Tíminn - 29.04.1977, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.04.1977, Blaðsíða 2
Guðmundarmálið: Mikilvæga vitnið komið í leitirnar — kemur heim af frjálsum og fúsum vilja Gsal-Reykjavik. — Pilturinn féllst á að koma heim af frjálsum og fús- um vilja. Alþjóðalögregl- an Interpol kom þar ekki við sögu/ heldur höfðu ættingjar hans upp á hon- um og ég veit ekki betur en að pilturinn sé á leið- inni til landsins/ sagði Gunnlaugur Briem saka- dómari í samtali við Tím- ann í gær um pilt þann, sem dvalizt hefur erlend- is að undanförnu og tal- inn er búa yfir mikilvæg- um upplýsingum i sam- bandi við morðið á Guð- mundi Einarssyni. Alitið hefur verið aö pilturinn héldi til á Spáni og höfðu ætt- ingjar hans upp á honum þar. Er pilturinn að sögn Gunnlaugs kvaddur heim sem vitni i Guð- mundarmálinu, og staðfesti Gunnlaugur að pilturinn væri afar mikilvægt vitni i þvi máli. A sinum tima var Interpol beðið um aðstoð við að finna þennan pilt, en ekki var Gunn- laugi kunnugt um það hvað al- þjóðalögreglan hefði gert til þess að hafa upp á honum. Timinn spurði Gunnlaug að þvi i gær, hvort talið væri að rannsaka þyrfti Guðmundar- málið að verulegu leyti að nýju vegna þessa pilts. Gunnlaugur kvaðst ekki geta sagt til um það, enda færi það eftir þvi hver frá- sögn hans væri. Tveir þeirra þriggja manna, sem játuðu á sinum tima morðið á Guðmundi Einarssyni munu nú hafa dregið játningar sinar til baka, en það eru Sævar M. Cicielski og Tryggvi Rúnar Leifsson. Bravó í Norðursjó: Áfram heldur olíuf lóðið — þrjár árángurslausar til- raunir gerðar í gær til að stöðva lekann gébé Reykjavik. — Þrjár árang- urslausar tilraunir voru geröar I gær til aö stööva oliulekann á bor- pallinum Bravó á Ekofisk-svæö- inu í gær. Aöstæöur allar viö þess- ar tilraunir, eru hinar erfiöustu, og uröu hinir bandarisku sérfræö- ingar frá aö hverfa en þeir munu taka viö þar sem frá var horfiö i dag og halda ótrauöir áfram til- raunum sínum viö aö koma ör- yggisventlinum fyrir og stööva lekann. Bjartmar Gjerde, iðnaðarráö- herra Noregs, gaf út þá tilkynn- ingu rikisstjórnarinnar i gær, að ákveðið hefði verið að stöðva alla oliuvinnslu á Ekofisk-svæðinu af öryggisástæöum. Aður en óhapp- iðáBravokom fyrir sl.föstudag, voru framleiddar þar um 350 þús- und tunnur af olíu á dag, þar af 190 þúsund tunnur aðeins frá bor- turninum Bravo. Tveir aðrir oliuturnar eru á Ekofisk-svæðinu, Alpha og Charlie, en eins og áðúr segir, hefur oliuvinnsla þar verið stöðv- uð af öryggisástæðum. Siðan á föstudag hefur oliuvinnsla á þess- um tveim turnum, hvað eftir ann- að verið hætt, þegar vindátthefur breytzt þannig að gas hefur borizt i átt til þessara turna frá Bravó. Súgfirzkir bræður fyrri til ÞEGAR greint var frá báta- smiði önfirzks hagleiks- manns i Timanum i fyrradag var látiö aö þvi liggja, að trúlega væri þetta fyrsti piastbáturinn, sem smiöaöur hefði veriö á Vestfjöröum. Þetta er ekki rétt, og hafði Sigurjón Valdimarsson, fyrrum sveitarstjóri á Suðureyri, samband við blaðið og sagði, að i fyrra hefðu tveir bræöur á Suöur- eyri smiðað plastbát, sem hleypt var af stokkunum á sjómannadaginn i fyrra. Heitir sá bátur Stakkur. Bræðurnir, Sveinbjörn og Albert Jónssynir, smiðuðu bátinn og reru þeir til fiskjar á honum i fyrrasumar, og reyndist báturinn I alla staði mjög vel. Híkisstjórnin hugar að skattalækkun — til að greiða fyrir samningum MÓ-Reykjavik. — 1 athugasemd- um meö stjórnarfrumvarpi um breytingar á eignaskatti, sem lagt var fram á alþingi I gær, er gefiö I skyn, aö rikisstjórnin muni beita sér fyrir lækkun tekju- skatts, og jafnvel útsvars til þess aö greiöa fyrir kjarasamningum, sem nú standa yfir. 1 athuga- semdunum segir m.a: Skatta- breytingar koma þvi aöeins til á- lita, aö samningar takist innan þess ramma, sem ætla mætti aö hagkerfiö þoli miöaö viö hæga niöurfærslu veröbólgustigsins og jöfnuö I viöskiptum viö útlönd. Þess vegna er ekki timabært aö leggja aö svo stöddu fyrir alþingi tillögu i þessa átt. Skýrist linur I kjarasamningamálum meðan frumvarp þetta liggur fyrir al- þingi, þ.e. frumvarpið um breyt- ingu á tekju- og eignaskatti, má gera ráð fyrir aö rikisstjórnin leggi fram tillögur um breytingar á þvi frumvarpi. Dragist þetta fram yfir þinglok veröur að gera ráð fyrir að nauösynlegar breyt- Þetta er hluturinn, sem notaöur er til aö stööva oliulekann mikla á Bravo-borpallinum. Þessum hlut veröur komiö fyrir efst á aöalleiösluna, en efst á honum veröur loka komið fyrir, sem hægt er aö læsa, og þar meö stööva oliuflóðiö. Aöstæöur til vinnu á borpalli turnsins Bravo eru hinar erfiöustu og auk þess eru sérfræöingarnir I stööugri hættu, þar sem sprengjuhættan er gifurleg. ingar yrðu gerðar með bráöa- birgðalögum. Priðji dagurinn til einskis gébé Reykjavfk. — Svo viröist sem þriöji dagurinn I þessari viku, hafi fariö aö mestu leyti til spillis I samningaviöræöum hinna 30 fulltrúa vinnuveitenda og 30 fulltrúa ASl. Undanfarnar vikur hefur „boltinn” ef svo má aö oröi komast, rúllaö á milli þessara tveggja aöila, en hefur þó stööv- azt öllu lengri tima hjá vinnuveit- endum. Enda mun haft eftir ein- um fulltrúa þeirra á göngum Loftleiðahótelsins, sem eru mjög vinsæl göngubraut þessa dagana, aö vinnuveitendur væru mun seinni aö hugsa en fulltrúár ASi, hvaö svo sem til er I því. Eftir fundina á miövikudag, vöknuöu vonir manna um að Framhald á bls. 23 ■ Suðurga þjónusti HV-Reykjavik. — Frá og með næstu mánaðamótum verður hús- ið að Suðurgötu 7 i Reykjavik lagt undir fjölþætta starfsemi á sviði menningar og lista. Hús þetta er eitt af elztu húsum I Reykjavik, upphaflega byggt árið 1833, en siðar bætt við það eftir 1859. Það er hópur ungs fólks, sem kennir sig við húsið og ber þvi nafnið Suðurgata 7, sem að starf- semi þessari stendur, en hópur inn hefur undanfarið ár lagt mikla vinnu i sköpun aðstöðu i húsinu. Hefur vinna þessi öll fariö fram i sjálfboðavinnu og efni veriö kost- aö af hópnum sjálfum, þar sem Reykjavikurborg sá sér ekki fært að sinna beiöni hans um tvö hundruð þúsund króna styrk. Ætlunin er að þarna fari fram sem fjölþættust starfsemi, meöal annars á sviði kvikmynda, mynd- listar og útgáfu, en hópurinn hyggst gefa út málgagn af ein- hverju tagi. í fréttatilkynningu frá hópnum segir, að öll vinna i húsinu hafi miöast við að draga fram ein- kenni i byggingarstil þess, en jafnframt að gera það nothæft fyrir starfsemi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.