjun og allar á þá leið
að hvetja til virkjunar. Sýslu-
nefndin fagnar þvi framkomnu
frumvarpi um virkjun Blöndu
og skorar á háttvirta alþingis-
menn að samþykkja það.
Sýslunefndin lftur svo á, að
virkjun Blönu verði til þess að
efla byggð f héraöinu og á öllu
Noröurlandi vestra. Eins og
komið hefur fram er virkjunin
utan hins eldvirka svæðis og þvi
litil hætta á náttúruhamförum.
Er hún þvi nauðsyn þjóðinni
allri, ef til meiriháttar eldsum-
brota eða landskjálfta kæmi,
enda af þeirri stærð, sem mjög
vel fellur að rafmagnsþörf
landsmanna samkvæmt orku-
spá.
Sýslunefndin harmar að tveir
þingmenn kjördæmisins hafa
oröið til þess, vegna frumvarps-
ins um Blönduvirkjun, að bera
fram á Alþingi þingsályktun um
Villinganesvirkjun, sem mót-
mæli við Blönduvirkjun. Sýslu-
nefndin telur, að samþykkt
frumvarpsins um virkjun
Blöndu útiloki ekki rannsóknir
eða virkjun viö Villinganes,
heldur muni samþykkt frum-
varpsins stuðla fyrst og fremst
aö þvf, að unniö verði að fullu að
rannsókn Blönduvirkjunar.
Að lokum leggur sýslunefndin
áherzlu á aö afl Blöndu veröi
fyrst og fremst notaö til alhliöa
atvinnuuppbyggingar á Noröur-
landi vestra og verði nú þegar
hafinn undirbúningur slfkrar
iðnvæðingar.”
Lágmarksöryggi að ein
stórvirkjun sé utan eld-
virka svæðisins
Stjórn Búnaðarsambands
Austur-Húnvetninga fjallaði um
frumvarp til Blönduvirkj. á
fundi sinum nýlega og sam-
þykkti meirihluti stjórnarinnar,
þeir Kristófer Kristjánsson og
Konráö Eggertsson, aö mæla
með samþykkt frumvarpsins.
Minnihlutinn, Pétur Sigurðsson,
leggur til aö frumvarpið verði
fellt.
í áliti meirihlutans segir m.a.
að álit hans byggist m.a. á þvi
aö virkjun Blöndu sé fjárhags-
lega hagkvæm og meö stórauk-
inni raforkunotkun veröi aö
telja það lágmarksöryggi að ein
stórvirkjun veröi reist utan
hinna eldvirku svæða. Þá er
bent á að hin fyrirhugaða
vatnsmiölun sýni mikiö öryggi.
Þá er bent á, að samkvæmt
orkuspá sé full þörf á stórvirkj-
un til þess að fullnægja orkuþörf
landsmanna án þess að til frek-
ari stóriöju komi. Bendir meiri-
hlutinn á framkomnar hug-
myndir um alhliða iönaöarupp-
byggingu á Norðurlandi vestra I
sambandi viö virkjun Blöndu.
1 áliti meirihlutans er harmað
aö svo mikið af grónu landi fari
undir vatn og skoraö á viðkom-
andi aðila að kanna hvort unnt
sé að minnka það land með
auknum stiflugörðum.
Þá er f áliti meirihlutans lögð
á það höfuöáherzla, að ekki
verði skert bótafyrirkomulag til
landeigenda frá þvi, sem það er
I fylgiskjali með frumvarpinu.
Með þeim bótum færist hlunn-
indi til jaröanna f staö þeirra,
sem rýrna, með virkjunarfram-
kvæmdunum.
Andvígur orkusölu til
erlendra aðila
I áliti minnihluta stjórnar
Búnaðarsambandsins segir
m.a., að álit hans byggist á þvi
að undirritaður geti ekki fellt
sig við svo stórfellda gróður-
eyöingu, sem af Blönduvirkjun
leiði. Telur hann aö til slfkra ör-
þrifaráöa beri ekki að gripa séu
aörir valkostir um virkjanir
fyrir hendi.
Þá lýsir minnihlutinn yfir
andstöðu sinni við að orkusala
til erlendra stóriðju veröi gerö
að forsendu hinna stærri virkj-
ana á Islandi svo sem verið hafi.
Slfkt sé mjög varhugavert og
geti leitt til stórfelldrar hættu
fyrir efnahagslegt og þar meö
stjórnarfarslegt sjálfsstæöi
þjóðarinnar.
Bent er á, að miðlungsstórar
virkjanir t.d. 30-40 MW virkj-
anir hæfi betur orkumarkaðn-
um en stórvirkjanir.
Þá er i álitinu lögð á það
áherzla áö virkjunum verði val-
inn staður, sem viðast um land,
bæöi af öryggissjónarmiöum og
byggðasjónarmiðum. Bent er á,
að virkjun viö Villinganes væri
heppileg, sem fyrsti áfangi
virkjana á Norðurlandi vestra.